Lögðust gegn því að einungis eldri bændum yrði greitt fyrir að hætta

Í bréfi frá Lands­sam­tökum sauð­fjár­bænda og Bænda­sam­tökum Íslands var lagst gegn þeirri til­lögu land­bún­að­ar­ráð­herra að bjóða ein­ungis bændum yfir 60 ára greiðslu fyrir að hætta búskap. Ekki mætti mis­muna bændum eftir aldri.

Tillögur ráðherra ganga út á að fækka fé um 20 prósent.
Tillögur ráð­herra ganga út á að fækka fé um 20 pró­sent. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lands­sam­tök sauð­fjár­bænda og Bænda­sam­tök Íslands lögð­ust gegn því að bændum yrði mis­munað eftir aldri í skrif­legum við­brögðum sínum við upp­runa­legum til­lögum Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, við vanda sauð­fjár­bænda. Í þeim til­lögum var lagt til að bændum yfir 60 ára yrði boðin greiðsla gegn því að hætta búskap en að bændum undir sex­tugu myndu bjóð­ast aðrar leiðir til að takast á við vanda sinn.

Í bréfi sem sam­tökin skrif­uðu saman, og sendu til ráðu­neyt­is­ins 24. ágúst segir: „Hug­myndum um að mis­muna bændum á grund­velli ald­urs eða bústærðar er alfarið hafnað“.

Það hefur verið gagn­rýnt að til­lög­urnar hitti fyrst og síð­ast unga bændur fyrir. Formaður Lands­sam­taka slát­urs­leyf­is­hafa sagði það til að mynda áhyggju­efni að margir undir sauð­fjár­bændur sýndu því áhuga að hætta búskap gegn greiðslu frá rík­inu í fréttum RÚV í vik­unni. Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði síðan á Facebook í gær að til­lögur land­bún­að­ar­ráð­herra væru „til­vilj­un­ar­kennt skot út í loftið og sýnir hve óvönduð vinnu­brögðin eru. Skotið virð­ist hafa hitt unga bændur sem er ákkúrat það fólk sem við viljum ekki missa úr grein­inn­i.“

Vildu ekki að bændum yrði mismunað

Í upp­runa­legri til­lögu sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sem kynnt var í rík­is­stjórn og fyrir atvinnu­vega­nefnd um miðjan ágúst, var lagt til að þær aðgerðir sem átti að ráð­ast í til að draga úr fram­leiðslu kinda­kjöts ættu að mið­ast að þeim bændum sem væru 60 ára og eldri. Í til­lög­unum, sem Kjarninn hefur undir höndum, kom fram að það ætti að gefa þeim bændum sem væru 60 ára og eldri kost á því að hætta sauð­fjár­fram­leiðslu en halda eftir 70 pró­sent af greiðslur sauð­fjár­samn­ings miðað við 2017 í fjögur ár. Auk þess ætti að leggja allt að 250 millj­ónir króna í sér­stakt slát­ur­á­lag á ær sem ætti að geta fækkað í stofn­inum um 50-60 þús­und ær, en þær eru í dag um 450 þús­und tals­ins.

Fyrir bændur yngri en 60 ára átti að ráð­ast í sér­tækar aðgerðir til að mæta kjara­skerð­ingu þeirra sem í fælist ekki greiðslur fyrir að bregða búi og hætta sauð­fjár­rækt.

Lands­sam­tök sauð­fjár­bænda og Bænda­sam­tök Íslands brugð­ust við þessum til­lögum með bréfi sem sent var á ráðu­neyt­is­stjóra í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, þar sem ráð­herra land­bún­að­ar­mála situr, með bréfi sem var sent 24. ágúst. Kjarninn óskaði eftir því að fá afrit af skrif­legum sam­skiptum sam­tak­anna við ráðu­neytið á und­an­förnum vikum með vísun í upp­lýs­inga­lög. Eina gagnið sem Kjarninn fékk afhent var áður­nefnt svar­bréf. Þar segir m.a. að „Hug­myndum um að mis­muna bændum á grund­velli ald­urs eða bústærðar er alfarið hafnað“. Í bréf­inu er einnig ítrekuð sú for­taks­lausa krafa sam­tak­anna að vanda sauð­fjár­bænda verði mætt „ann­ars vegar með upp­kaupum afurða á mark­aði eða hins vegar með sveiflu­jöfnun sem tryggir sam­eig­in­lega ábyrgð slát­ur­leyf­is­hafa“.

Tillögurnar kosta um 650 miljónir króna

Til­lögur stjórn­valda vegna yfir­stand­andi erf­ið­leika í sauð­fjár­rækt munu kosta rík­is­sjóð um 650 millj­ónir króna, komi þær til fram­kvæmda. Sú greiðsla kemur til við­bótar þeim tæpu fimm millj­örðum króna sem fara í formi bein­greiðslna til sauð­fjár­bænda úr rík­is­sjóði árlega. Sam­kvæmt þeim verður gripið til umfangs­mik­illa aðgerða til að draga úr fram­leiðslu kinda­kjöts og fækka um leið fé um 20 pró­sent. Þeir bændur sem hætta sauð­fjár­fram­leiðslu munu geta haldið 90 pró­sent af greiðslum sam­kvæmt sauð­fjár­samn­ingi í fimm ár og gripið verður til sér­tækra aðgerða til að draga úr yfir­vof­andi kjara­skerð­ingu bænda. Á móti verður þess kraf­ist að búvöru­samn­ingur sauð­fjár­bænda, sem var und­ir­rit­aður í fyrra og gildir til tíu ára, verði end­ur­skoð­að­ur. Þor­gerður Katrín lagði fram minn­is­blað um til­lög­urnar í rík­is­stjórn­ar­fundi 18. ágúst ­síð­ast­lið­inn. Sama dag voru þær kynntar á hita­fundi í atvinnu­vega­nefnd Alþing­is. Í kjöl­farið ákvað rík­is­stjórnin að fela full­trúum þriggja ráðu­neyta að útfæra hug­mynd­irnar frekar, meðal ann­ars í sam­ráði við for­ystu Bænda­sam­taka Íslands og Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda. Til­lög­urnar voru svo birtar opin­ber­lega síð­ast­lið­inn mánu­dag.

Ítarlega var fjallað um þær í síð­asta sjón­varps­þætti Kjarnans á Hring­braut, sem sýndur var á mið­viku­dag. Hægt er að sjá þátt­inn í heild sinni hér að neðan.

Meta tap sitt á 1,9 millj­arða

Kjarn­inn greindi frá meg­in­uppi­stöð­unum í til­lög­unum í frétta­skýr­ingu í síð­ustu viku. Þar kom fram að þau útgjöld sem ríkið ætl­aði að leggja út í til að mæta bráða­vanda sauð­fjár­bænda vegna þess að afurð­ar­stöðvar hafa til­kynnt þeim að verð fyrir lamba­kjöt muni lækka um 35 pró­sent. Sú lækkun kemur ofan á tíu pró­sent lækkun sem átti sér stað í fyrra. Ástæðan er offram­leiðsla. Mun meira er fram­leitt en eft­ir­spurn er eft­ir. Umfangið er talið vera um 1.200 tonn. Þetta leiðir til þess að laun sauð­fjár­bænda stefna í að verða 56 pró­sent lægri á þessu ári en í fyrra og nán­ast öll sauð­fjárbú verða rekin með tapi. Sömu sögu er að segja með afurð­ar­stöðv­ar.

Nú liggur fyrir að ríkið ætlar sér að setja 650 millj­ónir króna í aðgerðir sem eiga að mæta bráða­vand­anum og vinna að lausnum sem eiga að tryggja að þessi staða komi ekki upp aft­ur. Til­lög­urnar þarf að sam­þykkja á auka­að­al­fundi Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda þar sem skil­yrði stjórn­valda fyrir fjár­út­lát­unum kalla á breyt­ingar á búvöru­samn­ingi.

Þau útgjöld sem sam­þykkt hefur verið að ráð­ast í verða þó ekki nálægt þeim 1,9 millj­­arði króna sem Lands­­sam­tök sauð­fjár­­bænda hafa sagt að þurfti til að bæta sauð­fjár­­bændum upp tap þeirra vegna fram­­leiðslu árs­ins 2017. Ekk­ert er um end­ur­upp­töku útflutn­ings­skyldu í til­lög­un­um, en háværar kröfur hafa verið um að slík verði tekin aftur upp. Útflutn­ings­skyldan var aflögð fyrir nokkrum árum eftir að ríkið keypti hana af bænd­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár