Skilja Svíþjóð út undan

Landa­mæri Dan­merkur og Noregs að Svíþjóð verða ekki opnuð um miðjan júní. Þau verða hins vegar opnuð gagn­vart Íslandi. Utan­rík­is­ráð­herra Sví­þjóðar segir ákvörð­un­ina póli­tíska – ekki vís­inda­lega.

Yfir 4.000 manns hafa látist í Svíþjóð vegna COVID-19. Flest hafa smitin verið í höfuðborginni Stokkhólmi.
Yfir 4.000 manns hafa lát­ist í Svíþjóð vegna COVID-19. Flest hafa smitin verið í höf­uð­borg­inni Stokk­hólmi. Mynd: Benoît Derrier/Wikimedia Commons.

Stjórn­völd í Noregi og Danmörku segir ekki hægt að opna landa­mæri landa sinna fyrir Svíum þar sem þeir séu á allt öðrum stað í far­aldri COVID-19. For­sæt­is­ráð­herrar land­anna veggja til­kynntu í dag að frá miðjum júní verði landa­mæri milli ríkj­anna opnuð fyrir ferða­mönnum og í til­felli Dan­merkur einnig gagn­vart Íslandi og Þýska­landi. Um var­fær­in­skref er að ræða, að sögn for­sæt­is­ráð­herra Noregs, en að það sé nauð­syn­legt til að eyði­leggja ekki þann góðan árangur sem löndin hafa náð í sinni bar­áttu gegn útbreiðslu kór­ónu­veirunnar.

Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur og Erna Solberg for­sæt­is­ráð­herra Noregs héldu blaða­manna­fundi sam­tímis í dag þar sem þær til­kynntu um fyr­ir­hug­aðar til­slak­anir.

Í frétt Kjarnans í dag kom fram að þó að Íslend­ingar geti nú ferð­ast til Dan­merkur ef þeir kjósa geti þeir ekki gist í höf­uð­borg­inni Kaup­manna­höfn þar sem virk smit af COVID-19 eru flest í land­inu. Þá verða ferða­menn að bóka að minnsta kosti sex nætur fyr­ir­fram.

[links]Ferða­menn frá Svíþjóð verða hins vegar að bíða enn um sinn áður en tak­mark­anir við landa­mæri til Noregs og Dan­merkur verða opnuð. Mette Frederik­sen sagði það skýr­ast af því að Svíþjóð væri á öðrum stað í far­aldr­inum en Danir og Norðmenn.

Yfir 4.000 hafa lát­ist vegna COVID-19 í Svíþjóð sem er, að því er fram kemur í frétt New York Times, fjórum sinnum meira en sam­an­lagður fjöldi allra hinna Norð­ur­land­anna.

Utan­rík­is­ráð­herra Sví­þjóðar sagði fyrr í vik­unni að það að skilja landið útundan er landa­mæri á Norð­ur­löndum verði opni yrði póli­tísk ákvörðun en ekki byggð á vís­inda­legum grunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár