Heilbrigðisstarfsfólk í Svíþjóð fær ríflegar álagsgreiðslur – Neyðaráætlun virkjuð í Stokkhólmi

Svíar hafa verið seinir til við­bragða í far­aldri kór­ónu­veirunnar. Þeir hafa ekki viljað loka sam­komu­stöðum og for­sæt­is­ráð­herr­ann hefur sagt þjóð­inni að „haga sér eins og full­orðið fólk“. Að minnsta kosti 282 eru látnir – fimm sinnum fleiri en í Noregi.

Bráðabirgðasjúkrahúsi komið upp í sal í Stokkhólmi.
Bráða­birgða­sjúkra­húsi komið upp í sal í Stokk­hólmi. Mynd: EPA

Neyð­ar­á­ætlun hefur verið virkjuð í Stokk­hólmi vegna far­ald­urs COVID-19 sjúk­dóms­ins. Í áætl­un­inni er mest áhersla lögð á að manna gjör­gæslu­deildir sjúkra­húsa. Vinnu­skylda er nú 48 klukku­stundir á viku. Starfs­menn fá greitt álag sem getur hækkar laun þeirra meira en tvö­falt á meðan neyð­ar­á­ætl­unin er í gildi.

Borg­ar­yf­ir­völd til­kynntu í morgun um virkjun áætl­un­ar­innar. Samkvæmt henni má kalla til heil­brigð­is­starfs­fólk af öðrum sjúkra­húsum til starfa þar sem álagið er mest. Þó ber þess að gæta að starfs­menn fái hvíld.

„Neyð­ar­á­ætl­unin er ekki lausn til langs tíma hvað varðar skort á starfs­mönnum,“ hefur Afton­bla­det eftir Joakim Larsson, stjórn­ar­for­manni sam­starfs­nefnd sveit­ar­fé­laga í Svíþjóð. „Það verður að tryggja hvíld og end­ur­heimt starfs­manna til lengri tíma litið. Stjórn­endur verða þess vegna að finna aðrar lausnir til að bæta mönnun.“

[adspot]

Svíar hafa ekki gripið til sam­bæri­legra aðgerða í far­aldr­inum og flestar þjóðir Evrópu. Þeir hafa ekki lokað veit­inga­húsum, börum eða öðrum stöðum þar sem fólk kemur saman á. Stjórn­völd hafa haft þá yfir­lýstu stefnu að leyfa veirunni að dreifast hægt um sam­fé­lagið án þess að drekkja heil­brigð­is­kerf­inu og án þess að grípa til rót­tækra aðgerða. Þau hafa hins vegar forð­ast það að nota orðið „hjarð­ó­næmi“ í þessu sam­bandi.

Nið­ur­staðan er þessi: 282 hafa dáið úr COVID-19, fimm sinnum fleiri en í nágranna­rík­inu Noregi. Í Svíþjóð var ekki tekin stefna um að skima mikið fyrir veirunni, líkt og á Íslandi, þó að síð­ustu daga hafi fleiri sýni verið tekin. Staðfest smit eru nú tæp­lega 5.500. Yfir 360 manns liggja á gjör­gæslu með COVID-19.

Far­alds­fræð­ing­ur­inn Anders Tegnell hefur leitt við­brögð sænskra stjórn­valda við far­aldr­inum. Þrátt fyrir að margir hafi gagn­rýnt þá stefnu sem hann hefur talað fyrir hefur hann haldið áfram sínu striki. Hann hefur m.a. verið spurður hvort ekki sé tíma­bært að afkvía Stokk­hólm, þar sem til­fellin eru lang­flest.

„Já, það hefur orðið aukn­ing en ekki svo stór­kost­leg enn sem komið er,“ sagði hann í byrjun viku. „Við erum að fara á það stig far­ald­urs­ins þar sem við munum sjá miklu fleiri til­felli næstu vik­urnar, fleira fólk á gjör­gæslu, en það er eins og í hverju öðru landi – það hefur hvergi verið hægt að hægja á útbreiðsl­unni að ein­hverju marki.“

For­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar, Stefan Löfven, hefur sagt Svíum að „haga sér eins og full­orðið fólk“ og hefur varað fólk við því að ýta undir skelf­ingu og dreifa sögu­sögnum.

Vís­inda­menn, m.a. læknar, í Svíþjóð, hafa þó lýst yfir þungum áhyggjum af aðgerða­leysi stjórn­valda. Í síð­ustu viku skrif­uðu 2.000 læknar, kenn­arar og ýmsir vís­inda­menn, undir bæna­skjal þar sem stjórn­völd voru ein­dregið hvött til þess að herða aðgerðir til að hægja á útbreiðsl­unni. „Við erum ekki að taka nógu mörg sýni, við erum ekki að rekja smit, við erum ekki að setja nógu marga í ein­angrun – við höfum sleppt veirunni lausri,“ hefur Guardian eftir Cecilia Söder­berg-Nauclér, sér­fræð­ingi í ónæm­is­fræðum við Karol­insku-stofn­un­ina. „Stjórn­völd eru að leiða okkur út í hörm­ungar.“

[links]Á meðan stjórn­völd hafa talað hætt­una sem af veirunni staðar niður hafa margir Svíar verið hinir róleg­ustu, vanir því að hlusta á lýð­ræð­is­lega kosna full­trúa og emb­ætt­is­menn stjórn­kerf­is­ins sem hafa ávallt notið mik­ils traust almenn­ings. Fólk tekur mark á yfir­völdum og trúir því að þau viti betur, geri það sem almenn­ingi er fyrir bestu.

Far­alds­fræð­ing­ur­inn Tegnell sagði nýverið um harðar aðgerðir nágranna­land­anna: „Vanda­málið við þessa nálgun er að þú þreytir allt kerfið. Það er ekki hægt að loka öllu mán­uðum saman – það er óger­legt.“

Ónæm­is­sér­fræð­ing­ur­inn Söder­berg-Nauclér er á öðru máli. „Rík­is­stjórnin heldur að hún geti ekki stöðvað þetta svo að hún hefur ákveðið að láta fólk deyja. Hún vill ekki hlusta á stað­reyndir vís­inda­manna. [...] Við erum að sjá merki um hrað­ari vöxt en jafn­vel Ítalía gerði. Gjör­gæslu­pláss í Stokk­hólmi verða bráðum full og þeir skilja ekki að þá verður of seint að bregð­ast við.“

Ráðgjafi rík­is­stjórn­ar­innar hefur gefið lítið fyrir slíkt tal. „Það eru engar sann­anir fyrir því að á þessu stigi skipti [harð­ari aðgerðir] máli. Það er mun áhrifa­rík­ara að setja á stað­bundnar tak­mark­anir og það í eins stuttan tíma og mögu­legt er.“

Launalækkun vegna niðurfellingar á álagsgreiðslu

Hér á Íslandi var snemma gripið til aðgerða sem mið­uðu að því að finna smit­aða, rekja smitin og ein­angra fólk eða setja í sótt­kví. Hér hefur ekki orðið veld­is­vöxtur í fjölda smit­aðra líkt og í Svíþjóð. Hins vegar hafa svart­sýnu spár ræst hvað varðar fjölda alvar­legra veikra sem þurfa á gjör­gæslu­hjúkrun að halda.

Íslenskir hjúkr­un­ar­fræð­ingar, sem hafa staðið í eld­línu far­ald­urs­ins síð­ustu vikur og starfað undir gríð­ar­legu álagi, vökn­uðu upp við vondan draum um mán­aða­mótin er sér­stakrar álags­greiðslu til þeirra var hætt. Eru dæmi um að laun þeirra hafi lækkað um 40 þús­und við þetta.

Engar sér­stakar greiðslur vegna álags á Land­spít­al­anum í far­aldr­inum hafa verið til­kynntar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár