Lífeyrissjóðirnir hafa ekki lánað jafn lítið á einum mánuði í tæp fimm ár

Í fyrsta sinn frá því í októ­ber 2015 lán­uðu íslenskir líf­eyr­is­sjóðir undir einum millj­arði króna á einum mán­uði til hús­næð­is­kaupa í apríl síð­ast­liðnum. Þar skiptir sam­komu­bann lyk­il­máli en hraðar vaxta­lækk­anir hafa líka þurrkað út for­skot sjóð­anna.

Útlán líf­eyr­is­sjóða í apr­íl­mán­uði námu 893 millj­ónum króna. Það er 13 pró­sent af þeirri upp­hæð sem sjóð­irnir lán­uðu út í mars, þegar þeir lán­uðu alls rúm­lega 6,6 millj­arða króna. Þetta er minnsta fjár­hæð sem líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa lánað út til hús­næð­is­kaupa frá októ­ber­mán­uði 2015, þegar end­ur­koma þeirra inn á þann markað hófst að af alvöru sam­hliða því að nokkrir stórir sjóðir lækk­uðu veru­lega vexti á lánum sínum, láns­hlut­fall var hækkað og lán­töku­kostn­aður lækk­aður umtals­vert.

Þetta kemur fram í nýlegum tölum Seðla­banka Íslands um umsvif íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins.

Sam­drátt­ur­inn í apríl átti sér stað þegar sam­komu­bann var í gildi á Íslandi vegna COVID-19 far­ald­urs­ins og sam­fé­lagið allt í hæga­gangi. Það útskýrir því að öllum lík­indum hann að mestu.

Útlán líf­eyr­is­sjóð­anna höfðu þó dreg­ist saman mán­uði til mán­aðar það sem af er ári. Í jan­úar lán­uðu þeir til að mynda 11,6 millj­arða króna en í mars höfðu útlánin tæp­lega helm­ing­ast. Útlánin í apríl voru síðan ein­ungis 7,6 pró­sent af því sem þau voru í jan­úar. 

Miklar breytingar á skömmum tíma

Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa verið með sterk tök á hús­næð­is­lána­mark­aðnum frá því í októ­ber 2015. Þeir hafa getað boðið mun betri vaxta­kjör en við­skipta­bankar vegna þess að á þeim hvíla ekki eig­in­fjár­kröfur né ýmsir sér­tækir banka­skattar, sem bank­arnir hafa þurft að verð­meta inn í kjör sín. Fyrir þá sem gátu tekið lán hjá líf­eyr­is­sjóðum þá marg­borg­aði það sig und­an­farin ár. Við­skipta­bank­arnir voru ein­fald­lega ekki sam­keppn­is­hæfir í kjörum.

Þar af leið­andi jókst umfang þeirra lána sem líf­eyr­is­sjóð­irnir lán­uðu ár frá ári. Í fyrra var metár í útlánum til sjóðs­fé­laga þegar þeir lán­uðu þeim í fyrsta sinn yfir 100 millj­arða króna. Nánar til­tekið 101,6 millj­arða króna.

[adspot]Síðustu vikur hefur staðan á þessum mark­aði breyst hratt.

Í fyrsta lagi hafa stýri­vextir lækkað úr 4,5 í 1,0 pró­sent á einu ári, og þorri þeirrar lækk­unar átti sér stað eftir að COVID-19 far­ald­ur­inn skall á í lok febr­úar. Á þessu tíma­bili hefur Seðla­bank­inn líka aflétt tveggja pró­senta sveiflu­jöfn­un­ar­auka á fjár­mála­fyr­ir­tæki og búið er að sam­þykkja að lækka banka­skatt niður í 0,145 pró­sent í lok árs 2020. Þessar breyt­ingar hafa gert það að verkum að við­skipta­bank­arnir skyndi­lega orðið sam­keppn­is­hæfir að nýju.

Bankarnir taka forystu á ný

Líkt og Kjarninn greindi frá í frétta­skýr­ingu í lok maí þá er for­skot líf­eyr­is­sjóð­anna óðum að hverfa. Stóru við­skipta­bank­arnir þrír; Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki, höfðu þá allir til­kynnt um umtals­verðar vaxta­lækk­anir í kjöl­far síð­ustu stýri­vaxta­lækk­un­ar. Með til­liti til verð­bólgu eru óverð­tryggð hús­næð­is­lán við­skipta­bank­ana því orðin þau hag­stæð­ustu sem í boði eru ef frá eru talin hús­næð­is­lán sem Birta líf­eyr­is­sjóður býður sjóð­fé­lögum sín­um, sem eru þau lægstu á mark­aðnum (2,1 pró­sent breyti­legir óverð­tryggðir vextir og 1,74 pró­sent breyti­legir verð­tryggðir vextir). Lán Birtu eru hins vegar að hámarki fyrir 65 pró­sent af kaup­verði á meðan að bank­arnir lána fyrir 70 pró­sent þess og standa ein­ungis til boða fyrir þá sem hafa greitt í sjóð­inn sam­fleytt í að minnsta kosti sex mán­uði.

[links]Þegar vaxta­lækk­anir bank­ana tóku gildi um síð­ustu mán­aða­mót voru breyti­legir óverð­tryggðir vextir á hús­næð­is­lánum hjá Lands­bank­anum orðnir 3,50 pró­sent. Á sam­bæri­legum lánum hjá Arion banka urðu vext­irnir 3,54 pró­sent og hjá Íslands­banka 3,70 pró­sent.

Verð­bólgan mælist nú 2,6 pró­sent á árs­grund­velli. Hald­ist hún í sama horf­inu er því ljóst að raun­vextir eru orðnir lægstir á óverð­tryggðum lánum bank­anna, ef miðað er ein­vörð­ungu við þá sem lána 70 pró­sent af mark­aðsvirði hið minnsta. Í síð­ustu mæl­ingum fór verð­bólgan yfir verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans í fyrsta sinn frá því í nóv­em­ber. Bank­inn spáir því að hún verði undir mark­miði á næst­unni en ljóst er að óvissan er mik­il.

Uppistaðan enn verðtryggð lán

Þangað til í apríl 2020 hafði það ein­ungis gerst þrisvar að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hefðu lánað meira óverð­tryggt en verð­tryggt. Það gerð­ist fyrst í des­em­ber 2018 og svo aftur í jan­úar 2019. Síðast gerð­ist það í októ­ber í fyrra. Í öll skiptin var verð­bólgan yfir verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans.

Það sem af er þessu ári höfðu lán­takar hjá líf­eyr­is­sjóð­unum hins vegar frekar tekið verð­tryggð lán en óverð­tryggð.

Í apríl voru hins vegar 83 pró­sent allra útlána líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga óverð­tryggð lán. Það verður þó að taka til­lit til þess að heild­ar­út­lán voru afar tak­mörkuð, eða ein­ungis 893 millj­ónir króna.

Verð­tryggð lán eru enn uppi­staðan í útlána­safni sjóð­anna, eða tæp­lega 78 pró­sent allra útlána þeirra eru slík lán.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár