Þær sem brutu þagnarmúrinn eru persóna ársins hjá TIME

Tímaritið TIME Magazine hefur valið persónu ársins frá árinu 1927 og þetta árið urðu konurnar sem greindu frá kynferð­is­legri áreitni og ofbeldi opinber­lega fyrir valinu.

Konurnar sem greindu frá reynslu sinni og rufu þagnar­múrinn hafa verið valdar persóna ársins hjá tíma­ritinu TIME.

Í tilkynningu TIME segir að fólk sem brotið hefur þagnar­múrinn varðandi kynferðislegt ofbeldi og áreitni sé af öllum kynþáttum, í öllum stéttum, sinni ýmiss konar störfum og búi víðsvegar í heiminum. Sameiginleg reiði þeirra hafi haft í för með sér gríðar­lega miklar og átakanlegar afleiðingar. Vegna áhrifa þessa fólks á árinu 2017 hafi það því hlotið titilinn manneskja ársins.

Leiddi af sér byltingu

Myllu­merkið #metoo hefur verið mjög áberandi á samfélags­miðlum undan­farið. Ástæðan er fall og brot fram­leiðandans Harvey Weinstein. Hann hefur verið ásakaður um að áreita fjölda kvenna en margar leikkonur hafa stigið fram og greint frá sinni reynslu af honum.

Harvey Weinstein er annar stofnenda Miramax framleiðslu­fyrir­tækisins en hann hefur framleitt stór­myndir á borð við Pulp Fiction, Clerks, The Crying Game og Sex, Lies and Videotape. Hann hefur ásamt bróður sínum, Bob Weinstein, rekið framleiðslu­fyrirtækið The Weinstein Company frá árinu 2005.

Í The New York Times kom fram að Weinstein hafi á þrjátíu ára ferli greitt skaða­bætur í að minnsta kosti átta aðskildum málum vegna marg­víslegra brota tengdum kynferðis­áreitni.

Fjöldi brotaþola er gríðar­legur en líklegt þykir að tugir kvenna hafi orðið fyrir barðinu á honum. Meðal þeirra kvenna eru leik­konurnar Ashley Judd og Rose MacGowan, ítölsk fyrirsæta að nafni Ambra Battilana og tvær aðstoðar­konur Weinstein.

Leikkonan Alyssa Milano, sem er fræg fyrir leik sinn í þáttunum Melrose Place, Who´s the Boss og Charmed, var áhrifa­valdur þess að #metoo náði slíkri útbreiðslu sem raun ber vitni eftir að hún hvatti á Twitter þann 15. október síðastliðinn konur að stíga fram og segja frá reynslu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið undanfarið ár