Stefán Ólafs, Ásta Guðrún og Nicole Leigh á meðal frambjóðenda Samfylkingarinnar

Sam­fylk­ingin er búin að birta lista yfir þá ein­stak­linga sem gætu endað á listum flokks­ins í Reykja­vík fyrir kom­andi alþing­is­kosn­ingar. Þar má finna nokkur óvænt nöfn ein­stak­linga sem ekki höfðu þegar boðað að þeir ætl­uðu fram fyrir flokk­inn.

Hluti frambjóða Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur.
Hluti fram­bjóða Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur. Mynd: Skjáskot af vef Samfylkingar

Sam­fylk­ingin hefur birt lista yfir þá ein­stak­linga sem gefa kost á sér til þess að taka sæti á fram­boðs­listum flokks­ins í Reykja­vík. Alls eru fram­bjóð­end­urnir 49 tals­ins.

Nokkur nöfn koma á óvart á list­anum, en þar má meðal ann­arra finna Stefán Ólafsson pró­fessor og sér­fræð­ing hjá Eflingu, Rósu Björk Brynj­ólfs­dóttur alþing­is­mann, Karl Th. Birg­is­son blaða­mann og Nicole Leigh Mosty, fyrr­ver­andi þing­mann Bjartrar fram­tíðar.

Einnig er Ásta Guðrún Helga­dóttir fyrr­ver­andi þing­maður Pírata á list­anum og sömu­leiðis Inga Auðbjörg Straum­land for­maður Sið­menntar. Þess má geta að hún eig­in­kona Helga Hrafns Gunn­ars­sonar þing­manns Pírata.

Hjálmar Sveins gefur kost á sér í landsmálin

Nokkrir úr borg­ar­stjórn­ar­flokki Sam­fylk­ing­ar­innar eru á list­anum, en borg­ar­full­trú­arnir Hjálmar Sveins­son og Ragna Sig­urð­ar­dóttir gefa bæði kost á sér auk vara­borg­ar­full­trú­anna Arons Leví Beck og Ellenar Calmon.

Báðir þing­menn flokks­ins í Reykja­vík, Ágúst Ólafur Ágústs­son og Helga Vala Helga­dóttir, gefa kost á sér til þess að vera áfram í far­ar­broddi fyrir Sam­fylk­ing­una í Reykja­vík. Það gerir einnig Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, sem gekk í þing­flokk Sam­fylk­ing­ar­innar í gær, en hún er þing­maður Suð­vest­ur­kjör­dæmis og óljóst var þar til nú hvort hún hefði hug á að bjóða fram krafta sína í Reykja­vík.[links]

Tals­verður fjöldi fólks hafði þegar stað­fest að það ætl­aði að gefa kost á sér, þeirra á meðal Kristrún Frosta­dóttir aðal­hag­fræð­ingur Kviku banka, Jóhann Páll Jóhanns­son fyrr­ver­andi blaða­maður á Stund­inni og Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu, félags fanga, svo nokkur séu nefnd.

Framboðskönnun stendur yfir fram á sunnudag

Sam­fylk­ingin ætlar ekki að halda próf­kjör í Reykja­vík fyrir kom­andi kosn­ingar, eins og áður hefur verið greint frá, heldur nota svo­kall­aða „sænska leið“ við upp­still­ingu á lista. Hún felur í sér að flokks­fé­lagar geta lýst skoðun sinni á fram­bjóð­endum og hefst fram­boðs­könnun á net­inu síð­degis í dag og stendur fram á kom­andi sunnu­dag.

Í könn­un­inni velur hver og einn 5 til 10 fram­bjóð­endur með kjör­merk­inu X en ekki með tölu­gildum eins og algeng­ast er í próf­kjörum hér­lendis. Þessar nið­ur­stöður verða svo kynntar upp­still­ing­ar­nefnd flokks­ins, en úrslitin verða ekki opin­beruð. Upp­still­ing­ar­ferlið á að hefj­ast strax að lok­inni fram­boðs­könnun, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá full­trúa­ráði Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík.

Búist er við að listar flokks­ins verði kynntir í febr­úar.

Listi frambjóðenda í heild

  • Aldís Mjöll Geirs­dóttir, for­seti Norð­ur­landa­ráðs æsk­unnar
  • Alex­andra Ýr van Erven, rit­ari Sam­fylk­ing­ar­innar
  • Aron Leví Beck Rún­ars­son, mynd­list­ar­maður og vara­borg­ar­full­trúi
  • Auður Alfa Ólafs­dóttir, sér­fræð­ingur hjá Alþýðu­sam­bandi Íslands
  • Axel Jón Ellen­ar­son
  • Ágúst Ólafur Ágústs­son, alþing­is­maður
  • Ásgeir Bein­teins­son, skóla­ráð­gjafi
  • Ásta Guðrún Helga­dóttir, ráð­gjafi
  • Björn Atli Dav­íðs­son, lög­fræð­ingur
  • Bolli Héð­ins­son, hag­fræð­ingur og for­maður efna­hags­nefndar Sam­fylk­ing­ar­innar
  • Dag­finnur Svein­björns­son, for­stjóri Arctic Circle
  • Einar Kárason, rit­höf­undur og vara­þing­maður
  • Ellen J. Calmon, vara­borg­ar­full­trúi
  • Eva H. Bald­urs­dóttir, lög­maður og jóga­kenn­ari – for­maður umhverf­is­hóps Sam­fylk­ing­ar­innar
  • Finnur Birg­is­son, arki­tekt á eft­ir­launum
  • Fríða Braga­dóttir
  • Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu
  • Gunnar Alex­ander Ólafsson, heilsu­hag­fræð­ingur
  • Gunn­hildur Fríða Hall­gríms­dóttir
  • Halla Gunn­ars­dóttir, lyfja­fræð­ingur
  • Helga Vala Helga­dóttir, alþing­is­maður
  • Hjálmar Sveins­son, borg­ar­full­trúi
  • Hlíf Steins­dóttir, aktí­visti og bar­áttu­kona
  • Hlynur Már Vil­hjálms­son, stofn­andi Félags fóst­ur­barna og starfs­maður frí­stunda­heim­ilis
  • Hösk­uldur Sæmunds­son, leik­ari og mark­aðs­maður - for­maður atvinnu­vega­hóps Sam­fylk­ing­ar­innar
  • Inga Auðbjörg Straum­land, athafn­ar­stjóri og Kaospilot
  • Ingi­björg Gríms­dóttir, þjón­ustu­full­trúi hjá Vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borgar
  • Ída Finn­boga­dóttir, mann­fræð­ingur og deild­ar­stjóri á áfanga­heim­ili
  • Jóhann Páll Jóhanns­son, blaða­maður og stjórn­mála­hag­fræð­ingur
  • Jóhanna Vigdís Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Almannaróms
  • Karl Th. Birg­is­son, blaða­maður
  • Kikka K. M. Sig­urð­ar­dóttir, leik­skóla­kenn­ari
  • Kristrún Mjöll Frosta­dóttir, hag­fræð­ingur
  • Magnea Mar­in­ós­dóttir, alþjóða­stjórn­mála­fræð­ingur og sér­fræð­ingur í jafn­rétt­is­málum
  • Magnús Árni Skjöld Magn­ús­son, dós­ent í stjórn­mála­fræði við Háskól­ann á Bifröst - for­maður alþjóða­hóps Sam­fylk­ing­ar­innar
  • Magnús Davíð Norðdahl
  • Nichole Leigh Mosty, for­maður Samtaka kvenna af erlendum upp­runa á Íslandi og verk­efna­stjóri í Hverf­is­verk­efni Breið­holts
  • Nikólína Hildur Sveins­dóttir, vef­stjóri og fyrr­ver­andi for­seti UJ
  • Óskar Steinn Ómarsson, deild­ar­stjóri á leik­skóla
  • Ragna Sig­urð­ar­dóttir, for­seti Ungra jafn­að­ar­manna og borg­ar­full­rúi í Reykja­vík
  • Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, alþing­is­maður
  • Sigfús Ómar Hösk­ulds­son, vara­for­maður SffR
  • Sonja Björg Jóhanns­dóttir, deild­ar­stjóri á leik­skóla - Bs. í sál­fræði
  • Stefanía Jóna Nielsen, sér­fræð­ingur á kjara­sviði Sameykis
  • Stefán Ólafsson, pró­fessor við HÍ og sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi
  • Steinunn Ása Þor­valds­dóttir, fjöl­miðla­kona
  • Steinunn Ýr Ein­ars­dóttir, forman Kvenna­hreyf­ingar Sam­fylk­ing­ar­innar
  • Viðar Egg­erts­son, leik­stjóri og verð­andi eldri borg­ari í starfs­þjálfun
  • Viktor Stef­áns­son, for­seti Hall­veigar – Ungra jafn­að­ar­manna í Reykja­vík
  • Vilborg Odds­dóttir
  • Þórarinn Snorri Sig­ur­geirs­son
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár