„Er ríkisstjórnin hrædd við fjölmiðla eða er hún hrædd við fjármálaöflin hér á landi?“

Vara­þing­maður Pírata telur að ef for­sæt­is­ráð­herra leggur tján­ing­ar­frelsi stór­fyr­ir­tækis að jöfnu við frelsi fjöl­miðla til að upp­lýsa almenn­ing um spill­ingu þá þurfi að skoða gild­is­matið hjá rík­is­stjórn­inni.

Olga Margrét Cilia, varaþingmaður Pírata.
Olga Margrét Cilia, vara­þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Olga Margrét Cilia, vara­þing­maður Pírata, segir að fjöl­miðlar þurfi að geta gagn­rýnt, bent á spill­ingu og sýnt vald­höfum og stór­fyr­ir­tækjum virkt aðhald og spyr enn fremur hvað rík­is­stjórnin ætli að gera í því að fyr­ir­tæki, sem er falið að fara með auð­lindir þjóð­ar­innar, nýti auð­lind­arent­una í her­ferðir gegn fjöl­miðlum í land­inu. Þetta kom fram í máli hennar á Alþingi í vik­unni undir liðnum störf þings­ins.

„Herferð Samherja, sem hefur staðið síð­ustu mán­uði og nú síð­ustu vikur með ofsa­fengnum árásum að heiðri og mann­orði Helga Seljans, hefur haft þau áhrif að Ísland hefur færst niður um sæti á lista yfir fjöl­miðla­frelsi landa, sem sam­tökin Blaða­menn án landamæra birtu fyrir stuttu. Samtökin til­greina sér­stak­lega her­ferð Samherja gegn fjöl­miðla­fólki sem hefur fjallað um starf­semi Samherja í Namibíu. Samtökin lýsa einnig yfir áhyggjum sínum af því að van­traust til blaða- og frétta­manna hafi færst í auk­ana á heims­vísu,“ sagði Olga Margrét.

[adspot]

Var hún sam­mála orðum Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra sem hún lét falla fyrr í vik­unni að auð­vitað væri flókið að setja tján­ing­ar­frels­inu skorður. Olga Margrét sagði aftur á móti að ef leggja ætti tján­ing­ar­frelsi stór­fyr­ir­tækis að jöfnu við frelsi fjöl­miðla til að upp­lýsa almenn­ing um spill­ingu þá þyrfti að skoða gild­is­matið hjá rík­is­stjórn­inni.

[links]

„Eða er það svo að við ætlum að virða tján­ing­ar­frelsi þeirra sem eiga pen­inga meira en þeirra sem svipta hul­unni af spill­ingu? Eru það pen­ingar sem skipta hér máli, arður sem hefur verið færður Samherja og öðrum stórum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum á silf­ur­fati? Er rík­is­stjórnin hrædd við fjöl­miðla eða er hún hrædd við fjár­mála­öflin hér á landi?“ spurði hún.

Fær eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins að vaða „hér uppi með óhróður“?

Jafn­framt spurði Olga Margrét hvort sam­trygg­ingin væri orðin slík að það væri látið við­gang­ast að eitt stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins, sem stýrði einni stærstu auð­lind þjóð­ar­innar, fengi að vaða hér uppi með óhróður sem hefur þann eina til­gang að kæfa gagn­rýnar umræður og koma í veg fyrir að frétta­menn geti sinnt starfi sínu.

„Að skjóta sendi­boð­ann svo að upp­lýs­ingar skili sér ekki til almenn­ings? Auðvitað þarf að bæta rekstr­ar­um­hverfi íslenskra fjöl­miðla en van­traust á fjöl­miðlum verður ekki lag­fært með slíkum ein­földum breyt­ingum. Ríkið og Alþingi þarf að sýna í aðgerðum og verki að við skiljum mik­il­vægi frjálsrar fjöl­miðl­unar á Íslandi, fjöl­miðla­frelsis og ekki síst tján­ing­ar­frelsis,“ sagði hún að lokum í ræðu sinni á þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár