Þekktur andstæðingur innflytjenda skrifar nafnlaust á Eyjuna

Magnús Þór Haf­steins­son, þekktur and­stæð­ingur flótta­manna sem skip­aði odd­vita­sæti hjá Flokki fólks­ins, skrifar nafn­lausar greinar á Eyjuna, meðal ann­ars um að „vargöld“ ríki í Stokk­hólmi.

Skrifaði nafnlaust á Eyjuna
Skrifaði nafn­laust á Eyjuna Magnús Þór Haf­steins­son er rit­stjóri blaðs­ins Vest­ur­land hjá fjöl­miðla­veldi Björns Inga Hrafns­sonar og við­skipta­fé­laga.

Magnús Þór Haf­steins­son, sem skip­aði odd­vita­sæti í Flokki fólks­ins og er þekktur and­stæð­ingur flótta­manna, skrifar nafn­lausar greinar á Eyjuna.is, meðal ann­ars um að „vargöld“ sé í Stokk­hólmi, höf­uð­borg Sví­þjóðar, vegna glæpa.

Nýjasta grein hans bar yfir­skrift­ina „Vargöld í Stokk­hólmi: Lög­reglan biður um liðs­auka“. Í frétt­inni er greint frá því að lög­reglan í Stokk­hólmi kort­leggi nú þörf fyrir auk­inn mann­afla, en að um sé að ræða upp­gjör glæpa­hópa og að hætta fyrir almenn­ing hafi ekki auk­ist. „Segja má að vargöld ríki nú í borg­inni,“ segir í frétt­inni. Í ummælum við frétt­ina er varað við inn­flytj­endum. „Viljum við virki­lega fá þetta fólk hingað?“ segir einn. Frétt Eyjunnar hefur verið deilt í hópi Íslend­inga sem eru and­snúnir inn­flytj­endum og meðal ann­ars vísað til orða Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta, sem gaf rang­lega til kynna að hryðju­verka­árás hefði átt sér stað í Svíþjóð þegar hann hélt ræðu fyrir stuðn­ings­menn sína í Flórída á dög­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár