Viðbrögð við COVID-19 í hnotskurn

Stjórn­völd víða um heim hafa gripið til var­úð­ar­ráð­staf­ana vegna útbreiðslu nýju kór­ónu­veirunnar. Ferða­tak­mark­anir eru í gildi, á þriðja tug ríkja hafa ákveðið að loka skólum og versl­anir og marg­vís­leg önnur þjón­ustu­fyr­ir­tæki hafa skellt í lás.

Ferða­bann milli Evrópu og Banda­ríkj­anna sem Donald Trump Banda­ríkja­for­seti til­kynnti um í nótt hefur vakið bæði reiði og ringul­reið beggja vegna Atl­ants­hafs­ins. Bannið nær til allra Schengen-ríkj­anna, þar með talið Íslands, og mun standa í einn mánuð. Bannið mun hafa víð­tæk áhrif á efna­hag og sam­fé­lag margra ríkja, m.a. Íslands.

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins gaf út yfir­lýs­ingu í morgun þar sem við­brögð Banda­ríkja­for­seta voru for­dæmd. Á sama tíma eru þó mörg Evr­ópu­lönd að grípa til harðra aðgerða, meðal ann­ars ferða­tak­mark­ana. Danmörk og Ítalía hafa gengið hvað lengst.

„Kór­ónu­veiran er alþjóð­leg vá sem tak­markast ekki við neina heims­álfu. Hún þarfn­ast sam­vinnu í stað ein­hliða aðgerða,“ sagði í yfir­lýs­ingu fram­kvæmda­stjórn­ar­innar. „Evr­ópu­sam­bandið er ósátt við þá stað­reynd að ákvörðun Banda­ríkj­anna um að setja á ferða­bann hafi verið tekin ein­hliða og án sam­ráðs.“

Ferða­bannið nær til allra Schengen-land­anna og virð­ist ekki taka til­lit til fjölda smita í ein­stökum löndum. Þannig eru til dæmis Bretland og Írland und­an­þegin bann­inu.

Tug­þús­undir Banda­ríkja­manna sem staddir eru í Evrópu klór­uðu sér í höfð­inu er þær vökn­uðu í morgun og sáu fréttir um ferða­bannið. Margt er enn á huldu um hvernig tak­mark­an­irnar verða útfærðar og ótt­ast fólk að flug­ferðir verði nú felldar niður í stórum stíl. Staða flug­fé­laga, hót­ela og fleiri ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja er einnig óljós en greinin hafði þegar orðið fyrir miklum skakka­föllum síð­ustu daga vegna ferða­tak­mark­ana innan Evrópu.

En Banda­ríkja­menn eru langt í frá þeir einu sem vökn­uðu undr­andi og ringl­aðir í morgun. Stjórn­völd í sífellt fleiri ríkjum hafa gripið til hertra aðgerða til að reyna að hefta og hægja á útbreiðslu nýju kór­ónu­veirunnar.

  • Í dag hafa greinst smit hjá yfir 124 þús­und manns víða um heim. Dauðs­föll af völdum veiru­sýk­ing­ar­innar eru komin yfir 4.600. Tæplega 81 þús­und hafa sýkst í Kína og þar í landi hafa tæp­lega 3.200 lát­ist. Far­ald­ur­inn virð­ist hins vegar í rénun í land­inu.
  • Utan Kína hafa lang­flest dauðs­föllin verið á Ítalíu eða 827. Þar hafa yfir 12.400 manns sýkst og gjör­gæslu­deildir eru yfir­fullar af lífs­hættu­lega veiku fólki. Í Íran hafa meira en 9.000 smit verið greind og yfir 350 hafa dáið. Í Suður-Kóreu, þar sem far­ald­ur­inn breidd­ist út snemma á árinu hafa 66 lát­ist en nýjum smitum hefur fækkað hratt síð­ustu daga.
  • Í Frakk­landi hefur verið til­kynnt um 48 dauðs­föll af völdum COVID-19 og yfir 80 á Spáni.
  • Fyrstu dauðs­föllin af völdum veiru­sýk­ing­ar­innar hafa verið til­kynnt í Aust­ur­ríki, Grikk­landi, Fíla­beins­strönd­inni og Alsír síð­ustu klukku­stundir. Í gær urðu fyrstu dauðs­föllin á Írlandi, Albaníu, Belgíu, Svíþjóð og Búlgaríu svo dæmi séu tekin.
  • Staðfest til­felli veirunnar eru fá enn sem komið er í Afríku en heil­brigð­is­yf­ir­völd í löndum álf­unnar búast við far­aldri og und­ir­búa sig sam­kvæmt því.
  • Stjórn­völd á Indlandi hafa hætt útgáfu vega­bréfs­á­rit­ana til ferða­manna. Þar hafa 73 til­felli veirunnar verið stað­fest en mjög lík­lega er um mikla van­grein­ingu að ræða.
  • Yfirvöld á Ítalíu hafa hert mjög á aðgerðum sínum síð­ustu klukku­stundir. Þar verður öllum versl­unum fyrir utan apó­tek og mat­vöru­búðir lokað. Ferða­tak­mark­anir og sam­komu­bönn eru einnig í gildi.
  • Rík­is­stjórn Spánar hefur öll verið skimuð fyrir veirunni og að minnsta kosti einn ráð­herra er sýktur. Öllum fót­bolta­leikjum í yfir­stand­andi umferð í það minnsta hefur verið frestað. Lið Real Madrid er nú allt í sótt­kví.
  • Að minnsta kosti 22 ríki hafa gripið til þess ráðs að loka skólum, m.a. Danmörk, Írland, Kasakstan og Malta.
  • Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin hefur lýst því yfir að COVID-19 sé heims­far­aldur.
  • Hluta­bréfa­mark­aðir hafa ekki farið var­hluta af vend­ingum síð­ustu klukku­stunda og FTSE-vísi­talan lækk­aði um 5% í morgun og hefur ekki verið lægri síðan 2012. Hér á landi má m.a. sjá áhrifin í verði hluta­bréfa í Icelandair.
  • Leikjum í NBA-deild­inni í körfu­bolta hefur verið frestað um óákveð­inn tíma eftir að leik­maður Utah Jazz greind­ist með COVID-19 í gær.
  • Starfs­fólk Twitter um allan heim skal nú um óákveðin tíma vinna frá heim­ilum sínum og svip­aða sögu er að segja um starfs­fólk fjöl­margra ann­arra stórra og alþjóð­legra fyr­ir­tækja, s.s. Microsoft, Facebook og Amazon.

Far­ald­ur­inn virð­ist í rénun í Kína og Suður-Kóreu sem gefur ákveðnar vís­bend­ingar um hvað koma skal í Evrópu og víðar. Aðgerðir stjórn­valda, meðal ann­ars hér á landi, miða fyrst og fremst að því að hægja á útbreiðsl­unni svo koma megi í veg fyrir ofur­á­lag á heil­brigð­is­kerfið og ótíma­bær dauðs­föll af þeim sökum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár