Ríkisendurskoðun gerir engar athugasemdir við rekstur Lindarhvols

Lind­ar­hvoll, félag sem sá um að koma stöð­ug­leika­fram­lags­eignum í verð, starf­aði frá því í apríl 2016 og fram í febr­úar 2018. Upp­haf­lega var gert ráð fyrir að eignir þess væru 384 millj­arða króna virði en á end­anum skil­uðu þær 460 millj­örðum króna.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, gerði samningin við Lindarhvol um umsýslu stöðugleikaeigna.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, gerði samn­ingin við Lind­ar­hvol um umsýslu stöð­ug­leika­eigna. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­end­ur­skoðun gerir engar athuga­semdir við störf stjórnar Lind­ar­hvols, félags sem sá um umsýslu, fulln­ustu og sölu á eignum sem rík­is­sjóður fékk afhent vegna stöð­ug­leika­samn­ing­anna við slitabú föllnu bank­anna. Rík­is­end­ur­skoðun gerir heldur engar athuga­semdir við rekstur Lind­ar­hvols.

Þetta kemur fram í skýrslu sem stofn­unin birti í dag um fram­kvæmd samn­ings sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, gerði við félagið.

Í skýrsl­unni er sagt að stöð­ug­leika­fram­lagið hafi skilað 460 millj­örðum króna í rík­is­sjóð, en upp­haf­lega var ætlað að tekjur rík­is­ins vegna þess yrðu 384 millj­arðar króna. Þær eru því 76 millj­örðum krónum meiri en upp­haf­legar áætl­anir gerðu ráð fyrir.

Lind­ar­hvoll var stofnað í apríl 2016. Í febr­úar 2018 var greint frá því að félagið hefði lokið hlut­verki sínu og yrði slit­ið. Skömmu áður, í jan­úar 2018, hafði félagið fram­selt eignir sem metnar voru á 19 millj­arða króna til Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR). Um var að ræða eignir sem Lind­­ar­hvoll hafði haft til umsýslu og töld­ust ekki heppi­­legar til sölu á almennum mark­aði. Fram­sal eign­anna lækk­aði líf­eyr­is­skuld­bind­ingar rík­­is­­sjóðs við B-deild LSR um áður­greinda upp­hæð.

Álitamál hvort starfstími hafi verið nægjanlega rúmur

Í skýrslu Lind­ar­hvols kemur fram að það sé álita­mál hvort að starfs­tími Lind­ar­hvols hafi veirð nægj­an­lega rúmur. „Mögulega hafi verið unnt að fá hærri tekjur fyrir ein­staka eignir hefði sölu- og umsýslu­tím­inn verið annar og lengri. Óhjá­kvæmi­legt er þó að taka til­lit til þess að vaxta­kjör íslenska rík­is­ins bötn­uðu vegna þess hversu greið­lega gekk að koma stöð­ug­leika­fram­lags­eign­unum í verð. Þannig kunna að veg­ast á ann­ars vegar hags­munir þess að hraða sölu og fá þannig betri vaxta­kjör og hins vegar mögu­leikar þess að fá hærra sölu­verð fyrir ein­staka eignir á lengri tíma.“

[adspot]Í stjórn félags­ins sátu Þór­hallur Ara­son, for­maður stjórnar og starfs­maður í fjár­mála­ráðu­neyt­in­u, Ása Ólafs­dótt­ir, með­stjórn­andi, og Haukur C. Bene­diks­son, með­stjórn­andi.

Sá sem sá um starf­semi Lind­ar­hvols utan stjórnar var lög­mað­ur­inn Steinar Þór Guð­geirs­son. Hann var meðal ann­ars pró­kúru­hafi félags­ins og Lind­ar­hvol keypti lög­fræði­þjón­ustu frá fyr­ir­tæki hans, Íslögum ehf. Alls var keypt þjón­usta fyrir 80 millj­ónir króna án virð­is­auka­skatts af stofu Steinars og Rík­is­end­ur­skoðun kann­aði sér­stak­lega hvort að það hefði átt að bjóða út þá þjón­ustu sem hún ann­að­ist.

Gera ekki athugasemdir við ráðningu Steinars án útboðs

Í skýrsl­unni segir að stjórn Lind­ar­hvols hafi fært rök fyrir því að per­sónu­leg þekk­ing lög­manns­ins og reynsla hans hafi valdið því að samn­ingur var gerður við Íslög. „Sú þekk­ing og reynsla auk þess skamma starfs­tíma sem félag­inu var skammt­aður hafi verið ástæða þess að gerður var samn­ingur við Íslög ehf. Stjórnin taldi eft­ir­sókn­ar­vert að njóta starfs­krafta lög­manns­ins enda hefði hann búið yfir yfir­burða þekk­ingu á svið­inu eftir að hafa haft umsjón með gerð stöð­ug­leika­samn­inga fyrir hönd Seðla­banka Íslands við öll slita­búin og þannig haft umsjón með mót­töku og dag­legum rekstri þess­ara eigna. Var það mat stjórnar að úti­lokað hefði verið að ná fram mark­miðum í samn­ingi við fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um að hámarka end­ur­heimtur jafn hratt og raun varð á og lág­marka kostnað ef farið hefði verið í útboð, enda hefði slíkt reynst tíma­frekt og óvíst með öllu, að mati stjórnar félags­ins, að sama þekk­ing á stöð­ug­leika­fram­lags­eignum hefði náðst fram innan þeirra tíma­marka sem stjórn félags­ins hafði til ráð­stöf­unar.“

Rík­is­end­ur­skoðun kann­aði laga­reglur og taldi að eins og á stóð, mætti fall­ast á þau sjón­ar­mið sem stjórn Lind­ar­hvols setti fram vegna þessa fyr­ir­komu­lags. „Rík­is­end­ur­skoðun kann­aði jafn­framt hvort samið hefði verið um afslátt á tíma­gjaldi Íslaga ehf. í ljósi þess umfangs sem samn­ing­ur­inn fól í sér og var upp­lýst að veru­legur afsláttur var veittur frá tíma­gjaldi lög­fræði­stof­unnar. Í þessu ljósi gerir Rík­is­end­ur­skoðun hvorki athuga­semdir við stjórnun félags­ins né aðkeypta lög­fræði­þjón­ustu af lög­manns­stof­unni Íslögum ehf.“

Eðlilega staðið að sölunni á hlut í Klakka

Sú ráð­stöfun á eign sem Lind­ar­hvoll hélt á sem vakti mesta tor­tryggni var sala á 17,7 pró­sent hlut í Klakka ehf.. (sem hét á árum áður Exista). Klakki átti á þeim tíma allt hlutafé í eigna­leigu­fyr­ir­tæk­inu Lykli.

Félagið BLM fjár­fest­ing­ar, dótt­ur­fé­lag vog­un­ar­sjóðs­ins Burlington Loan Mana­gement, átti hæsta til­boðið í hlut rík­is­ins í Klakka en það hljóð­aði upp á 505 millj­ón­ir króna. Félagið Ása­flöt bauð 502 millj­ónir í hlut­inn en þriðja til­boð­ið, sem hljóð­aði upp á 501 milljón króna, barst frá Frigus II í eigu Ágústs og Lýðs Guð­munds­sona, fyrr­ver­andi aðal­eig­enda Exista, og Sig­urðar Val­týs­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra Exista.

Eigendur Frigusar voru mjög ósáttir við söl­una og lýstu því yfir að með henni hafi átt sér stað sala á eigum rík­is­ins til sér­val­inna aðila án þess að reynt hafi verið að hámarka sölu­and­virðið.

Þessi sala var tekin til sér­stakrar umfjöll­unar í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar. Í nið­ur­stöðum hennar segir að eðli­lega hafi verið staðið að söl­unni. „Ekki verður annað séð en að fram­kvæmd útboðs­ins hafi verið í sam­ræmi við það sem almennt tíðk­að­ist við fram­kvæmd útboða sem þess­ara. Þá gerðu bjóð­endur engar form­legar athuga­semdir við fram­kvæmd útboðs­ins áður en útboðs­frestur rann út. Að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar hefur stjórn Lind­ar­hvols ehf. svarað gagn­rýni sem fram kom eftir að útboðs­frestur rann út með full­nægj­andi hætti.“

Ekki verður annað séð, að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar, en að fram­kvæmd útboðs­ins hafi verið í sam­ræmi við það sem almennt tíðk­að­ist við fram­kvæmd slíkra útboða. „Þá gerðu bjóð­endur engar form­legar athuga­semdir við fram­kvæmd útboðs­ins áður en útboðs­frestur rann út. Að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar hefur stjórn Lind­ar­hvols ehf. svarað gagn­rýni sem fram kom eftir að útboðs­frestur rann út með full­nægj­andi hætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár