Stóra samgöngubótin

Fyrir tæpum tutt­ugu árum full­yrti danskur þing­maður, í umræðum í þing­inu, að fyrir miðja öld­ina yrði komin veg­teng­ing yfir Kattegat, milli Sjálands og Jótlands. Kolleg­arnir í þing­inu hlógu að þessum orðum, það gera þeir ekki lengur.

Þótt þing­menn­irnir á danska þing­inu, Fol­ket­inget, hafi skellt uppúr þegar félagi þeirra ræddi um Kattegat-teng­ing­una, eins og hann orð­aði það, vöktu orð hans eigi að síður athygli. Ekki bara á þing­inu því danskir fjöl­miðlar greindu frá þessum orðum þing­manns­ins. Í kjöl­farið birt­ust í miðl­unum vanga­veltur um hvernig þess­ari teng­ingu yrði háttað, ekki síst hvar „upp­hafs- og enda­punkt­arnir“ yrðu. Málið var sömu­leiðis viðrað á fundum þing­flokka og flestir úr hópi þing­manna lýstu sig sam­þykka því að þessi hug­mynd, sem þeim virt­ist í fyrstu allt að því frá­leit, yrði skoðuð betur.

Rétt er að hafa í huga að þegar þing­mað­ur­inn nefndi fyrst Kattegat-teng­ing­una voru ein­ungis örfá ár síðan Stóra­belt­is­brúin milli Sjálands og Fjóns var tekin í notkun og fæstir leiddu hug­ann að því að þörf yrði á að tengja beint saman Sjáland og Jótland.

Flestir lýstu sig samþykka

Vorið 2007 kom Kattegat-teng­ingin til umræðu í þing­inu. Mikill meiri­hluti þing­manna lýsti yfir stuðn­ingi við að hafin yrði skipu­leg athugun varð­andi hugs­an­lega fram­kvæmd. Kostn­aður, stað­setn­ing, þörfin fyrir slíka teng­ingu og margt fleira. Í umræðum í þing­inu var rifjað upp að mörgum árum fyrr fóru danskir og sænskir stjórn­mála­menn að tjá sig um nauð­syn ann­arrar teng­ingar milli Dan­merkur og Sví­þjóðar, til við­bótar Eyr­ar­sunds­brúnni sem tekið var í notkun árið 2000.

Helsingjaeyri, Helsingjaborg og Kattegat

Þegar danskir þing­menn ræddu um Kattegat-teng­ing­una vorið 2007 höfðu sjónir stjórn­mála­manna og sér­fræð­inga fyrir þann tíma fyrst og síð­ast beinst að Hels­ingja­eyri Dan­merk­ur­megin og Hels­ingja­borg Sví­þjóð­ar­megin í því skyni að bæta sam­göngur milli land­anna. Fjar­lægðin milli þess­ara tveggja borga við Eyr­ar­sund norð­an­vert er tæpir 5 kíló­metrar. Margoft hafði verið rætt um að tengja þessar tvær borgir saman með göngum. Kostn­að­ur­inn var alltaf stóra hindr­unin. Nýleg tækni, að leggja göng (risa­hólk) á sjáv­ar­botn­inn, er aftur á móti bæði ein­fald­ari og ódýr­ari en að bora.

Þótt teng­ing á milli Hels­ingja­eyrar og Hels­ingja­borgar myndi létta á umferð um Eyr­ar­sunds­brúna myndi slík teng­ing stór­auka umferð suður Sjáland og yfir Stóra- og Litla­belti. Umferð um þessar brýr er mjög mikil og talið að eftir til­tölu­lega fá ár, kannski 15-20 verði Stóra­belt­is­brúin full­nýtt, hún anni þá ekki meiri umferð. Þess má geta að Stóra­belt­is­brúin, eins og teng­ingin er ætíð kölluð, er 17 kíló­metra löng og sam­anstendur af tveim brúm, göngum og upp­byggðum vegi. Tenging milli Sjálands og Jótlands yrði miklu lengri, hve miklu lengri færi eftir stað­setn­ing­unni. Allt þetta bland­að­ist inn í Kattegat­sum­ræð­una í danska þing­inu.

Nið­ur­staða þings­ins var sú að hefja þegar í stað það sem þing­menn köll­uðu hænu­fet í und­ir­bún­ingi. Sem sé að sam­göngu­nefnd þings­ins hæfi þegar í stað vinnu við mat á hugs­an­legri fram­kvæmd, þeirri vinnu skyldi lokið á nokkrum mán­uðum, fyrir haustið 2007. Nið­ur­staða nefnd­ar­innar var að rétt væri að setja af stað und­ir­bún­ings­vinnu, sem fyr­ir­séð var að yrði bæði flókin og tíma­frek. Sú und­ir­bún­ings­vinna fór þegar af stað á vegum sam­göngu­ráðu­neyt­is­ins, banka­hrunið 2008 tafði vinn­una nokkuð en nefnd ráðu­neyt­is­ins skil­aði áliti, meðal ann­ars grófri kostn­að­ar­á­ætlun, um ára­mót 2010-2011.

Til að gera langa sögu stutta lagði þáver­andi sam­göngu­ráð­herra allar fyr­ir­ætl­anir um Kattegat-teng­ingu á hill­una snemma árs 2011. Ekki voru allir þing­menn sáttir við þessa ákvörðun en fátt gerð­ist næstu miss­erin og engar línur lagðar. Danska vega­mála­stofn­unin vann þó, með sam­þykki þings­ins, ýmis konar und­ir­bún­ings­vinnu, einkum varð­andi stað­ar­val hugs­an­legrar teng­ingar, eins og það var kallað.

Tímamót

Árið 2018 tók danska þingið ákvörðun um að setja kraft í und­ir­bún­ings­vinnu við hugs­an­lega teng­ingu milli Sjálands og Jótlands. Þar með var í raun búið að ákveða að ráð­ast í þetta verk­efni sem fyr­ir­séð var að yrði stærsta og kostn­að­ar­samasta sam­göngu­verk­efni sem Danir hefðu ráð­ist í. Kostn­að­ur­inn myndi að tals­verðu leyti fara eftir stað­ar­val­inu. Ef ráð­ast þyrfti í miklar vega­fram­kvæmdir beggja vegna sunds­ins myndi það hleypa kostn­að­inum upp. Þingmenn lögðu áherslu á nauð­syn þess að hratt yrði unnið og við það miðað að fyrir árs­lok 2020 yrðu línur farnar að skýr­ast. Það gekk eftir og þá var ákveðið að Vega­mála­stofn­unin skyldi leggja fram ákveðna til­lögu um stað­ar­valið og enn­fremur grófa kostn­að­ar­á­ætlun. Miðað skyldi við að þess­ari vinnu yrði lokið í árs­lok 2021. Sú áætlun stóðst ekki en til­laga Vega­mála­stofn­unar og sam­starfs­að­ila hennar hefur nú litið dags­ins ljós.

46 kílómetrar og Samsø klofin í tvennt

Þótt nokkrir mögu­leikar varð­andi stað­setn­ingu teng­ing­ar­innar hafi verið ræddir varð nið­ur­staðan sú að Sjá­lands­megin skyldi lagt út nálægt Kalund­borg, yfir suð­ur­hluta Samsø og komið á land Jót­lands­megin við smá­bæ­inn Hov (líka skrifað Hou) fyrir austan Horsens. Leiðin er sam­tals 46 kíló­metrar, sundið milli Sjálands og Samsø er 19 kíló­metrar, yfir eyj­una 9 kíló­metrar og sundið frá Samsø til Jótlands 20 kíló­metrar. Gróf kostn­að­ar­á­ætlun hljóðar uppá 110 millj­arða danskra króna (rúma 2100 millj­arða íslenska) miðað við brú og upp­byggðan veg, fyrir bíla og járn­brautir. Vega­mála­stofn­unin setti fram tvo mögu­leika, sem velja þarf á milli en báðir gera ráð fyrir að farið verði um suð­ur­hluta Samsø.

Íbúar Samsø (tæp­lega 4 þús­und) höfðu vonað að önnur leið en sú að fara um eyj­una yrði fyrir val­inu og margir eru mjög ósáttir. Segja eyj­una ein­hverja helstu úti­vistar­perlu í land­inu, einkum suð­ur­hlut­ann. Í við­tali við danska útvarpið, DR, sögðu tals­menn íbú­anna að þeir myndu gera allt sem þeir gætu til að koma í veg fyrir að til­laga Vega­mála­stofn­un­ar­innar næði fram að ganga.

Þess má í lokin geta að áætl­anir Vega­mála­stofn­un­ar­innar gera ráð fyrir að teng­ingin, sem verður að hluta fjár­mögnuð með veggjaldi, kom­ist í gagnið árið 2035.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár