Kostir og gallar sænsku leiðarinnar að koma í ljós

Eru sænsk yfir­völd farin að súpa seyðið af því að hafa sett traust sitt á almenn­ing í stað boða og banna? Tæplega 2.500 hafa nú lát­ist úr COVID-19 þar í landi og á meðan kúrfan fræga er á nið­ur­leið víða virð­ast Svíar enn ekki hafa náð toppnum.

Þröng á þingi í markaðsgötu í Malmö um síðustu helgi. Girðingar hafa verið settar upp fyrir framan sölubása til að verja sölufólkið.
Þröng á þingi í mark­aðs­götu í Malmö um síð­ustu helgi. Girð­ingar hafa verið settar upp fyrir framan sölu­bása til að verja sölu­fólkið. Mynd: EPA

„COVID-19 er sjúk­dómur sem við komum til með að búa við í langan tíma,“ sagði Anders Tegnell, sótt­varna­læknir Sví­þjóðar, á dag­legum blaða­manna­fundi í dag. 107 dauðs­föll voru í land­inu á einum sól­ar­hring og tæp­lega 2.500 hafa lát­ist frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Á heims­vísu hafa yfir 210 þús­und manns lát­ist vegna COVID-19 ef marka má opin­berar tölur. „Þetta eru mjög háar tölur. Svo stórar tölur er erfitt að með­taka,“sagði Tegnell og að slíkan fjölda lát­inna af völdum sjúk­dóms væri eitt­hvað sem ekki hefði sést í ver­öld­inni í langan tíma.

„Þetta er langt í frá búið,“ sagði hann á fund­inum og þó að Svíum hefði tek­ist að kom­ast hjá of miklu álagi á heil­brigð­is­kerfið þyrfti áfram að fara að öllu með gát. „Það er mörgum sem finnst þetta erfitt en við verðum að muna að við komumst á þennan stað af því að margir lögðu sig mikið fram. Við megum ekki hætta því núna, þetta er langt í frá búið. Þetta er veira sem mun örugg­lega finna leið til að vera með okkur í langan tíma.“

[adspot]

Stokk­hólmur hefur orðið lang­verst úti í far­aldr­inum í land­inu. Þar er mikið álag á sjúkra­húsum.

Nú eru vís­bend­ingar um að veiran sé farin að breið­ast út til ann­arra svæða. Í bæði Halland og Värmland hefur fjöldi smita vaxið hratt síð­ustu daga. Tegnell segir þetta þó geta skýrst af því að fleiri sýni eru nú tekin en áður.

[links]Á blaða­manna­fundi dags­ins var Tegnell spurður út í dauða ungs fólks af völdum veirunnar, fólks sem hefði enga und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Hann sagði unga fólkið sem hefur lát­ist í Svíþjóð ekki virð­ast eiga neitt sam­eig­in­legt í heilsu­fars­legu til­liti. „Þetta er auð­vitað mjög sorg­legt en þetta er að ger­ast í öllum löndum og má sjá í öllum sýk­ingum. Við vitum ekki af hverju þetta ger­ist og ekki finnst neinn sam­nefn­ari hjá þessum hópi.“

Leiðir yfir­valda í Svíþjóð í bar­átt­unni við far­aldur kór­ónu­veirunnar hafa vakið athygli og verið umdeildar. Tegnell er sá sem talar fyrir aðgerð­unum en ekki stjórn­mála­menn. Sama leið var farin á Íslandi en víð­ast ann­ars staðar eru það stjórn­mála­menn­irnir sem koma fram í fjöl­miðlum, til­kynna um næstu skref og aðgerðir.

Samfélagið ekki stöðvað

Síðustu daga hefur vor­veðrið leikið við Svía og yngri kyn­slóðir hafa þyrpst út á götur, bari og kaffi­hús til að fagna sum­ar­kom­unni. Já, á bari og kaffi­hús. Í Svíþjóð hefur nefni­lega ströngum aðgerðum verið stillt í mikið hóf. Landa­mærin eru opin eins og áður, veit­inga­staðir og barir sömu­leiðis, almenn­ings­garð­arnir eru einnig opnir og sömu­leiðis leik- og grunn­skólar. Lestir og stræt­is­vagnar ganga sínar leiðir venju sam­kvæmt.

Það þýðir samt ekki að ekk­ert hafi verið gert. En fyrst og fremst stóla yfir­völd, þar á meðal Tegnell, á hið mikla traust sem Svíar hafa á stofn­unum, yfir­völdum og hver öðrum. Boð og bönn hafa því verið minni en í flestum nágranna­ríkj­unum í far­aldr­inum. Yfirvöld litu hins vegar svo á að Svíum væri treystandi til að ákveða að halda sig heima, passa upp á nálægð við aðra og stunda ítar­legan hand­þvott. Engar til­skip­anir þyrftu. Ekki nema örfáar, m.a. að banna sam­komur fleiri en fimm­tíu manna, aflýsa íþrótta­við­burðum og loka söfnum.

Þó að mun fleiri hafi lát­ist í Svíþjóð en á hinum Norð­ur­lönd­unum eru þær á pari við dán­ar­tölur á Írlandi þó að þar hafi snemma verið gripið til mun harð­ari aðgerða.

En sam­an­burður á tölum er vara­samur. Þjóðir eru á mis­jöfnum stað í kúrf­unni frægu, far­ald­ur­inn kom fyrr til sumra landa en ann­arra. En miðað við þróun talna í hverju Norð­ur­land­anna fyrir sig þá sést að Svíþjóð er enn á hátindi far­ald­urs­ins á meðan hann er á mik­illi nið­ur­leið hjá hinum.

[adspot]

Síðasta sunnu­dag var þétt­setið á kaffi­húsum í Stokk­hólmi. En ungt fólk var í miklum meiri­hluta. Sænsk heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa enda við­ur­kennt að eldri borg­arar hafi orðið illa úti og að veiran hafi greinst hjá íbúum á flestum öldr­un­ar­heim­ilum borg­ar­innar. Starfs­menn á þeim hafa einnig kvartað undan skorti á hlífð­ar­fatn­aði. Mikill meiri­hluti þeirra sem hefur lát­ist er yfir sjö­tugt eða um 86 pró­sent. Það er ekki ólíkt því sem gerst hefur í mörgum öðrum löndum en engu að síður hefði dán­ar­talan getað verið lægri. Það er til að mynda skoðun 22 vís­inda­manna sem rit­uðu opið bréf til sótt­varna­læknis og sök­uðu yfir­völd um van­rækslu.

Þrátt fyrir að hjól atvinnu­lífs­ins í Svíþjóð hafi snú­ist að ýmsu leyti eins og ekk­ert hafi í skorist, nudd-, snyrt- og hár­greiðslu­stofur hafa til dæmis ekki þurft að loka, þá mun verða sam­dráttur í efna­hags­líf­inu, m.a. vegna þess að Svíar reiða sig á útflutn­ings­tekjur. Þá verða áhrifin af sam­drætti í ferða­þjón­ustu svipuð þar og ann­ars staðar.

Tegnell neitar því að til­gang­ur­inn með því að stöðva ekki sam­fé­lagið líkt og aðrar þjóðir gerðu hafi verið sá að ná hinu umtal­aða hjarð­ó­næmi, að um 60 pró­sent þjóð­ar­innar smit­ist. „Við vorum að reyna að gera það sama og flest önnur lönd, að hægja á útbreiðslu eins mikið og hægt var,“ segir Tegnell í sam­tali við New York Times.„Málið er að við notum bara aðeins önnur verk­færi til þess en margir aðrir.“

Yfirvöld bönn­uðu ekki heim­sóknir á öldr­un­ar­heim­ili fyrr en í lok mars. Áður en að því kom höfðu for­stöðu­menn heim­ilis í nágrenni Stokk­hólms tekið sjálf­stæða ákvörðun um að banna heim­sóknir. Því var ekki vel tekið af yfir­völdum sem gengu svo langt að krefj­ast þess að skilti sem á stóð „engir gestir“ yrði fjar­lægt. For­stöðu­mað­ur­inn neit­aði og sagð­ist frekar fara í fang­elsi. Hið almenna heim­sókn­ar­bann kom svo of seint. Þá hafði veiran læðst inn á heim­ilið og ell­efu íbúar lát­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár