Telur „mikilvægt að veita varaformanni Sjálfstæðisflokksins brautargengi“

Ásta Möller, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og nú kjós­andi í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, segir að eng­inn eigi neitt gefið í póli­tík og styður Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur í kom­andi próf­kjörs­bar­áttu við Harald Bene­dikts­son.

Ásta Möller, fyrir miðju, sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í áratug með hléum í upphafi aldar. Hún segir ekkert eðlilegra en að varaformaður flokksins sækist eftir oddvitasæti í sínu kjördæmi.
Ásta Möller, fyrir miðju, sat á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í ára­tug með hléum í upp­hafi aldar. Hún segir ekk­ert eðli­legra en að vara­for­maður flokks­ins sæk­ist eftir odd­vita­sæti í sínu kjör­dæmi. Mynd: Samsett

Ásta Möller, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að hún telji mik­il­vægt að veita Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur ráð­herra braut­ar­gengi til að leiða lista flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi til kom­andi alþing­is­kosn­inga.

Þetta kom fram í aðsendri grein Ástu í Skessu­horni á mið­viku­dag, en greinin er svar við annarri grein eftir Óðin Sig­þórs­son, sem birt­ist á sama vett­vangi í lok mars.

Eins og Kjarninn fjall­aði um nýlega hefur titr­ings orðið vart vegna vænt­an­legrar próf­kjörs­bar­áttu á milli Þórdísar Kol­brúnar og Haralds Bene­dikts­sonar, sem leitt hefur lista sjálf­stæð­is­manna í kjör­dæm­inu í síð­ustu kosn­ingum.

Í grein Óðins sagði meðal ann­ars að ef Þórdísi Kolbrúnu tæk­ist að fella Harald úr odd­vita­sæt­inu myndi það „veikja flokk­inn í kom­andi kosn­ingum“ og einu gilti þá um hvernig sæti skip­uð­ust að öðru leyti. Haraldur hefði sýnt dreng­skap með því að „víkja til hliðar“ og lýsa yfir stuðn­ingi við að Þórdís Kolbrún yrði ráð­herra.

Ásta segir í grein sinni að Óðinn hafi tekið að sér að „vera sár fyrir hönd vinar síns“ Haraldar, sem sé vel virtur þing­maður og hafi staðið sig með prýði í sínum störfum. „En hann, ekki frekar en nokkur annar stjórn­mála­maður, á nokkuð gefið í stjórn­málum, hvorki sæti né for­frömun. Þar ráða umbjóð­endur hans fyrst og fremst,“ segir í grein Ástu.

Myndi einhver gera athugasemdir ef Þórdís væri karl?

Þar spyr hún hvað sé eðli­legra en að „metn­að­ar­fullur stjórn­mála­maður sem hefur vakið athygli fyrir áræðni, glæsi­leika, dugnað og hug­mynda­ríki kalli eftir stuðn­ingi flokks­fé­laga sinna og bjóði sig fram til for­ystu á lista í sínu kjör­dæmi“ og nefnir að Þórdís Kolbrún hafi að aukið fengið traust til gegna ráð­herra­emb­ætti og verið kjörin vara­for­maður.

[adspot]

„Ég velti því fyrir mér hvort ein­hver hefði við þessa ákvörðun ráð­herra og vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins að athuga væri við­kom­andi karl en ekki kona. Spyr sá sem ekki veit, en sem grunar eitt og annað. Ef rétt er þá eru þetta úrelt við­horf sem ekki eiga heima í Sjálf­stæð­is­flokknum,“ skrifar Ásta í grein­inni. Hún segir raunar að hún hefði sjálf staldrað við ef vara­for­maður flokks­ins myndi ekki sækj­ast eftir því að leiða lista í sínu kjör­dæmi.[links]

Það er því tek­ist á innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi vegna próf­kjörs­mál­anna, en allangt er þó þar til próf­kjörið fer fram, en það verður ekki fyrr en um miðjan júní.

Þegar hefur gustað um vegna þessa, en snemma í mars, eftir að Þórdís Kolbrún opin­ber­aði að hún ætl­aði sér að fara gegn Haraldi og sækj­ast eftir odd­vita­sæt­inu á bæj­ar­mála­fundi flokks­ins á Akranesi, ákvað Halldór Jónsson að segja sig frá for­manns­stöðu í kjör­dæm­is­ráði flokks­ins.

Hann skrif­aði bréf til for­ystu flokks­ins þar sem sagði meðal ann­ars að Þór­dís Kol­brún hefði að hans mati ekki sett fram ríkar mál­efna­legar ástæður fyrir því að skora odd­vita flokks­ins í kjör­dæm­inu á hólm.

„Þvert á móti lýsti hún afar vel styrk og góðum störfum Har­aldar sem fyrsta þing­manns kjör­dæm­is­ins. Það er rétt metið hjá vara­for­mann­inum því þrátt fyrir afar erf­iðar aðstæður sjá íbúar kjör­dæm­is­ins mörg erfið mál þok­ast áfram eftir kyrr­stöðu. Það er ekki síst elju og vinnu­semi Har­aldar að þakka,“ skrif­aði Hall­dór til flokks­for­yst­unn­ar, sam­kvæmt frétt Skessu­horns um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár