Segir gömlu leiðirnar hvorki þjóna bændum né neytendum

Sjón­varps­þáttur Kjarnans fer aftur í loftið á Hring­braut í kvöld. Fyrsta við­fangs­efni hans er staða íslenskra sauð­fjár­bænda og þær til­lögur sem lagðar hafa verið fram til að leysa hana. Þær kosta 650 millj­ónir króna.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

Gömlu leið­irnar til að takast á við vanda sauð­fjár­bænda, útflutn­ings­skylda og stór­tæk upp­kaup á birgða­vanda, bitna á neyt­endum og halda uppi verði inn­an­lands. Þær þjóna hvorki bændum né neyt­endum. Þetta segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, í fyrsta þætti Kjarnans á Hring­braut þennan vet­ur­inn. Þátt­ur­inn er á dag­skrá í kvöld.

Þar ræðir Þor­gerður nýfram­lagðar til­lögur sínar til að mæta vanda sauð­fjár­bænda, sem munu kosta 650 millj­ónir króna til við­bótar við þá fimm millj­arða króna sem þeir fá í bein­greiðslur sam­kvæmt fjár­lögum og þær 100 millj­ónir króna sem þeir fengu á fjár­auka­lögum til að auka mark­aðs­starf.

Þor­gerður segir í þætt­inum að ef fyr­ir­sagnir fjöl­miðla aftur til árs­ins 1985 séu skoð­aðar þá séu þær allar eins varð­andi stöðu sauð­fjár­bænda. Fram­leiðsla sé of mikil og til að mæta henni sé áhersla lögð á að taka upp eða auka útflutn­ings­skyldu eða að rík­is­sjóður ráð­ist í stór­tæk upp­kaup á umfram­birgðum. „„Birgða­vand­inn í dag virð­ist vera svona svip­aður og hefur verið und­an­farin tvö þrjú ár. Þá skulum við gefa okkur tíma og gera þetta rétt, þannig að við lendum ekki alltaf í sama gamla far­inu. Það þjónar ekki bændum og það þjónar ekki neyt­endum.“

Hún segir að það megi vel gagn­rýna hana fyrir að leggja fram tíma­bundið við­bót­ar­fjár­magn í sauð­fjár­rækt­ina en að hún sé nú að beita sér fyrir því að ráð­ast að rót vand­ans. Þor­gerður við­ur­kennir að hún sé ekki að horfa á vanda afurða­stöðva í til­lögum sínum og býst við harðri gagn­rýni frá þeim. Eins og er sé hins vegar ein­hugur um til­lög­urnar innar rík­is­stjórn­ar­innar, þótt skiptar skoð­anir séu um þær á meðal þing­manna stjórn­ar­flokk­anna.

Auk Þor­gerðar er Svavar Hall­dórs­son, for­maður Mark­aðs­ráðs kinda­kjöts, gestur þátt­ar­ins að þessu sinni. Hann fer m.a. yfir þær leiðir sem verið er að fara til að auka útflutn­ing á gæða­lamba­kjöti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár