Merki um þrýsting á næstu árum

Mán­að­ar­skýrsla HMS bendir á að fjöldi fyrstu hús­næð­is­kaup­enda gæti auk­ist í náinni fram­tíð, auk þess sem spáð er áfram­hald­andi sam­drætti í bygg­ing­ar­iðn­aði. Hvort tveggja gæti leitt til upp­safn­aðrar íbúða­þarfar og verð­hækk­ana á hús­næð­is­mark­aði.

Búist er við mikilli aukningu fyrstu kaupenda íbúðamarkaði á næstu árum, samhliða minna húsnæðisframboði
Búist er við mik­illi aukn­ingu fyrstu kaup­enda íbúða­mark­aði á næstu árum, sam­hliða minna hús­næð­is­fram­boði Mynd: Pexels

Samkvæmt Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun (HMS) munu áhrif auk­ins fjölda Íslend­inga á þrí­tugs­aldri koma fram á hús­næð­is­mark­að­inn „fyrr eða seinna.“ Stofn­unin telur einnig lík­legt að fram­boð nýrra íbúða gæti dreg­ist saman á næstu árum vegna sam­dráttar í bygg­ing­ar­iðn­aði. Fari svo mætti búast við auk­inn þrýst­ing og hærra verð á hús­næð­is­mark­aðnum á næstu árum.

Í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu HMS kemur fram að virkni á fast­eigna­mark­aði hafi verið í hæstu hæðum síðan Seðla­bank­inn lækk­aði meg­in­vexti sína í vor. Júlí var met­mán­uður í fjölda útgef­inna kaup­samn­inga og hafa þeir ekki verið fleiri frá árinu 2007, en skamm­tíma­vísir stofn­un­ar­innar bendir til þess að fjöld­inn hafi verið enn meiri í sept­em­ber.

Samhliða miklum fjölda kaup­samn­inga hefur fjöldi fyrstu kaup­enda auk­ist tölu­vert á síð­ustu mán­uðum. Nærri 30 pró­sent fast­eigna­kaupa á land­inu öllu á nýliðnum árs­fjórð­ungi voru fyrstu kaup og hefur það hlut­fall ekki verið jafn­hátt í a.m.k. tólf ár. Þó segir HMS að margt bendi til þess að toppi hafi verið náð í yfir­stand­andi fast­eigna­sveiflu í sept­em­ber.

Stórir árgangar koma inn á markaðinn

Samkvæmt skýrslu HMS eru þó vís­bend­ingar um að auk­inn þrýst­ingur verði á hús­næð­is­mark­aði á næstu árum. Stórir árgangar eru að taka skrefið inn á hús­næð­is­mark­að­inn núna, en sam­kvæmt mann­fjölda­tölum Hagstofu hefur fólki á aldr­inum 22-29 ára fjölgað um tíu þús­und á síð­ustu átta árum. Með­al­aldur fyrstu kaup­enda hér­lendis er 30 ár, svo að búast má við auk­inni eft­ir­spurn með inn­komu þess­ara árganga.

„Þó að óljóst sé hvort verð­andi fyrstu kaup­endur muni haga sér líkt og þeir sem á undan komu, þá breytir það ekki þeirri stað­reynd að þessi hópur þarf að búa ein­hvers staðar svo áhrif hans á fast­eigna­mark­að­inn munu koma fram fyrr eða seinna,“ segir í skýrsl­unni.

Samdráttur í byggingariðnaði

Til við­bótar við auk­inn fjölda fyrstu kaup­enda bendir HMS á að nokkur sam­dráttur hafi orðið í bygg­ing­ar­iðn­aði. Í ágúst síð­ast­liðnum voru 9,7 pró­sent færri störf í grein­inni heldur en á sama tíma í fyrra. Stærstur hluti þess­arar fækk­unar var til­kom­inn vegna inn­flytj­enda í geir­anum, en þeim fækk­aði um 23 pró­sent á meðan starfs­mönnum í bygg­ing­ar­iðn­aði með íslenskan bak­grunn fækk­aði bara um 3,7 pró­sent.

HMS vitnar einnig í taln­ingar Samtaka iðn­að­ar­ins á fjölda íbúða í bygg­ingu, en sam­kvæmt henni mælist um 41 pró­senta sam­dráttur í fjölda íbúða á fyrstu bygg­ing­ar­stigum síðan í mars á þessu ári. Stofn­unin telur að hætt sé við að sam­dráttur í bygg­ing­ar­iðn­aði geti haldið áfram á næstu miss­erum og að fjöldi nýrra íbúða gæti dreg­ist saman á næstu árum.

Ekki 2008

Þó bætir HMS við að ólík­legt sé að sam­dráttur í bygg­ing­ar­iðn­aði nú verði í lík­ingu við það sem hann var í kjöl­far efna­hag­skrepp­unnar 2008. Aukin sala á nýbygg­ingum gæti skilað sér í auknum áhuga hjá fjár­festum til að fjár­magna ný verk­efni, auk þess sem nýsam­þykkt hlut­deild­ar­lán rík­is­stjórn­ar­innar skapað auk­inn hvata til bygg­ingar íbúð­ar­hús­næðis sem fellur undir skil­yrði þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár