Líkur innflytjenda á að útskrifast helmingi minni

Nýjar tölur hag­stofu sýna hæga hækkun á hlut­falli nýnema sem útskrif­ast á Íslandi, en skipt­ing þeirra er ójöfn eftir félags­legum bak­grunni.

Menntaskólinn við Sund.
Mennta­skól­inn við Sund. Mynd: Bára Huld Beck

Hlutfall nýnema í fram­halds­skólum á Íslandi sem hafa útskrif­ast hækk­aði úr 43% árið 2000 í 52% árið 2012. Dreifing braut­skrán­inga er einnig ójöfn eftir félags­legum bak­grunni, en líkur inn­flytj­enda sem skrá sig í fram­halds­skóla eru helm­ingi minni en líkur íslenskra barna. Þetta kemur fram í nýbirtri til­kynn­ingu Hagstofu Íslands í dag.

Í til­kynn­ing­unni segir að um 52% þeirra nýnema sem skráðu sig í fram­halds­skóla árið 2012 hafi braut­skráðst úr námi á því stigi í ár, fjórum árum síðar. Þá höfðu rúm 26% hætt námi eða tekið sér tíma­bundið hlé, en tæp 22% voru enn í námi án þess að hafa braut­skráðst.

Braut­skrán­ing­ar­hlut­fallið, sem mælir hlut­fall nýnema sem útskrif­ast, hefur auk­ist hægt á síð­ustu árum, en til sam­an­burðar höfðu rúm­lega 43% nýnema hausts­ins 2000 útskrif­ast. Braut­skrán­ing­ar­hlut­fall inn­flytj­enda sker sig úr, en í ár höfðu aðeins 29% þeirra sem hófu fram­halds­skóla­nám árið 2012 útskrif­ast. Til sam­an­burðar var braut­skrán­ing­ar­hlut­fall þeirra sem fæddir voru erlendis og höfðu íslenskan bak­grunn um 56%.

Ná ekki viðmiðum menntamálaráðuneytisins

Þar sem töl­urnar ná til nýnema árið 2012 eru áhrif stytt­ingar náms til stúd­ents­prófs ekki að fullu komin fram í þeim tölum sem sam­an­tekt Hagstofu nær til. En sam­kvæmt Hvítbók mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins sem kom út árið 2014 var því spáð að braut­skrán­ing­ar­hlut­fall í ár yrði komið upp í 60%, hefði til­lögur hennar gengið eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár