„Er ætlunin að leggja niður tugþúsundir starfa?“

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins sparar ekki stóru orðin, þegar kemur að aðgerðum stjórn­valda og sauð­fjár­rækt.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Tillögur land­bún­að­ar­ráð­herra er til­vilj­un­ar­kennt skot út í loftið og sýnir hve óvönduð vinnu­brögðin eru. Skotið virð­ist hafa hitt unga bændur sem er ákkúrat það fólk sem við viljum ekki missa úr grein­inni.“

Þetta segir Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, á Facebooksíðu sinni og vísar til aðgerða sem stjórn­völd hafa boðað, vegna vanda sauð­fjár­bænda.

Málið var til umræðu í sjón­varps­þætti Kjarnans á Hring­braut í gær­kvöldið, en Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, var gestur þátt­ar­ins.Gömlu leið­irnar til að takast á við vanda sauð­fjár­bænda, útflutn­ings­skylda og stór­tæk upp­kaup á birgða­vanda, bitna á neyt­endum og halda uppi verði inn­an­lands. Þær þjóna hvorki bændum né neyt­end­um. Þetta segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, í fyrsta þætti Kjarn­ans á Hring­braut þennan vet­ur­inn. Þátt­ur­inn er á dag­skrá í kvöld.

Hún ræddi um nýfram­lagðar til­lögur sínar til að mæta vanda sauð­fjár­bænda, sem munu kosta 650 millj­ónir króna til við­bótar við þá fimm millj­arða króna sem þeir fá í bein­greiðslur sam­kvæmt fjár­lögum og þær 100 millj­ónir króna sem þeir fengu á fjár­auka­lögum til að auka mark­aðs­starf.

Þor­gerður sagði í þætt­inum að ef fyr­ir­sagnir fjöl­miðla aftur til árs­ins 1985 séu skoð­aðar þá séu þær allar eins varð­andi stöðu sauð­fjár­bænda. Fram­leiðsla sé of mikil og til að mæta henni sé áhersla lögð á að taka upp eða auka útflutn­ings­skyldu eða að rík­is­sjóður ráð­ist í stór­tæk upp­kaup á umfram­birgð­um. „Birgða­vand­inn í dag virð­ist vera svona svip­aður og hefur verið und­an­farin tvö þrjú ár. Þá skulum við gefa okkur tíma og gera þetta rétt, þannig að við lendum ekki alltaf í sama gamla far­inu. Það þjónar ekki bændum og það þjónar ekki neyt­end­um,“ sagði Þor­gerður Katrín.

Sigurður Ingi gagn­rýnir ráð­herra, og segir skorta grein­ingar til að takast á við vand­ann. „Engin grein­ing liggur fyrir um hvar í sam­fé­lag­inu á að fækka eða hve margir munu hugs­an­lega nýta sér þetta til­boð. Markmið um að draga 20% úr fram­leiðslu er orðið að 20% fækkun bænda!! Á hvaða veg­ferð er ráð­herra sauð­fjár­ræktar? Er ætl­unin að drepa niður sauð­fjár­fram­leiðslu, mat­væla­fram­leiðslu í land­inu og leggja niður tug­þús­undir starfa?“ segir Sigurður Ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár