Félag í eigu þriggja stjórnenda Klakka, eignarhaldsfélags sem heldur utan um 100 prósenta hlut í eignaleigufyrirtækinu Lykli, átti næsthæsta tilboðið í tæplega 18 prósenta hlut ríkisins í Klakka þegar hluturinn var boðinn til sölu haustið 2016. Umrætt félag, Ásaflöt, vildi ekki að upplýst yrði um þátttöku þess í söluferlinu og bar því við að Lindarhvoll, félag sem hélt utan um stöðugleikaeignir sem voru framseldar ríkinu og sá um söluferlið, hafði heitið því trúnaði.
Samkvæmt nýjum úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál, þarf Lindarhvoll að veita aðgang að upplýsingum um söluferlið á hlut ríkisins í Klakka, og segir í úrskurðinum að Lindarhvoll hafi ekki haft heimild til þess heita áhugasömum kaupendum trúnaði.
Frá þessu er greint í Markaðnum í dag, en úrskurðurinn hefur ekki verið birtur á vef úrskurðarnefndar um upplýsingamál.
Af þeim þremur félögum sem buðu í hlut ríkisins í Klakka tengdust þannig tvö félög stjórnendum eignarhaldsfélagsins, en Magnús Scheving Thorsteinsson, forstjóri Klakka, er eini stjórnarmaður BLM fjárfestinga, sem var hæstbjóðandi, og jafnframt einn af eigendum Ásaflatar sem átti næsthæsta tilboðið í hlut ríkisins, að því er segir í Markaðnum.
Félagið BLM fjárfestingar, dótturfélag vogunarsjóðsins Burlington Loan Management, átti hæsta tilboðið í 17,7 prósenta hlut ríkisins í Klakka en það hljóðaði upp á 505 milljónir króna. Ásaflöt bauð 502 milljónir í hlutinn en þriðja tilboðið, sem hljóð aði upp á 501 milljón króna, barst frá Frigus II í eigu Ágústs og Lýðs Guðmundssona, og Sigurðar Valtýssonar, fyrrverandi forstjóra Exista.

„Forsvarsmenn Frigusar óskuðu eftir því við Lindarhvol að félagið fengi aðgang að fyrirliggjandi gögnum um söluferlið en þeirri beiðni var hafnað. Málið kom til kasta úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem féllst í síðustu viku á nær allar beiðnir Frigusar. Á meðal gagna sem Lindarhvoli ber nú að afhenda Frigusi eru fundargerðir stjórnar Lindarhvols, samskipti hæstaréttarlögmannsins Steinars Þórs Guðgeirssonar, þáverandi stjórnarmanns Klakka sem tók auk þess við tilboðum í eignarhlutinn fyrir hönd ríkisins, og stjórnar Lindarhvols, samskipti Lindarhvols og tilboðsgjafanna þriggja og afrit af þeim þremur tilboðum sem bárust,“ segir í Markaðnum.
Sigurður segir í samtali við Markaðinn, að afar illa hafi gengið að fá sjálfsagðar upplýsingar um söluferlið frá Lindarhvoldi. „Þarna var verið að selja eigur ríksisins til sérvalinna aðila. Ekki var reynt að hámarka söluverðið og því er þetta mál álitshnekkir fyrir stjórn Lindarhvols,“ segir Sigurður í samtali við Markaðinn.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir