Hverju mun nýr tónn í kjarabaráttunni áorka?

Nýir for­menn VR og Eflingar krefj­ast kerf­is­breyt­inga í íslensku efna­hags­lífi. Að hversu miklu leyti má búast við að þær kröfur nái fram að ganga?

Meðal stéttarfélaga sem breytt hafa um áherslur síðustu mánuði er VR, með Ragnar Þór Ingólfsson í fararbroddi.
Meðal stétt­ar­fé­laga sem breytt hafa um áherslur síð­ustu mán­uði er VR, með Ragnar Þór Ing­ólfs­son í far­ar­broddi. Mynd: www.vr.is

Kveðið hefur við nýjan tón í kjara­bar­áttu á Íslandi á und­an­förnum mán­uðum. Stétt­ar­fé­lög sem ná til þriðj­ungs vinnu­mark­aðs­ins á Íslandi hafa kraf­ist víð­tækra kerf­is­breyt­inga í íslensku efna­hags­lífi og boðað til átaka verði þeim ekki hrundið af stað. Hverjar yrðu afleið­ingar boð­aðra breyt­inga og við hverju ætti að búast ef til átaka kæmi milli stétt­ar­fé­laga ann­ars vegar og atvinnu­rek­enda og stjórn­valda hins vegar?

Í ávarpi sínu á verka­lýðs­deg­inum fyrsta maí boð­aði Sólveig Anna Jóns­dóttir, nýkjör­inn for­maður Eflingar, til bar­áttu fyrir miklum sam­fé­lags­breyt­ingum í sam­starfi við VR, Verka­lýðs­fé­lags Akraness og Fram­sýnar. Samkvæmt henni munu félögin meðal ann­ars krefj­ast launa­hækk­anna, breyt­inga á skatt­kerf­inu og „upp­stokkunnar“ í hús­næð­is­málum. Svipaðar áherslur mátti heyra hjá Ragnari Þór Ing­ólfs­syni, for­manni VR, sama dag, en í við­tali við frétta­stofu RÚV boð­aði hann til átaka sem „hafa ekki sést í ára­tugi“ verði kröfum stétt­ar­fé­lag­anna ekki mætt.

Breyttur tónn

Ummæli Ragnars og Sól­veigar á þriðju­dag­inn eru í takti við fyrri yfir­lýs­ingar þeirra sem, ásamt öðrum nýjum for­ystu­mönnum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, gagn­rýna fyrri stjórnir stétt­ar­fé­lag­anna fyrir aðgerð­ar­leysi. Samkvæmt þeim hafa stétt­ar­fé­lögin sofnað á verð­inum á sama tíma og mis­skipt­ing hefur farið vax­andi og öryggi verka­fólks á vinnu­mark­aði hefur minnkað. Til við­bótar við harð­ari yfir­lýs­ingar hefur nýleg ákvörðun kjara­ráðs um miklar kaup­hækk­anir emb­ætt­is­manna rík­is­ins auk hækk­unar á launum rík­is­for­stjóra aukið á spennu á vinnu­mark­aðnum svo um munar.

[links]Félags­menn VR, Eflingar, Verka­lýðs­fé­lags Akraness og Fram­sýnar eru sam­tals rúm­lega 66 þús­und tals­ins, eða um þriðj­ungur allra Íslend­inga á vinnu­mark­aði. Mögu­leiki er á að fleiri stétt­ar­fé­lög taki upp her­skárri stefnu í garð atvinnu­rek­enda, en kosið verður um nýja stjórn Alþýðu­sam­bands­ins í haust. Fari svo að fólk með svip­aðar áherslur og Ragnar og Sólveig taki for­ystu þar færi sá armur verka­lýðs­hreyf­ing­innar með umboð meiri­hluta vinnu­mark­aðs­ins, eða um 100.000 laun­þega. Þar sem fjöldi félags­manna er umtals­verður auk þess sem sjóðir Eflingar og VR eru í góðum málum er því ljóst að verk­falls­að­gerðir stétt­ar­fé­lag­anna gætu haft mikil áhrif á íslensk fyr­ir­tæki í vetur, ef af þeim verður.

Þar sem hætta á verk­falli stétt­ar­fé­lag­anna er raun­veru­leg og trú­verðug, hverju geta þau þá áorkað?[adspot]

Launaskriðið

Fyrst og fremst má vænta krónu­tölu­hækk­ana á launum félags­manna þegar kjara­samn­ingar renna út næstu ára­mót. Þessar hækk­anir, ásamt ákvæðum um bætt kjör starfs­manna á vinnu­stað, eru hinar hefð­bundnu leiðir stétt­ar­fé­lag­anna til að ná fram auknum tekju­jöfn­uði og slaka á spenn­una á vinnu­mark­aði.

Hins vegar, ef litið er á þróun síð­ustu ára virð­ist tekju­ó­jöfn­uður ekki vera stærsta vanda­málið sem íslenskir laun­þegar standa frammi fyrir í dag. Hag­fræð­ingar hafa bent á Gini-stuðul lands­ins, sem er lægstur allra OECD ríkja og hefur hald­ist lágur frá 2010. Enn fremur nefnir Við­skipta­ráð hátt launa­stig hér­lendis og til­tölu­lega lága fram­leiðni miðað við önnur lönd sem ástæðu þess að svig­rúm til launa­hækk­ana sé lítið. Hafi Við­skipta­ráð rétt fyrir sér er mikil hætta á að stór­felldar krónu­tölu­hækk­anir laun­þega yrðu verð­bólgu að bráð og myndu ekki skila sér í raun­veru­legum kjara­bótum.

Óöryggi á húsnæðismarkaði

Hækkun launa eru þó ekki einu breyt­ing­arnar sem for­ystu­fólk verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hafa boðað. Bæði Ragnar og Sólveig hafa talað fyrir umbreyt­ingu á hús­næð­is­mark­aðnum, þar sem ótækt sé að lág­tekju­hópar geti ekki gengið að öruggu hús­næði. Vís­bend­ingar um vax­andi óör­yggi laun­þega á hús­næð­is­mark­aði má finna í nýrri úttekt Íbúða­lána­sjóðs, en þar segir að hækkun hús­næð­is­verðs síð­ustu ára auk fækk­unar á félags­legum íbúðum hafi leitt til þess að staða leigj­enda hafi farið versn­andi.

Meðal leiða sem for­ystu­menn VR og Eflingar hafa nefnt til að stemma stigu við þessa þróun er fjölgun félags­legra íbúða, en einnig vaxta­lækk­anir, laga- og skatt­kerf­is­breyt­ingar auk aðgerða gagn­vart verð­tryggðum lánum. Slíkar kröfur eru víð­tæk­ari en áður hefur sést hjá verka­lýðs­hreyf­ing­unni og krefð­ust beinna samn­inga við stjórn­völd og jafn­vel Seðla­bank­ann. Í þessu til­viki yrði farið út fyrir hefð­bundnar átaka­línur milli launa­fólks og atvinnu­rek­enda með slíkum kerf­is­breyt­ingum og þrýst­ingur settur á rík­is­stjórn­ina til að fara að kröfum stétt­ar­fé­lag­anna.

Aftur á móti er óvíst hversu miklar kröfur félögin geta sett fram í þessum málum. Ekki ein­ungis myndu boð­aðar breyt­ingar reyna á póli­tísk áhrif stétt­ar­fé­lag­ana og sjálf­stæði Seðla­bank­ans, heldur yrði einnig erf­ið­ara að beita verk­falls­vopni þeirra gegn stjórn­völdum með jafn­mark­vissum hætti og í hefð­bund­inni kjara­bar­áttu. Stjórn­völd virð­ast að sama skapi ekki lík­leg til að ganga að kröfum stétt­ar­fé­lag­anna, en Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra gaf lítið fyrir skæru­verk­falls­yf­ir­lýs­ingar Ragnars Þórs í kvöld­fréttum Stöðvar 2 á mið­viku­dags­kvöldið.

Mest í heimi

Samkvæmt tölum Alþjóða­vinnu­mála­stofn­un­ar­innar (ILO) kemst ekk­ert land í heimi nálægt Íslandi í fjölda laun­þega sem eiga aðild að stétt­ar­fé­lögum. Ólíkt öðrum Vest­ur­löndum hafa ítök félag­anna einnig auk­ist á síð­ustu árum, en árið 2016 náði hlut­fall félags­bund­inna ein­stak­linga til 90% vinnu­mark­aðs­ins, til sam­an­burðar við 50-65% í Skand­in­avíu. Samhliða þessu er póli­tískt vægi félag­anna í kjara­bar­áttu meira hér en ann­ars staðar, þar sem boðuð verk­föll hefðu alvar­legri afleið­ingar.

Með breyttum áherslum nýrra for­ystu­manna innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hafa kröfur þeirra orðið harð­ari en áður. Einnig, þar sem helsta ógn við kjör lág­tekju­fólks liggur frekar í óör­yggi á hús­næð­is­mark­aði heldur en mis­skipt­ingu tekna, hafa stétt­ar­fé­lögin róið á ný mið og krefj­ast nú víð­tækra kerf­is­breyt­inga í stað ein­ungis launa­hækk­ana sinna félags­manna. En þrátt fyrir mikil ítök og harð­ari áherslur er óvíst hversu langt stétt­ar­fé­lögin ná með kröfur sínar um alls­herj­ar­kerf­is­breyt­ingar við stjórn­völd. Svarið við því mun lík­lega fást í vetur þegar ný stjórn ASÍ verður kosin og kjara­samn­ingar renna út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár