Kortavelta ferðamanna einungis 23 prósent af því sem hún var í fyrra

Erlend korta­velta, sem sýnir eyðslu ferða­manna hér­lendis, er að nálg­ast frost­mark. Síðasta föstu­dag var hún minna en fjórð­ungur af því sem hún var sama dag í fyrra.

Eyðsla útlendinga hérlendis hefur dregist verulega saman á skömmum tíma.
Eyðsla útlend­inga hér­lendis hefur dreg­ist veru­lega saman á skömmum tíma. Mynd: Pexels.com

Korta­velta erlenda ferða­manna síð­ast­lið­inn föstu­dag var 23 pró­sent af því sem hún nam á sama degi í fyrra. Veltan hefur dreg­ist skarpt saman í mars­mán­uði en fyrstu daga hans var hún allt að 90 pró­sent af því sem hún var á sama degi árið 2019. Frá 12. mars hefur hún dreg­ist saman dag frá degi og var 20. mars, líkt og áður sagði, 23 pró­sent af því sem hún var þann dag á síð­asta ári.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá rann­sókn­ar­setri versl­un­ar­innar. Þar segir að erf­ið­ara sé að meta hvaða áhrif yfir­stand­andi ástand, sem er til­komið vegna efna­hags­legra áhrifa af útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum, hafi á inn­lenda korta­veltu Íslend­inga. „Í annarri viku mars var veltan 82 pró­sent af veltu síð­asta árs. En á þeim tíma féllu inn dag­arnir þar sem sam­komu­bann var kynnt. Velta í dag­vöru­verslun var ríf­lega tvö­falt meiri dag­ana 12. og 13. mars en sömu daga í fyrra en þá daga fjöll­uðu fjöl­miðlar um að land­inn væri að hamstra mat.“

[adspot]Ýmsar tölur hafa birst und­an­farna daga sem gefa til kynna hver efna­hags­leg áhrif af far­aldr­inum séu, að minnsta kosti til skamms tíma. Í kynn­ingu stjórn­valda á við­spyrnu fyrir efna­hags­lífið, sem fram fór í Hörpu á laug­ar­dag, kom fram að 75 pró­sent færri far­þegar hefðu farið um Kefla­vík­ur­flug­völl í lok síð­ustu viku en sama dag í fyrra, og þær tölur ríma ágæt­lega við sam­drátt í korta­veltu.

Þá greindi Icelandair frá því í til­kynn­ingu í gær að félagið væri ein­ungis að fljúga 14 pró­sent af flug­á­ætlun sinni. Búist er við því að far­þega­flug til lands­ins muni að mestu eða jafn­vel öllu leyti á næstu dögum eða vikum.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, greindi frá því í við­tali á RÚV í gær, að sam­kvæmt sviðs­myndum sem unnið væri með, og væru í stans­lausri upp­færslum liti út fyrir að Ísland gæti verið á leið í svip­aða nið­ur­sveiflu og eftir banka­hrun­ið, eða sex til sjö pró­sent sam­drátt.

Þá benda sviðs­myndir stjórn­valda til þess að atvinnu­leysi verði að með­al­tali um átta pró­sent yfir helsta kúf­inn, sem þýðir að topp­ur­inn verður hærri en það. Með­al­talið verður því í kringum 15 þús­und manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár