Bardagi frá því fyrir 125 milljón árum endurvakinn: Réðust spendýr þá á risaeðlur?

Flestir trúa því að þangað til risa­eðl­urnar dóu út hafi spen­dýr verið fá og smá og haldið sig í felum af ótta við hinar ráð­andi eðlur. Tvær beina­grindur sem nýlega voru grafnar upp í Kína afsanna það

Dýrin tvö, læst í bardagastellingu í dauðanum.
Dýrin tvö, læst í bar­dagastell­ingu í dauð­anum.

Dýrið var ban­hungrað. Síðan drunur og skjálftar byrj­uðu í fjall­inu fyrir ofan dal­verpið, þar sem dýrið bjó, höfðu flest­öll þau litlu kvik­indi sem það lifði á látið sig hverfa. Ein­hverra hluta vegna hafði þetta unga dýr ekki fylgt í kjöl­far þeirra en nú var hungrið farið að sverfa illi­lega að. Dýrið leit illsku­lega í kringum sig. Bólstur steig upp frá fjall­inu en það var ekki í bili fyr­ir­brigði sem dýrið hafði áhuga á. Það varð umfram allt að finna eitt­hvað að éta.

Allt í einu sá dýrið eðlu í svo­lít­illi laut fyrir framan sig. Þetta var einn gras­bít­anna sem höfðu verið í hund­raða­tali í dalnum en höfðu flúið hávað­ann í fjall­inu und­an­farna daga. Þessi hafði orðið eftir ein­hverra hluta vegna. Kannski var eitt­hvað að, svo hún hafði ekki fullan styrk til að flýja.

Dýrið fann hungrið svella upp í sér. Eðlan var greini­lega ung en þó þrisvar sinnum þyngri og meira en helm­ingi lengri en dýrið og undir venju­legum kring­um­stæðum hefði það hikað við að ráð­ast á hana. Þessi gras­bítur hafði vissu­lega ekki beittar tennur, eins og dýrið, en gæti þó kramið það undir sér ef fyrsta atlagan mis­heppn­að­ist.

Í þetta sinn hik­aði dýrið þó ekki. Það tók á rás að eðl­unni og stökk upp á bakið á henni og reyndi að ná með víg­tönn­unum að hreistr­uðum háls­inum. En þó eðlan væri kannski ekki upp á sitt besta náði hún að snúa upp á sig svo dýrið missti af hálsi hennar. Það náði samt að bíta sig fast í brjóst eðl­unnar og það fór að blæða. Eðlan hrein hástöfum, hring­aði sig upp og bylti sér fram og til baka er hún reyndi í ofboði að losa sig við litla dýrið sem hékk fast á því bæði með tönnum og klóm.

Psittacosaurus luji­atunensimá segja að hafi verið eins­konar kindur Krít­ar­tím­ans. Dýrin höfðu í raun þessa þræði upp úr hala sínum

Það virt­ist komin upp patt­staða. Myndi eðlan ná að hrista af sér dýrið eða tæk­ist dýr­inu að hanga nógu lengi til þess að kraftar eðl­unnar seytl­uðu burt með blóði hennar? Þetta gæti tekið langan tíma.

En tíma höfðu dýrin tvö ekki. Ógurleg druna heyrð­ist í fjall­inu rétt eftir að átök þeirra hófust en þau hirtu ekki um það — enda um lífið að tefla fyrir þau niðri í dal­verp­inu. Þau lágu enn um stund í sínum blóð­ugu faðm­lögum og hvor­ugt vildi gefa sig. Þau tóku því ekk­ert eftir vax­andi dyn í lofti.

Og allt í einu hellt­ist yfir þau sjóð­andi brenn­andi gló­andi heitt ösku­ský frá fjall­inu sem hafði farið niður hlíð­arnar á örskots­hraða. Þetta var sams konar ösku­flóð og hellt­ist löngu síðar yfir borg­ina Pompeii við Napólí-flóa. Dýrið hafði ekki tíma til að losa tenn­urnar úr rifja­hylki eðl­unnar; en henni vannst ekki tími til að rétta úr sér. Logandi askan gleypti þau og drap á auga­bragði og síðan hurfu þau á kaf í þykkt ösku­lagið.

Og hvíldu þar og stein­gerð­ust í 125 millj­ónir ára.

En fyrir skömmu voru þau grafin upp, eðlan og dýrið, enn í sínum hinstu faðm­lögum; enn voru tennur dýrs­ins læstar í brjósti eðl­unnar.

Repen­om­amus robustus.Áður hafa fund­ist leifar af litlum risa­eðlu­ungum í maga dýra af þess­ari teg­und sem sýnir að það hefur ráð­ist og unga nýskriðna úr eggi. En aldrei áður hafa fund­ist sann­anir fyrir því að spen­dýrið hafi ráð­ist á nærri full­vaxta dýr.

Núna nefn­ist stað­ur­inn þar sem dýrin háðu sitt síð­asta stríð Liaong-hérað í Kína og eld­fjallið ógur­lega sem hellti eimyrju sinni yfir þau er nán­ast horfið. Ár og veður hafa malað það nán­ast mél­inu smærra, svo nú er það bara sak­leys­is­legt fell, vinur allra líf­vera.

Kanadíski stein­gerv­inga­fræð­ing­ur­inn Jordan Mallon, sem starfar við Nátt­úru­vís­inda­safnið í Ottawa, stýrði rann­sókn á stein­gerv­ing­unum frá Liaong-hér­aði en nið­ur­stöður hennar birt­ust á dög­unum í tíma­rit­inu Scientific Reports. Og skemmst er frá því að segja að þær nið­ur­stöður gætu orðið til að breyta all­mjög mynd okkar af þróun og upp­runa spen­dýra í ver­öld­inni.

Þessu hér höfum við lengst af trúað:

Risa­eðlan í sam­an­burði við mann.

Spendýr komu fram á sjón­ar­sviðið fyrir rúm­lega 250 millj­ónum ára. Þá réðu skrið­dýrin hins vegar ríkjum á Jörðinni og að lyktum „risa­eðl­urnar“ eða dínósárus­arnir (sem vissu­lega voru af öllum stærðum) og í nærri 185 millj­ónir ára voru spen­dýrin ekki annað en hrædd og lít­il­mót­leg smá­dýr sem skut­ust um í lággróðr­inum og áttu líf sitt undir því að gráð­ugar risa­eðl­urnar kæmu ekki auga á þau.

Þau reyndu því fyrir alla muni að láta ekki á sér bera. Önduðu varla þegar eðl­urnar voru nærri.

Það var ekki fyrr en fyrir 66 millj­ónum ára, þegar loft­steinn small niður á Yucatan-skaga og útrýmdi risa­eðl­unum á skammri stundu, sem spen­dýr­unum tók að vaxa fiskur um hrygg og þau þró­uð­ust hratt á nýrri frama­braut.

En eins og Mallon bendir á, þá segir stein­gerv­ing­ur­inn frá Lioang aðra sögu.

Báðar þessar teg­undir þekktum við áður.

Risa­eðlan er af teg­und­inni Psittacosaurus luji­atunensi. Þær voru gras­bítar og á stærð við litla geit, nema lág­fætt­ari. Sú Psittacosaurus-eðla sem grófst undir eld­inum í Lioang var lík­lega ung­lingur, alt­ént ekki alveg full­vaxin, en þó 120 senti­metrar að lengd.

Spen­dýrið til­heyrði teg­und­inni Repen­om­amus robustus og var á stærð við kött. Þetta til­tekna dýr var líka á ung­lings­aldri en 47 senti­metrar að lengd.

Jordan Mallon:Hann segir ekki koma til mála að litla risa­eðlan hafi verið dauð og spen­dýrið hafi verið að háma í sig hræ. Beinin sýni greini­lega að snarpur bar­dagi tveggja lif­andi dýra var í fullum gangi þegar ösku­flóðið hellt­ist yfir.

Og það sem Mallon og félögum þykir merki­legt við hinn stein­runna bar­daga Psittacosaurus og Repen­om­amus er að hingað til hefur ekki hvarflað að vís­inda­mönnum að spen­dýr gæti hafa haft bein í nef­inu til að ráð­ast á þrisvar sinnum stærri og þyngri eðlu. Og vænt­an­lega hefur dýrið ætlað sér að éta eðl­una; illt er ímynda sér nokkra aðra ástæðu fyrir árásinni.

Það má að vísu láta sér detta í hug að Psittacosaurus kunni að hafa komið að Repen­om­amus við að ræna eggjum eðl­unnar og ráð­ist að og dýrið þá varið sig, en ekk­ert við stein­gerv­ing­ana eða stein­gert umhverfi þeirra bendir þó til þess.

Líkegast er ein­fald­lega að dýrið hafi talið sig ráða við eðl­una.

Og það breytir mynd­inni af hinum smeyku spen­dýrum að fela sig sífellt í lággróð­inum að elt­ast við pöddur og murr­andi smá­kvik­indi ýmis.

Kannski voru þessir for­for­eldrar okkar bara miklu boru­bratt­ari en við héldum.

Svona leit heim­ur­inn út þegar bar­dag­inn átti sér stað.Rauða stjarnan sýnir hið núver­andi Liaoning-hérað í Kína.
Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PH
    Pétur Halldórsson skrifaði
    Þetta er skrýtin grein. Hún ber þess merki að hafa verið þýdd með Google Translate og svo lagfærð en alls ekki nógu vel. Frekar léleg blaðamennska. En efnið er áhugavert.
    0
    • Illugi Jökulsson skrifaði
      Nei, Pétur. Greinin er mjög, mjög langt frá því að þýdd. Það hryggir mig að þú skulir slá slíku fram. Nú má vel vera að fyrir kröfuharða lesendur eins og þig sé hún ekki nógu góð. En ástæðan er þó ekki sú að hún sé þýdd. Hafðu það svo gott.
      0
  • TL
    Trausti Leósson skrifaði
    áhugaverð grein
    1
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Látum vera að þú hafir hætt með spurningarnar.
    En í öllu bænum aldrei hætta með flækjusögurnar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár