Nennir ekki að VG og Framsókn verði „enn og aftur“ með „öll spil á hendi“

Formaður Við­reisnar sagði í hlað­varps­þætti að hún skildi sjón­ar­mið Sam­fylk­ingar um að úti­loka sam­starf við Miðflokk og Sjálf­stæð­is­flokk. Hún vill þó ekki að VG og Framsókn verði enn á ný með öll spil á hendi við myndun næstu rík­is­stjórnar.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar segir að hún vilji ekki úti­loka stjórn­ar­sam­starf með neinum flokki fyrir kosn­ing­arnar síðar á árinu, meðal ann­ars vegna þess að hún nennir ekki að „það verði enn og aftur alltaf bara Vinstri græn og Framsókn sem sitji eftir með öll spil á hendi.“

Þetta sagði Þor­gerður Katrín í við­tali í hlað­varps­þætt­inum Ein pæl­ing, sem birt­ist á hlað­varpsveitum á sunnu­dag.

„Ég skil mjög vel þegar Sam­fylk­ingin og Logi vinur minn eru búin að segja að þau vilji ekki vinna með Mið­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokknum. Ég skil alveg þessa nálgun, út frá mörgum sjón­ar­hornum, en ég ætla heldur ekki að leyfa mér að fara frá því að ein­blína á mál­efnin, og síðan er hitt: Ég nenni ekki að það verði enn og aftur alltaf bara Vinstri græn og Framsókn sem sitji eftir með öll spil á hendi eftir yfir­lýs­ingaglaða for­menn ann­arra flokka,“ sagði Þor­gerður Katrín í þætt­inum.

„Pínulítil útópía“ í sumu sem sósíalistar segja

Þor­gerður Katrín var spurð sér­stak­lega að því hvort hún gæti hugsað sér að fara í sam­starf með Sós­í­alista­flokknum og úti­lok­aði þau ekki frekar en aðra flokka, þrátt fyrir að á henni væri að heyra að hug­mynda­fræði­legur grund­völlur fyrir slíku sam­starfi væri ekki mik­ill.

[adspot]

„Það er sama svarið. Ég horfi á þau og það sem þau eru að segja, sumt er fal­legt og sumt er eitt­hvað sem ég ætti erfitt með að sam­þykkja og er pínu­lítil útópía, finnst mér. En það er fullt af fínu fólki þarna,“ sagði for­maður Við­reisnar, sem heldur öllu opnu fyrir kom­andi kosn­ingar.

Svaraði fyrir kúlulán og afskriftir

Þátt­ar­stjórn­endur spurðu Þorgerði Katrínu um það í upp­hafi við­tals­ins hvernig hún myndi svara ungri mann­eskju sem segði að kúlu­lán og afskriftir til eig­in­manns hennar, sem starf­aði hjá Kaup­þingi fyrir hrun, kæmu í veg fyrir að umrædd mann­eskja gæti hugsað sér að kjósa Viðreisn.

Þor­gerður Katrín sagð­ist ekki verða „vör við nákvæm­lega þessar pæl­ingar hjá ungu fólki“ en að hún teldi „heil­brigt og jákvætt að fólk sé að velta fyrir sér for­tíð­inni,“ án þess að fest­ast í henni.

„Ég hef farið í end­ur­skoðun, end­ur­mat, end­ur­menntun með sjálfa mig, hvernig maður horfir á þennan tíma,“ sagði Þor­gerður Katrín, sem sagð­ist aldrei hafa skor­ast undan að svara fyrir lán sem eig­in­maður hennar, Kristján Arason, fékk til þess að kaupa hluta­bréf í Kaup­þingi er hann starf­aði þar. Þau mál væru öll upp­gerð.

Þor­gerður Katrín sagði að stóra málið væri hin póli­tíska ábyrgð. „Ég steig til hliðar á meðan að rann­sókn­ar­skýrsla Alþingis var samin og unnin. Ég taldi það mik­il­vægt. Ég kom inn í þingið aftur og svo hætti ég í póli­tík 2013 af því að ég taldi að ef ég ætti að vilja vera áfram í póli­tík þyrfti ég ein­fald­lega að setj­ast niður með sjálfri mér og horfa til baka og hugsa: Hvernig get ég lært að þessu?“ sagði Þor­gerður Katrín og bætti síðan við að sumt sem hefði verið við­haft og sagt um þessi mál hefði ekki verið rétt.

Þor­gerður Katrín sagði að hún hefði ekki talið sér stætt að halda áfram árið 2013, til þess væri hún ekki með trú og traust hjá almenn­ingi. „Ég ákvað að hætta í póli­tík, meðal ann­ars út af þessu.“

Síðan hefði hún sótt sér end­ur­nýjað umboð og end­ur­nýjað traust árið 2016 er Viðreisn fór fram og ein­sett sér að gera ekki sömu hlut­ina á ný, til að þurfa ekki að upp­lifa aftur svip­aða hluti í póli­tík.

Langar að skamma verkalýðshreyfinguna og SA fyrir að pæla ekki í krónunni

Í við­tal­inu sagði Þor­gerður Katrín að efna­hags­málin yrðu aðal­á­herslu­málið fyrir kom­andi kosn­ingar og að ræða þyrfti íslensku krón­una. Hún sagð­ist hafa upp­lifað að vera komin inn í eins konar berg­máls­helli eins og hafi verið hér á landi fyrir efna­hags­hrunið 2008 þegar hún átti orða­stað við Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um gjald­mið­ils­mál í þing­inu í síð­ustu viku.[links]

For­sæt­is­ráð­herra sagð­ist þá ekki vera hissa á því að Þor­gerður Katrín kæmi í ræðu­stól Alþingis og tal­aði niður krón­una, því það væri „auð­vitað hluti af stefnu stjórn­mála­flokks hennar.“

„Þegar ráð­herrar eru byrj­aðir að tala um að það megi ekki tala niður gjald­mið­il­inn þá finnst mér ég vera komin í eitt­hvað „echo chamber“ frá fyrir hruns-tíma. Það má ekki eyði­leggja partýið,“ sagði Þor­gerður Katrín, sem sjálf var einmitt gagn­rýnd fyrir að hafa sem ráð­herra skellt skolla­eyrum við var­úð­ar­röddum að utan í aðdrag­anda falls íslenska banka­kerf­is­ins.

Hún sagði hafa verið farið „mjög óvar­lega“ hér á landi í aðdrag­anda efna­hags­hruns­ins, þó ekki mætti draga dul á að fall Lehman Brothers og fleiri erlendir áhrifa­þættir hefðu komið á óvart og vegið þungt. Sem betur fer væri búið að gera miklar breyt­ingar á banka­kerf­inu. En gjald­mið­ill­inn væri stórt mál sem þyrfti að ræða fyrir kom­andi kosn­ingar.

„Mig langar að skamma verka­lýðs­hreyf­ing­una núna fyrir að vera ekki með þetta mál á sinni dag­skrá og líka Samtök atvinnu­lífs­ins [...]. Þetta er risa­hags­muna­mál fyrir íslenskan almenn­ing, að hann sitji ekki eftir með áhætt­una af íslensku krón­unni,“ sagði Þor­gerður Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár