Stjórn Félags leigjenda hjá Félagsbústöðum gagnrýnir rekstur Félagsbústaða

Stjórn Félags leigj­enda hjá Félags­bú­stöðum segir vonda fjár­mála­stjórn Félags­bú­staða aðeins hluti vand­ans. Hún gagn­rýnir að Félags­bú­staðir hafi hagað sér eins og leigu­fé­lag á almennum mark­aði.

Írabakki
Írabakki Mynd: Aðsend mynd

Stjórn Félags leigj­enda hjá Félags­bú­stöðum krefst þess að fyr­ir­komu­lag útleigu á félags­legu hús­næði í Reykja­vík verði end­ur­skoðuð; starfs­að­ferðum breytt, við­mót lagað og að leigj­endur hjá Félags­bú­stöðum og sam­tök þeirra verði höfð með í ráðum við þá end­ur­skoðun. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá stjórn Félags leigj­enda hjá Félags­bú­stöðum.

Stjórnin gagn­rýnir Félags­bú­staði fyrir að hegða sér eins og leigu­fé­lag á almennum mark­aði og segir það hlut­verk Félags­bú­staða að vera skjól fyrir þau sem ekki geta leigt á hinum svo­kall­aða almenna mark­aði. Í yfir­lýs­ing­unni kemur fram að léleg fjár­mála­stjórn Félags­bú­staða sé aðeins eitt merki um vondan rekstur. „Það er mat stjórnar Félags leigj­enda hjá Félags­bú­stöðum að vonda fjár­mála­stjórn, jafnt sem lélega þjón­ustu við leigj­endur og slæmt við­mót, megi rekja til þess að Félags­bú­staðir voru ekki stofn­aðir til að halda utan um góða félags­lega þjón­ustu heldur til að verða eins og hvert annað leigu­fyr­ir­æki á mark­aði, sams­konar fyr­ir­tæki og þeir leigj­endur sem sækja um félags­legt hús­næði á vegum borg­ar­innar eru að flýja,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Stjórn Félags leigj­enda hjá Félags­bú­stöðum seg­ist fagna því að stefnt sé að end­ur­skoða rekstur félags­ins og fram­komu þess gagn­vart leigj­endum en segir ljóst að rót­tækra aðgerða sé þörf til að byggja upp traust milli leigj­enda félags­legs hús­næðis í Reykja­vík og borg­ar­innar og stofn­ana hennar.

„Félag leigj­enda hjá Félags­bú­stöðum krefst þess að leigj­endur félags­legs hús­næðis á vegum Reykja­víkur komi að end­ur­skoðun kerf­is­ins og að leigj­endur verði í fram­tíð­inni hluti af stjórnum þeirra félaga sem leigi út félags­legt hús­næði Reykja­vík­ur­borgar. Aðeins með þeim hætti verður tryggt að Félags­bú­staðir haldi tryggð við erindi sitt, sem er fyrst og fremst að tryggja sem flestum borg­ar­búa öruggt og ódýrt hús­næði og góðan val­kost við hinn grimma óbeisl­aða hús­næð­is­markað.“ segir jafn­framt í til­kynn­ing­unni.

Félagsbústaðir endurskoða starfsemi sína

Í frétta­til­kynn­ingu frá Félags­bú­stöðum sem send var út í gær kom fram að stjórn Félags­bú­staða hefði ákveðið að ráð­ast í gagn­gerar end­ur­bætur á starf­semi og innra eft­ir­liti félags­ins í kjöl­far úttektar sem gerð var vegna umfram­kostn­aðar við end­ur­bætur á 53 íbúðum Félags­bú­staða við Írabakka í Reykja­vík.

Skýrsla Innri end­ur­skoð­unar á við­halds­verk­efni Félags­bú­staða við Írabakka 2-16 á árunum 2012 til 2016 var nýlega kynnt fyrir stjórn og komu þar fram alvar­legar athuga­semdir við stjórn­arhætti í tengslum við umrætt verk­efni. Úttektin leiddi í ljós að fram­kvæmdir á Írabakka fóru 330 millj­ónir króna umfram þær heim­ildir sem stjórnin veitti á fram­kvæmda­tím­anum. Heild­ar­kostn­að­ur­inn nam 728 millj­ónum króna sem þýðir að fram­kvæmdin fól í sér 83 pró­sent fram­úr­keyrslu. Úttektin leiddi í ljós að skerpa þurfi á verk­ferlum og setti Innri end­ur­skoðun Reykja­víkur fram marg­vís­legar ábend­ingar um hvernig bæta megi innra eft­ir­lit Félags­bú­staða.

Í til­kynn­ing­unni kom fram að stjórn Félags­bú­staða teldi ábend­ingar Innri end­ur­skoð­unar gagn­legar og hefur stjórnin sam­þykkt að vinna að úrbótum í sam­ræmi við þær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár