„Spítalinn var næstum því kominn á hliðina í þessum litla faraldri“

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir var spurður bein­skeyttra spurn­inga um gagn­rýni sem fram hefur komið á opin­berar sótt­varn­ar­að­gerðir, meðal ann­ars frá þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í við­tali í hlað­varps­þætti á dög­unum.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég held að í fyrsta lagi hafi menn ekk­ert almenni­lega vitað hvað þeir voru að tala um þegar þeir voru að tala um sænsku leið­ina,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir, í nýlegu við­tali í hlað­varps­þætt­inum Ein pæl­ing, sem er undir stjórn Þórarins Hjart­ar­sonar.

Þar var farið um víða völl í umræðum um COVID-19 og þeir og Þórólfur og Þórarinn ræddu meðal ann­ars um „sænsku leið­ina“ og hjarð­ó­næm­is­hug­myndir á borð við þær sem fel­ast í Great Barr­ington-yfir­lýs­ing­unni svoköll­uðu. Einnig um mál­flutn­ing af sama meiði sem hópur hér á landi, sem í eru meðal ann­arra tveir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks, hefur reynt að koma inn í umræð­una á und­an­förnum vikum.[links]

Þórólfur sagði að í Barr­ington-yfir­lýs­ing­unni og mál­flutn­ingi bæði Sigríðar Á. Andersen og Brynjars Níels­sonar skorti upp á að tekið væri með í reikn­ing­inn hvaða áhrif það myndi hafa að leyfa far­aldr­inum að ganga yfir landið í auknum mæli. Einnig væri ekki horft til þess hversu mikið er nú þegar búið að gera til þess að koma í veg fyrir að veiran ber­ist til við­kvæmra hópa í sam­fé­lag­inu og sagði Þórólfur að erfitt væri að gera meira í því skyni, veiran myndi leka inn á við­kvæmar stofn­anir ef smit væri útbreitt í sam­fé­lag­inu.

Ekkert bolmagn til að takast á við útbreitt smit

Þórólfur tók dæmi í þætt­inum og sagði að ef ekki nema 10 pró­sent þjóð­ar­innar myndu smit­ast á skömmum tíma eftir að hömlum væri aflétt væru það 36 þús­und manns. „Með sömu hlut­falls­tölum og við erum með eftir 15. júní [...] myndi það þýða að um 2.000 manns myndu þurfa að leggj­ast inn á spít­ala vegna COVID, á bara nokkrum vikum. Það myndi þýða að 200 manns myndu þurfa að leggj­ast inn á gjör­gæslu­deild á nokkrum vikum, það myndi þýða að 70 manns myndu þurfa að fara í önd­un­ar­vél og þýða það að 200 manns myndu lát­ast á bara nokkrum vikum,“ sagði Þórólfur og bætti því við að spít­alar lands­ins hefðu hvorki bol­magn né getu til að ráða við þessa stöðu, kæmi hún upp.

[adspot]

„Það sást bara núna að spít­al­inn var næstum því kom­inn á hlið­ina í þessum litla far­aldri sem hefur gengið yfir núna und­an­farið. Þetta myndi þýða mjög alvar­legar afleið­ingar. Það þyrfti að fara að leggja þessa COVID-sjúk­linga inn á aðrar stofn­anir eða íþrótta­hús, hótel. Hvar ættum við að fá fólk til að sinna þeim?“ spurði Þórólfur.

Hann bætti við: „Erum við með nóg af önd­un­ar­vélum? Nei. Erum við með nóg af góðu starfs­fólki til að sinna þessu fólki? Nei. Þetta myndi hafa gríð­ar­leg áhrif á COVID-sjúk­linga og þetta myndi líka hafa gríð­ar­lega áhrif á aðra sjúk­linga­hópa sem þurfa sér­hæfða þjón­ustu inni á spít­öl­unum. Þetta myndi hafa svaka­lega mikil áhrif í sam­fé­lag­inu öllu,“ sem sagði að það vant­aði algjör­lega að þeir sem kæmu fram með gagn­rýni á sótt­varn­ar­að­gerðir horfðu til þess­ara þátta.

Viðtalið við Þórólf birt­ist í hlað­varpsveitum síð­asta föstu­dag og var nokkuð bein­skeytt, þar sem þátta­stjórn­and­inn velti því upp hvort lækn­ingin væri að verða verri en sjúk­dóm­ur­inn og vildi fá sótt­varna­lækn­inn til þess að verja það sem hefur verið gert hér á landi til að bregð­ast við far­aldr­inum og svara þeirri gagn­rýni sem hjarð­ó­næmis-sinnar hafa sett fram gagn­vart sótt­varna­ráð­staf­anir hér á landi og erlendis.

Svíar ekki að eltast við hjarðónæmi

Byrjað var á að ræða sænsku leið­ina svoköll­uðu, sem þátta­stjórn­andi sagð­ist hafa heill­ast af í vor, þar sem almenn­ingur hefði verið beð­inn um að taka ábyrgð á sínum eigin per­sónu­legu sótt­vörnum, þrátt fyrir að nú væri verið að fara í harð­ari aðgerðir í Svíþjóð. Þórólfur sagði, eins og áður segir, að hann teldi marga hafa rangan skiln­ing á því hvað „sænska leiðin“ væri.

„Ég held að menn hafi talið að Svíar væru að gera sem minnst og menn hafi verið að flýta sér að ná svoköll­uðu hjarð­ó­næmi, sem þýðir að menn væru að ná því að 60-70 pró­sent af þjóð­inni myndi sýkj­ast, og þá myndi nást þetta hjarð­ó­næmi sem þýddi það að [far­ald­ur­inn] myndi stoppa. Þetta hefur ekk­ert verið þannig í Svíþjóð. Það hafa verið tak­mark­anir,“ sagði Þórólfur og minnti á að lengi hefðu verið 50 manna sam­komu­tak­mark­anir í Svíþjóð, en í gær tóku þar reyndar gildi 8 manna sam­komu­tak­mark­anir á opin­berum við­burðum.

„Menn hafa held ég mis­skilið þetta aðeins,“ sagði Þórólfur, en þó væri ljóst að ýmis­legt hefði verið gert öðru­vísi í Svíþjóð en á Íslandi. Svíar hefðu til dæmis ekki verið að rekja smit né prófa marga fyrir veirunni í upp­hafi far­ald­urs­ins og hefðu ekki lokað landa­mærum sínum.

„Fólk fékk ekki próf, jafn­vel inni á spít­ölum, og það var svo­lít­ill munur. Núna eru Svíar upp á síðkastið að fikra sig meira inn á þetta að gera þetta svona, en ég held að það sé bara í far­alds­fræð­inni, þá er þetta of seint, þegar far­ald­ur­inn er kom­inn á blússandi sigl­ingu mun árang­ur­inn ekki verða jafn mark­tækur og sjá­an­legur og þegar þú grípur til þess­ara aðgerða strax í byrjun,“ sagði Þórólfur.

Mikil gagnrýni á nálgunina í Svíþjóð

„Þeir voru mjög harðir á því í byrjun Svíarnir – og ég ætla nú að passa mig að vera ekki með dóma yfir það sem aðrir eru að gera því maður þekkir ekki nógu vel hvað menn eru að gera og for­send­urnar – en þeir voru dálítið harðir á því í byrjun að tala um að þetta væri ekk­ert alvar­legur far­aldur og ekki alvar­legri en venju­leg inflú­ensa og svo­leiðis,“ sagði Þórólfur og bætti að hann teldi að „annað hafi nú komið upp á ten­ing­inn“.

„Þetta er bæði útbreidd­ara og tölu­vert alvar­legri sýk­ing heldur en venju­leg inflú­ensa. Það hefur verið tölu­vert mikil gagn­rýni á þetta innan Sví­þjóðar, á þessa aðferða­fræði og nálgun, það hafa verið smit­sjúk­dóma­læknar sem hafa gagn­rýnt þetta mjög harð­lega og það kann að vera að stjórn­völd séu að hlusta á það meira, en hins vegar hefur Anders Tegnell kollegi minn alveg haldið í sína stefnu og staðið sig vel í því í sjálfu sér,“ sagði Þórólfur.

Auðvelt að sitja heima og búa til einhvern útópíuheim

Þórólfur sagð­ist telja það óraun­hæft að verja við­kvæma hópa með þeirri „mark­vissu vernd“ sem boðuð var af höf­undum Great Barr­ington-yfir­lýs­ing­ar­innar og ýmsir hér­lendis hafa tekið upp á sína arma og talað fyrir.

„Þetta er ekki þannig að þú getir bara látið smit ganga yfir þá sem að þola það mjög vel. Þú veist það ekk­ert fyr­ir­fram,“ sagði Þórólfur og minnti jafn­framt á að það væri að koma betur og betur í ljós að „þessi COVID-sýk­ing getur haft alvar­legar lang­tíma­af­leið­ingar fyrir ein­stak­linga sem jafn­vel sýkt­ust ekk­ert alvar­lega og þurftu ekki að leggj­ast inn á spít­ala.“

„Við höfum verið að loka og vernda þessa við­kvæm­ustu hópa, eins og á hjúkr­un­ar­heim­il­inum og búin að leggja svaka­legt „effort“ í það og ég er ekk­ert viss um að það sé hægt að gera mikið meira til að loka það fólk af.

Ef við fáum mikið smit út í sam­fé­lagið þá erum við að smita líka starfs­menn þess­ara við­kvæmu stofn­ana, starfs­menn spít­al­anna sem þurfa að ganga þar vaktir og vinna með alls konar við­kvæma hópa og starfs­menn hjúkr­un­ar­heim­il­anna. Smitið er þannig að margir fá veik­ina til­tölu­lega vægt eða ein­kenna­laust en geta samt smitað, þá eru þeir að mæta inn á þessi heim­ili og áður en þú veist af þá eru smitin komin inn. Ef smitið er mjög útbreitt í sam­fé­lag­inu þá lekur það bara inn á þessar stofn­anir,“ sagði Þórólfur.

„Það er mjög auð­velt að sitja bara ein­hvers­staðar heima og búa til ein­hvern svona útóp­íu­heim, að nú bara lokum við alla af sem eru við­kvæmir og látum alla hina smit­ast, en það virkar bara ekki þannig,“ sagði Þórólfur í hlað­varps­þætt­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár