Icelandair „geri hreint fyrir sínum dyrum gagnvart almenningi“ áður en ábyrgð er veitt

Hundruð far­þega Icelandair Group sem hafa ekki fengið end­ur­greitt nið­ur­felld flug hafa leitað til Neyt­enda­sam­tak­ana vegna þessa. Þau vilja að rík­is­á­byrgð á lánum til félags­ins verði skil­yrt end­ur­greiðslu til þeirra.

Bæði ASÍ og Neytendasamtökin hafa skilað inn umsögn vegna ríkisábyrgðar á láni til Icelandair og vilja að hún verði skilyrt. Drífa Snædal er forseti ASÍ og Breki Karlsson formaður Neytendasamtakana.
Bæði ASÍ og Neyt­enda­sam­tökin hafa skilað inn umsögn vegna rík­is­á­byrgðar á láni til Icelandair og vilja að hún verði skil­yrt. Drífa Snædal er for­seti ASÍ og Breki Karlsson for­maður Neyt­enda­sam­tak­ana. Mynd: Aðsend

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) segir að stuðn­ingur stjórn­valda við fyr­ir­tæki eins og Icelandair Group eigi ekki að vera án skil­yrða. Félagið hafi þegar fengið mik­inn stuðn­ing frá rík­inu, meðal ann­ars í gegnum hluta­bóta­leið­ina, frestun opin­berra gjalda, greiðslu launa á upp­sagn­ar­fresti starfs­fólks.

Neyt­enda­sam­tök Íslands gera þá kröfu að Icelandair Group end­ur­greiði þeim far­þegum sem félagið hefur enn ekki end­ur­greitt vegna nið­ur­felldra fluga áður en rík­is­á­byrgð er sam­þykkt.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögnum ASÍ og Neyt­enda­sam­tak­anna um fyr­ir­hug­aða rík­is­á­byrgð upp á 15 millj­arða króna á lánum rík­is­bank­ana Íslands­banka og Lands­bank­ans til Icelandair.

Siðlaust og ólögmætt

Í umsögn ASÍ segir meðal ann­ars að það sé ófrá­víkj­an­leg krafa að íslenskir kjara­samn­ingar ráði rétt­indum og skyldum hjá Icelandair Group, rétt­indi launa­fólks séu virt og að félagið virði leik­reglur íslensks vinnu­mark­aðar.

[adspot]Í kjöl­farið er það rifjað upp að Icelandair Group hafi ákveðið að segja upp öllum starf­andi flug­freyjum og -þjónum félags­ins í sumar, eftir að þau hefðu fellt nýjan kjara­samn­ing, og til­kynnt að samið yrði við nýjan aðila. Þetta segir ASÍ að hafi verið „bæði sið­laust og ólög­mætt“.

ASÍ bendir líka á að rík­is­stuðn­ingur eigi að vera háður þeim skil­yrðum að félög og dótt­ur­fé­lög þeirra hafi hvorki við­veru né stundi við­skipti í gegnum skatta­skjól eða lág­skatta­ríki. Slíkt er ekki til­tekið í frum­varpi um veit­ingu rík­is­á­byrgð­ar­innar.

Að lokum segir ASÍ að stjórn­völdum og Alþingi beri að verja hags­muni rík­is­ins í hví­vetna í gegnum traust veð eða að ríkið eign­ist hlut í félag­inu. „Óvissa ríkir um hvort þetta skil­yrði sé upp­fyllt líkt og sjá má í umsögn Rík­is­end­ur­skoð­unar en þar segir að ósenni­legt sé að trygg­ingar geti numið þeim 15 millj­örðum sem lán­aðir eru.“

Vilja að Icelandair endurgreiði

Neyt­enda­sam­tök Íslands hafa líka skilað inn umsögn. Þar segj­ast þau ekki gera athuga­semd við frum­varpið sjálf, en telja sig knúin til að benda á að Icelandair Group hafi ekki end­ur­greitt fjölda far­þega sem eiga rétt á slíkri end­ur­greiðslu sam­kvæmt Evr­ópu­sam­bands­ins reglu­gerð sem hefur verið leidd inn í íslensk lög. Þau vilja „að tryggt sé áður en rík­is­sjóður gengst í ábyrgð fyrir Icelandair, geri félagið hreint fyrir sínum dyrum gagn­vart almenn­ingi og end­ur­greiði neyt­endum lögum sam­kvæmt.“

[links]Samkvæmt reglu­gerð­inni eiga far­þegar aflýstra flug­ferða rétt á end­ur­greiðslu innan sjö daga frá aflýs­ingu flugs. „Til Neyt­enda­sam­tak­anna hafa leitað hund­ruð far­þega, sem hafa ekki fengið end­ur­greitt nið­ur­felld flug. Elstu flug­ferð­irnar sem enn á eftir að gera upp eru, eftir bestu vit­und starfs­fólks sam­tak­anna, frá því snemma í mars. Neyt­enda­sam­tökin gera þá kröfu að ef sam­þykkja eigi rík­is­á­byrgð, verði tryggt að Icelandair standi skil á lög­bundnum end­ur­greiðslum til neyt­enda sem eiga lögvar­inn rétt til þess.“

Í hálfs­árs­upp­gjöri Icelandair kemur fram að félagið hafi gefið út inn­eignir til við­skipta­vina sinna fyrir alls 67,2 millj­ónir dala, rúm­lega 9,1 millj­arði króna, á fyrri helm­ingi árs­ins 2020. Upp­hæðin sem Icelandair hefur gefið út í inn­eignir sam­svarar um fjórð­ungi af öllum far­þega­tekjum Icelandair á öðrum árs­fjórð­ungi í fyrra. Til að setja þessa upp­hæð í annað sam­hengi þá var hún um 44 pró­sent af öllu lausu fé Icelandair í lok júní, sem var 151,2 millj­ónir dala, um 20,6 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár