Notre Dame og pólitíkin

Baráttan vegna for­seta­kosn­ing­anna í Frakk­landi í apríl á næsta ári er hafin og öll vopn dregin fram. Emmanuel Macron for­seti er sak­aður um að vilja gjör­breyta kirkju­skipi Notre Dame að innan. Kirkjan skemmd­ist mikið í eldi árið 2019.

Bruninn í Notre Dame kirkj­unni 15. apríl 2019 var einn af stór­við­burðum árs­ins. Fólk víða um heim fylgd­ist, á sjón­varps­skjánum, þegar þetta stóra guðs­hús, eitt þekktasta kenni­leiti Parísar, varð eld­inum að bráð. Fjöl­margir íbúar Parísar, með tárin í aug­unum, fylgd­ust klukku­stundum saman með bar­áttu slökkvi­liðs­ins við eld­inn.

Eldurinn kom upp í þaki kirkj­unnar þar sem unnið var að við­gerðum og breidd­ist hratt út. Fljót­lega varð slökkvi­lið­inu ljóst að það fengi lítt við eld­inn ráðið og ein­beitti sér að því að verja turn­ana tvo á fram­hlið kirkj­unnar og bjarga þeim fjöl­mörgu verð­mætu gripum sem í kirkj­unni voru. Miklu tókst að bjarga, þar á meðal gull­húð­aðri þyrni­kór­ónu. Sú er sögð geyma leifar úr þyrni­kór­ónu Krists, sem hann bar á kross­inum.

Blýið og turnspíran

Notre Dame, eða Mar­íu­kirkjan eins og hún er iðu­lega nefnd á íslensku, var byggð á árunum 1163 -1345. Turn­arnir tveir og allir útveggir kirkj­unnar, sem er 4.800 fer­metrar, að inn­an­máli, eru úr steini en þak­hvelf­ingin úr timbri og þakið klætt blýi. Eitt af ein­kennum kirkj­unnar var 93 metra há turn­spíra úr timbri. Hún var reist á árunum 1844 -1849 þegar miklar, og á sínum tíma umdeildar, við­gerðir fóru fram á kirkj­unni.

[adspot]Burð­ar­virki þaks­ins, ásamt turn­spírunni gjör­eyði­lagð­ist í eld­inum og sömu­leiðis blý­klæðn­ingin á þak­inu og turn­spírunni. Um 400 tonn af blýi voru í klæðn­ing­unni. Fljót­lega eftir brun­ann kom í ljós að fjöl­margir íbúar í nágrenni kirkj­unnar og menn sem unnu að við­gerðum höfðu fengið blý­eitrun. Vinna við kirkj­una var um tíma stöðvuð vegna þessa. Um tíma var ótt­ast að veggir kirkj­unnar kynnu að hrynja en það gerð­ist ekki.

Viðgerðir og endurbygging

Sama dag og brun­inn varð lýsti Emmanuel Macron for­seti Frakk­lands því yfir að kirkjan yrði end­ur­byggð. Hann sagði að það myndi kosta mikið fé en vanda yrði til verka og að verkið myndi taka nokkur ár, hugs­an­lega all­mörg. Byrja yrði á sjálfu hús­inu, veggjum og þaki, áður en skipu­lag inn­an­dyra í kirkju­skip­inu sjálfu yrði ákveðið. For­set­inn viðr­aði líka hug­myndir um nýtt útlit turn­spírunnar, í takt við tím­ann, eins og hann komst að orði. Slíkar hug­myndir fengu dræmar und­ir­tektir og bent á að kirkjan væri á heimsminja­skrá Sam­ein­uðu þjóð­anna og því kæmu miklar breyt­ingar, að minnsta kosti að utan, vart til greina.

Ekki kom annað til greina en að turn­spíran yrði á sínum stað. Margar hug­myndir komu hins­vegar fram um hvernig hún skyldi líta út. Fljótt kom þó í ljós að almenn­ingur í Frakk­landi tæki ekki annað í mál en að spíran yrði eins og hún var áður. Margir sér­fræð­ingar höfðu mælt með að burð­ar­virkið yrði gert úr stáli, þær hug­myndir mælt­ust illa fyrir.

Á end­anum var ákveðið að spíran og burð­ar­virki þaks­ins yrðu úr tré, á sama hátt og gert var á sínum tíma. Í kjöl­far þeirrar ákvörð­unar hófst leit að heppi­legum trjám víða um Frakk­land. Að lokum fund­ust nægi­lega mörg 1.000 ára gömul eik­ar­tré sem notuð verða í burð­ar­virki og spíru.

Hugmyndir um breytingar innandyra

Umræða um breyt­ingar inn­an­dyra í kirkju­skip­inu var löngu hafin áður en brun­inn varð. Margir kirkj­unnar menn höfðu lýst sig fylgj­andi slíkum breyt­ingum. Í kirkj­unni eru 14 kapellur með skrifta­stólum og rætt hefur verið um að fjar­lægja þá úr sex eða sjö kapell­anna, þeir eru nú á dögum mjög lítið nýttir. Sömu­leiðis hafa verið uppi hug­myndir um að ein­falda skreyt­ingar á altörum í kapell­unum, fækka eða fjar­lægja stóra kerta­stjaka og styttur sem gerðar voru á nítj­ándu öld. Stytt­urnar gerði Viollet-le-Duc en hann var arki­tekt og umsjón­ar­maður breyt­ing­anna sem gerðar voru á kirkj­unni á nítj­ándu öld. Hug­myndir kirkj­unnar manna eru enn­fremur að skipta hluta kirkju­bekkj­anna út fyrir stóla. Í álits­gerð presta og kenni­manna, sem kynnt var í síð­ustu viku, var minnst á hugs­an­legt sýn­inga­hald í kirkj­unni en fyrir brun­ann komu þangað árlega um 12 millj­ónir manna, ferða­menn og Par­ís­ar­búar.

Kosningatitringur

For­seta­kosn­ingar fara fram í Frakk­landi í apríl á næsta ári. Emmanuel Macron for­seti hyggst gefa kost á sér á ný en hann verður ekki sjálf­kjör­inn. Meðal þeirra sem vel geta hugsað sér hús­bónda­stól­inn í Élýsée höll­inni er hægri rót­tæk­ling­ur­inn Éric Zemmour. Í opnu bréfi í frönsku dag­blaði sak­aði hann for­set­ann um að ætla sér að gjör­breyta Notre Dame. „Ég elska menn­ingu okkar og get þess vegna ekki þagað yfir þess­ari hræði­legu til­raun til að skemma eina mest heim­sóttu bygg­ingu heims, mið­punkt krist­in­dóms­ins og tákn þjóð­ar­innar,“ segir í bréf­inu.

Í bréf­inu vísar Éric Zemmour til hug­mynd­anna sem kynntar voru í síð­ustu viku. For­seta­fram­bjóð­and­inn til­von­andi er ekki einn um þessa gagn­rýni. Þekktur franskur arki­tekt, Maurice Culot sagði í við­tali við breska blaðið Daily Tel­egraph að sér lit­ist illa á hug­myndir um að hleypa Disney inn í Notre Dame. „Hverjum dytti í hug að gera slíkar breyt­ingar á Westminster Abbey eða Pét­urs­kirkj­unni í Róm? Engum. Að gera Notre Dame að skemmti­garði er barna­legt og lág­kúru­legt.“ Rétt er að taka fram að engar ákvarð­anir um breyt­ingar inn­an­dyra hafa verið teknar. Emmanuel Macron for­seti hefur lagt mikla áherslu á að fram­kvæmdum verði hraðað. Hann vill gjarnan að öllum við­gerðum á kirkj­unni, utan dyra og innan, verði lokið þegar Ólymp­íu­leik­arnir árið 2024 fara fram í París.

Victor Hugo, Maríukirkjan og Quasimodo

Þótt það teng­ist ekki brun­anum í Notre Dame er við hæfi að minn­ast aðeins á hina frægu bók Victor Hugo Mar­íu­kirkj­una í París, sem einnig er iðu­lega kölluð Hringj­ar­inn frá Notre Dame. Bókin var skrifuð 1831 og er meðal þekkt­ustu verka höf­und­ar­ins. Nokkrar kvik­myndir (sú fyrsta árið 1939) leik­rit og söng­leikir sem byggja á sög­unni hafa verið gerðar í gegnum árin. Hringj­ar­inn í kirkj­unni, kropp­in­bak­ur­inn Quasimodo, er ein af lyk­il­per­sónum sög­unnar, og án efa sú þekktasta í hugum margra.

Lengi vel var talið að kropp­in­bak­ur­inn hafi verið hug­ar­fóstur Victor Hugo eins og aðrar per­sónur sög­unnar.

Æviminningarnar á háaloftinu

Fyrir 22 árum fannst á háa­lofti í Penzance á Cornwall hand­rit, í sjö bindum, að æviminn­ingum manns að nafni Henry Sibson. Hann var mynd­skeri og hafði verið feng­inn til að gera við eitt og annað í Notre Dame á sama tíma og Victor Hugo vann að und­ir­bún­ingi sög­unnar um Hringjar­ann í Notre Dame. Handrit Henry Sibson var komið í geymslu á safni í Bret­landi en árið 2010 fór Adrian Glew, sér­fræð­ingur á safn­inu að fletta í hand­riti Henry Sibson, sem er mjög ítar­legt, og rak augun í nokkuð sem honum þótti athygl­is­vert. Henry Sibson segir frá því að í Notre Dame hafi, á sama tíma og hann var þar, unnið stein­höggv­ari með herða­kistil. Kropp­in­bak­ur­inn er aldrei nefndur með nafni, Henry Sibson segir frá „le bossu“ og Adrian Glew segir engan vafa­leika á um að „le bossu“ sé fyr­ir­mynd hringjar­ans Quasimodo.

Í lokin má geta þess að í hand­riti Henry Sibson er enn­fremur lýst öðrum manni sem líka vann að við­gerðum í kirkj­unni sam­tímis Henry Sibson. Sá hét Trajan, og lík­ist mjög Jean Valjean, aðal­per­són­unni í bók Victor Hugo, Ves­al­ing­unum. Í frum­drögum að sög­unni heitir aðal­per­sónan Trajan, eins og vinnu­fé­lagi Henry Sibson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár