Sjálfstæðisflokkurinn vildi að borgin lánaði leigjendum til að kaupa félagslegar íbúðir

Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks vildu að leigj­endum Félags­bú­staða yrði gert kleift að kaupa íbúð­irnar sem þeir búa í. Reykja­vík­ur­borg átti að lána þeim fyrir útborgun. Sós­í­alista­flokk­ur­inn vildi fella niður eins mán­aðar leigu.

Eyþór Arnalds er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Eyþór Arnalds er odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Á borg­ar­stjórn­ar­fundi á þriðju­dag lögðu borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks fram til­lögu um að gera fólki sem leigir félags­legt hús­næði Félags­bú­staða kleift að eign­ast það.

Í til­lög­unni fólst að Félags­bú­staðir, sem eru að öllu leyti í eigu Reykja­vík­ur­borgar, myndu selja allt að 100 íbúðir árlega eða allt að 300 íbúðir á þremur árum. „Þannig láni Reykja­vík­ur­borg fyrir útborgun í félags­legu hús­næði til handa núver­andi leigj­endum með sér­stöku eig­in­fjár­láni til þriggja ára sem gerir þeim sem eru eigna­minni auð­veld­ara að greiða útborg­un­ina. Þannig myndi Reykja­vík­ur­borg lána allt að 20 pró­sent.“

Tillagan er felld með 14 atkvæðum borg­ar­full­trúa Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar, Pírata, Sós­í­alista­flokks Íslands, Vinstri grænna og Flokks fólks­ins gegn níu atkvæðum borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Mið­flokks­ins.

Á sama fundi var til­laga Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur, borg­ar­full­trúa Sós­í­alista­flokks Íslands, um nið­ur­fell­ingu leigu hjá leigj­endum Félags­bú­staða á kreppu­tímum lögð fram.

Hún sner­ist um að fella niður leigu hjá leigj­endum Félags­bú­staða í einn mánuð, jan­ú­ar­mánuð 2022, og að borg­ar­sjóður bæti Félags­bú­stöðum tekju­tap vegna þessa, alls um 380 millj­ónir króna. Á móti myndu sér­stakar hús­næð­is­bætur upp á 52 millj­ónir króna falla niður og kostn­að­ar­auki vegna til­lög­unnar því sam­tals 328 millj­ónir króna.

Tillagan var felld með felld atkvæðum borg­ar­full­trúa Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar, Pírata og Vinstri grænna gegn tveimur atkvæðum borg­ar­full­trúa Sós­í­alista­flokks Íslands og Flokks fólks­ins. Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Mið­flokks­ins sátu hjá við afgreiðslu máls­ins.

Íbúarnir borga lægri leigu og eru ánægðari

Í Reykja­vík er 78 pró­sent af öllu félags­legu hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þótt íbúar höf­uð­borg­ar­innar séu 56 pró­sent íbúa á svæð­inu.

Alls halda Félags­bú­staðir á 2.966 íbúðum. Almennar íbúðir eru 2.154, 428 eru svo útbúnar fyrir fatl­aða, 384 eru fyrir aldr­aða og 43 íbúð­ar­ein­ingar eru fyrir heim­il­is­laust fólk. Að öllu með­töldu er 22 félags­leg íbúð á hverja 1.000 íbúa Reykja­víkur – en þeir voru 134.162 tals­ins þann í upp­hafi ágúst. Heild­ar­fjöldi félags­legra íbúða í Reykja­vík við árs­lok 2017 var sagður 2.513 og hefur þeim því fjölgað um rúm­lega 450 síðan þá.

Í nýlegri könnun kom fram að 84 pró­sent leigj­enda óhagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga á borð við Félags­bú­staði eru ánægðir með að leigja þar. Ánægjan hjá þeim sem leigja hjá einka­reknu leigu­fé­lög­unum á Íslandi er hins vegar mun minni, en á meðal leigj­enda þeirra segj­ast 64 pró­sent vera ánægð með núver­andi hús­næði.

Tölu­verður munur er á því að leigja af einka­að­ila og því að leigja af hinu opin­bera. Í mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) sem birt var í októ­ber kom fram að það kosti að með­al­tali 168 þús­und krónur á mán­uði að leigja af einka­að­ila en 126 þús­und krónur á mán­uði að leigja íbúð í eigu ríkis eða sveit­ar­fé­laga.

Því er þriðj­ungi dýr­ara að leigja af einka­að­ila en af opin­berum aðila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár