Flugmenn vildu að að fólk með yfir milljón á mánuði fengi fullar atvinnuleysisbætur

Félag íslenskra atvinnu­flug­manna telur það sann­gjarnt að fólk sem haldi launum frá atvinnu­rek­enda sem yrðu yfir milljón krónur á mán­uði fái samt fullar atvinnu­leys­is­bætur úr rík­is­sjóði. Ástæðan er meðal ann­ars sú að hóp­ur­inn hafi greitt svo mikið í skatt.

FÍA gætir hagsmuna flugmanna hjá Icelandair.
FÍA gætir hags­muna flug­manna hjá Icelandair. Mynd: Icelandair

Félag Íslenskra atvinnu­flug­manna (FÍA) lögðu til breyt­ing­ar­til­lögu við nýsam­þykkt lög um hluta­bætur úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði, vegna áhrifa af útbreiðslu kór­ónu­veirunnar, sem fólu í sér að hálauna­fólk myndi fá greiddar fullar atvinnu­leys­is­bætur ofan á þau laun sem atvinnu­rek­andi þeirra greiddi þeim næstu mán­uði.

Samkvæmt til­lög­unni átti til dæmis sá sem var með tvær millj­ónir króna í laun, en myndi fara í 50 pró­sent starf hjá atvinnu­rek­anda, fá eina milljón króna frá honum áfram en fullar atvinnu­leys­is­bætur, 456.404 krónur á mán­uði, úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði á meðan að lög um hluta­bætur yrðu við lýði.

Þetta kemur fram í umsögn FÍA sem skilað var inn til vel­ferð­ar­nefndar í síð­ustu viku, á meðan að hún hafði málið til umfjöll­unar. Undir hans skrifar Jón Þór Þor­valds­son, for­maður FÍA, flug­stjóri og vara­þing­maður Mið­flokks­ins.

„Sanngirnissjónarmið að þetta fólk sitji við sama borð“

Upp­haf­legt frum­varp, sem Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, lagði fram fyrir rúmri viku, gerði ráð fyrir að hægt yrði að fá 80 pró­sent af fyrri launum upp að 650 þús­und króna launum sam­kvæmt frum­varp­inu. Ef atvinnu­rek­andi og laun­þegi næðu sam­komu­lagi um að færa við­kom­andi niður í 50 pró­sent starf vegna ástands­ins sem nú er uppi myndi helm­ingur laun­anna upp að því marki því koma úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði og helm­ing­ur­inn frá atvinnu­rek­and­anum. Þetta fyr­ir­komu­lag átti að vera við lýði til 1. júlí, eða í þrjá og hálfan mánuð.

[adspot]Fyr­ir­liggj­andi er að stórir hópar sem starfa í ferða­þjón­ustu muni nýta sér hluta­bóta­leið­ina næstu mán­uði, enda nær algjört stopp í þeirri grein sem stendur. Tugir þús­unda starfa við ferða­þjón­ustu og tengdar greinar á Íslandi. Á meðal þeirra eru starfs­menn Icelandair, þar á meðal flug­menn.

Í umsögn FÍA kom fram að félagið styddi meg­in­at­riði frum­varps­ins og taldi mark­mið þess mik­il­væg, en að það mælt­ist til þess að breyt­ingar yrðu gerðar á því. Sér­stak­lega er tekið fram að FIA hafi verið „í sam­tali við aðra aðila á vinnu­mark­aði s.s. VR, FFI,FVFI og fleiri vegna stöðu mála, þ.e. vegna þeirrar óvissu sem þar ríkir eftir að lýst hefur verið yfir heims­far­aldri vegna kór­ónu­veirunnar (SARS-CoV-2), og njóta breyt­ing­ar­til­lögur félags­ins fulls stuðn­ings þeirra.“

Breyt­ing­ar­til­lög­urnar, sem eru tvær, snú­ast ann­ars vegar um að fólk með há laun, t.d. vel yfir eina milljón króna á mán­uði, sem myndi halda greiðslum frá vinnu­veit­enda til helm­ings, myndi samt sem áður fá fullar atvinnu­leys­is­bætur, 456.404 krónur, á tíma­bil­inu. Hins vegar vildi FÍA að 650 þús­und króna þak á greiðslur yrði afnumið.

Í rök­stuðn­ingi félags­ins sagði meðal ann­ars að um eins­konar brú til skemmri tíma væri að ræða, ekki var­an­lega ráð­stöðun. Með því að fella út hámarks­sam­tölu launa og bóta­fjár­hæða, en til­taka ein­ungis hámark bóta­fjár­hæðar, myndu líkur aukast á þát­töku í úrræð­inu og fleiri aðilar myndu halda starfi með þát­töku atvinnu­rek­enda, sem að öðrum kosti myndu missa starf sitt og leggj­ast af fullum þunga á Ábyrgða­sjóð launa án þess að mót­fram­lag atvinnu­rek­enda kæmi til. „Þessi til­tekni hópur greiðir nú og hefur um langan tíma greitt af launum sínum skatta og gjöld til sam­fé­lags­ins. Þeir ættu því að njóta bóta­réttar til jafns við aðra í þennan stutta tíma[...]Þessi hópur launa­fólks greiðir hæst hlut­fall skatta hvort sem miðað er við krónu­tölu eða hlut­fall launa og því er það sann­girn­is­sjón­ar­mið að þetta fólk sitji við sama borð og aðrir hópar þegar kemur að rétti til bóta­fjár­hæða.[...]Um mjög mörg verð­mæt störf er að ræða. Sem dæmi má nefna störf í flug­iðn­aði.“

Hægt er að sjá sam­an­burð á til­lög­unum hér að neðan.

Miklar breytingar gerðar en ekki hlustað á flugmenn

Vel­ferð­ar­nefnd tók ekki mark á athuga­semdum FÍA. Umtals­verðar breyt­ingar voru hins vegar gerðar á frum­varp­inu áður en það var sam­þykkt á föstu­dag.

Breyt­ing­arnar fela í sér að Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóður mun greiða frá 25 pró­sent og allt að 75 pró­sent af launum þeirra sem gera slíka samn­inga, en í upp­haf­legu frum­varpi hafði hámarks­hlut­fallið yrði 50 pró­sent.

Aðrar lyk­il­breyt­ingar sem gerðar hafa verið á frum­varp­inu er að hámark á heild­ar­tekjum þeirra sem gera samn­inga hefur verið hækkað úr 650 þús­und krónum í 700 þús­und krónur og hver og einn getur fengið allt að 90 pró­sent af núver­andi heild­ar­launum upp að því þaki, en það hlut­fall var 80 pró­sent í fyrstu útgáfu frum­varps­ins. Þá hefur launa­lægsta hópnum verið tryggð full afkomu og þeir sem eru með laun undir 400 þús­und krónum á mán­uði munu geta fengið þau að öllu leyti áfram, þrátt fyrir samn­ing­inn. Það vekur líka athygli að ákveðið hefur verið að stytta tím­ann sem bráða­birgða­úr­ræðið verður í boði frá 1. júlí til 1. júní.

[links]Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna hluta­bóta­lag­anna ræðst á því hversu margir muni nýta sér úrræðið. Ásmundur Einar sagði í fréttum Stöðvar 2 á fimmtu­dag að „það fjár­magn sem fer í þetta [fer] mjög mikið upp og má gera ráð fyrir því að það verði á bil­inu tólf til tutt­ugu millj­arðar, eftir því hversu margir nýta sér úrræðið.“

Miðað við kostn­að­ar­mat ráðu­neyt­is­ins, sem Kjarninn hefur undir höndum, þá var Ásmundur Einar þar að gefa sér að á bil­inu 20 til 30 þús­und lands­menn myndu gera samn­inga um skert starfs­hlut­fall og nýta sér greiðslur úr Atvinnu­trygg­inga­sjóði á móti. Þá myndu greiðslur, á ofan­greindum for­sendum, verða 12,8 til 19,2 millj­arðar króna.

Verði bjart­sýn­asta sviðs­mynd ráðu­neyt­is­ins að veru­leika, sem gerir ráð fyrir að fimm þús­und manns sæk­ist eftir hluta­bótum, mun kostn­að­ur­inn hins vegar verða mun lægri, eða 3,2 millj­arðar króna yfir umrætt tveggja og hálfs mán­aðar tíma­bil. Verði sú svartasta raunin munu 50 þús­und manns leita eftir samn­ingum við vinnu­veit­endur um að fá hluta launa sinna greidda úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði á næstu mán­uðum. Samtals mun kostn­að­ur­inn, frá 15. mars til 31. maí, þá nema 32 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár