Danir hamstra mat vegna yfirvofandi aðgerða gegn COVID-19

Danski for­sæt­is­ráð­herr­ann Mette Frederik­sen til­kynnti í gær­kvöldi að gripið yrði til mjög hertra aðgerða vegna COVID-19. Hún hafði varla sleppt orð­inu þegar mat­vöru­versl­anir fyllt­ust af fólki að hamstra mat þótt engin þörf væri á slíku.

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur.
Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur. Mynd: EPA

Engir veit­inga­staðir og fáar búðir fyrir utan mat­vöru­versl­anir og apó­tek verða opnar næstu dag­ana á Ítalíu. Öllum skólum í Danmörku verður lokað frá og með næsta föstu­degi og opin­berir starfs­menn eiga ekki að mæta á vinnu­staði sína nema að brýna nauð­syn beri til. Í báðum lönd­unum verða fjölda­sam­komur bann­aðar. Barir og skemmti­staðir eru hvattir til að skella tíma­bundið í lás.

Stjórn­völd í Danmörku og á Ítalíu hafa til­kynnt enn hert­ari var­úð­ar­ráð­staf­anir vegna nýju kór­ónu­veirunnar sem breiðst hefur mjög hratt út í báðum lönd­unum. Smitum í Danmörku fjölg­aði tífalt frá mánu­degi til mið­viku­dags. Þau voru orðin 514 tals­ins í gær­kvöldi.

Á Ítalíu er ástandið enn að versna. Smitum fjölg­aði um 2.313 í gær og hefur veiran greinst hjá 12.462 manns frá því að far­ald­ur­inn braust út. Ekki hafa áður jafn­mörg til­felli greinst þar á einum degi og þó höfðu í gær ekki borist nýjar tölur frá hér­aði í norð­ur­hluta lands­ins sem orðið hefur hvað verst úti.

For­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, Giuseppe Conte, segir að barir, veit­inga­staðir, hár­greiðslu­stofur og önnur fyr­ir­tæki sem ekki veita brýna þjón­ustu skuli loka til 25. mars. Heim­send­ing­ar­þjón­usta verður þó heimil. Þegar var búið að loka skólum, söfnum, kvik­mynda­húsum, lík­ams­rækt­ar­stöðvum, íþrótta­leik­vöngum og öðrum sam­komu­stöðum.

Lýsa yfir heimsfaraldri

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin lýsti því yfir í gær­kvöldi að COVID-19 væri heims­far­aldur. Það þýðir að sjúk­dóm­ur­inn er tal­inn eiga eftir að breið­ast út um allan heim. Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, fram­kvæmda­stjóri stofn­un­ar­innar, sagði að þrett­án­föld aukn­ing hefði orðið á til­fellum utan Kína á tveimur vikum. Hann sagð­ist hafa miklar áhyggjur af því hversu hratt veiran væri að breið­ast út einnig því að við­brögð við far­aldr­inum væru að láta á sér standa víða. Veiran hefði nú greinst í 114 löndum og tæp­lega 4.300 hefðu lát­ist úr sjúk­dómnum sem hún veldur.

„Þúsundir til við­bótar eru að berj­ast fyrir lífi sínu á sjúkra­húsum,“ sagði Tedros á upp­lýs­inga­fundi í Genf í gær­kvöldi. „Á kom­andi dögum og vikum þá eigum við von á enn fleiri til­fellum og að dauðs­föllum og löndum sem veiran grein­ist í eigi eftir að fjölga.“

Yfir­maður neyð­ar­að­stoðar hjá Alþjóða heil­brigð­is­mál­stofn­un­inni, Michael Ryan, greindi frá því í gær að um 900 manns væru á gjör­gæslu­deildum sjúkra­húsa á Ítalíu vegna COVID-19. „Íran og Ítalía glíma við mestan vanda núna en ég get full­vissað ykkur um að önnur lönd verða í þeirri stöðu mjög fljót­lega.“

Kaupa geymsluþolin matvæli

Strax og danski for­sæt­is­ráð­herr­ann hafði til­kynnt um hert við­brögð vegna veirunnar þyrpt­ist fólk í mat­vöru­versl­anir að hamstra mat­væli. Engin þörf er á slíku og fjöldi versl­un­ar­keðja sendi sam­eig­in­lega út frétta­til­kynn­ingu um að engar vís­bend­ingar væru um að skortur yrði á neyslu­vörum á næst­unni. Í frétt danska rík­is­út­varps­ins kemur fram að fólk sé m.a. að kaupa nið­ur­suðu­vörur, núðlur og fleiri geymslu­þolnar vörur. Hillur í sumum versl­unum tæmd­ust því fljótt af til dæmis brauði.

Samkvæmt áætl­unum danskra stjórn­valda verða inn­an­hússsam­komur fleiri en 100 manna bann­aðar. Laga­breyt­ingu þarf til að koma slíku banni á og þar til það verður afgreitt með flýti á þing­inu eru þeir sem reka sam­komu­staði beðnir að fylgja þessum fyr­ir­mælum.

Einka­fyr­ir­tæki eru beðin að hvetja starfs­menn sína til að vinna að heiman ef því verður við komið og opin­berir starfs­menn skulu halda sig frá vinnu­stöðum sínum nema að þeir þurfi nauð­syn­lega, starfs síns vegna, að mæta. Heim­sóknir á öldr­unar- og hjúkr­un­ar­heim­ili eru bann­aðar, öllum skólum verður lokað og fólk hvatt til að dreifa álagi á almenn­ings­sam­göngur.

Stjórn­völd ætla líka að fá heim­ild með lögum til að geta þvingað einka­fyr­ir­tæki, m.a. þau sem reka leik­skóla og heil­brigð­is­þjón­ustu, til að skerða starf­semi eða loka, ef þörf krefur.

Góðar fréttir bár­ust hins vegar frá Kína í gær. Í borg­inni Wuhan greindust aðeins fjórtán ný smit og virð­ist því sem far­ald­ur­inn sé þar í rénun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár