Katrín: Ég vonast til þess að við finnum lausn á þessu máli

For­sæt­is­ráð­herr­ann hefur tjáð sig um þá ákvörðun Íslenskrar erfða­grein­ingar að hætta að skima fyrir COVID-19 sjúk­dómnum.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Vegna þess hversu miklu þessi sam­vinna heil­brigð­is­yf­ir­valda og Íslenskrar erfða­grein­ingar (ÍE) skipti fyrir almanna­heill von­ast Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra til þess að þau finni lausn á „þessu máli og getum haldið áfram því verk­efni okkar að tryggja sem best heil­brigði þjóð­ar­innar“. Frá þessu greinir Katrín í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni rétt í þessu.

Kári Stef­áns­son for­stjóri ÍE greindi frá því í dag í opnu bréfi til Katrínar að frá og með deg­inum í dag myndi Íslensk erfða­grein­ing hætta öllum sam­skiptum við sótt­varna­lækni og land­lækni út af SAR­S-CoV-2. Síð­ustu sýnin sem þau myndu afgreiða væru þau sem ber­ast til þeirra mánu­dag­inn 13. júlí.

[adspot]

Finnst hugmyndin um faraldsfræðistofnun góð

[links]„Eins og kemur fram í bréf­inu sem ég sendi Kára er aug­ljóst að geta íslensks sam­fé­lags til að takast á við far­aldra eins og covid-19 þarf að vera meiri en hún er nú. Þess vegna tók ég vel í erindi hans um að koma á lagg­irnar sér­stakri far­alds­fræði­stofnun innan emb­ættis land­læknis – þar sem byggð yrði upp þekk­ing og reynsla til að takast á við far­aldra fram­tíðar. Mér finnst þetta reyndar mjög góð hug­mynd.

Enn­fremur að ákveðið hefði verið að ráða sér­stakan verk­efna­stjóra til að vinna áfram slíkar hug­myndir, til að efla inn­viði heil­brigð­is­kerf­is­ins til að takast á við far­aldra með hlið­sjón af til­lögu Kára. Slíkur und­ir­bún­ingur og fram­kvæmd tekur hins vegar alltaf ákveð­inn tíma og ég lagði því til að þær til­lögur myndu liggja fyrir eigi síðar en 15. sept­em­ber,“ skrifar Katrín.

Vonast til að geta leitað áfram til starfsfólks ÍE

Kári segir í opnu bréfi sínu að sér finn­ist að þessi vinna verði að ganga hraðar fyrir sig. Katrín seg­ist geta vel fall­ist á það sjón­ar­mið og „við munum gera okkar til þess að unnið verði eins hratt og örugg­lega fram­ast er kostur. Að sjálf­sögðu von­ast ég til þess að í þessu mik­il­væga verk­efni munum við áfram geta leitað til starfs­fólks ÍE vegna þeirrar þekk­ingar og reynslu sem þar er inn­an­dyra.“

Katrín segir enn fremur að fram­lag Íslenskrar erfða­grein­ingar í bar­átt­unni við COVID-19 sé ómet­an­legt. „Það vitum við öll og það verður seint full­þakkað. Án aðstoðar fyr­ir­tæk­is­ins hefði bar­áttan við far­ald­ur­inn orðið okkur miklu mun erf­ið­ari og þung­bær­ari.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár