Tugþúsundir tonna af úrgangi eftir baráttu við heimsfaraldur ógn við umhverfið og heilsu

Hlífð­ar­fatn­aður, bólu­efna­um­búðir og sprautur. Baráttan við heims­far­ald­ur­inn hefur kostað sitt. Sótt­næmur úrgangur eftir tveggja ára bar­áttu við COVID-19 skiptir tug­þús­undum tonna og WHO varar við umhverfis- og heilsu­far­sógn.

Heilbrigðisstarfsmaður á COVID-spítala í Ahmedabad á Indlandi fyllir bíl af úrgangi sem fellur til við meðhöndlun sjúklinga.
Heil­brigð­is­starfs­maður á COVID-spít­ala í Ahmeda­bad á Indlandi fyllir bíl af úrgangi sem fellur til við með­höndlun sjúk­linga. Mynd: EPA

Gríð­ar­legt magn af sótt­næmum úrgangi (e. medical waste) sem hefur mynd­ast í bar­átt­unni gegn heims­far­aldri COVID-19 síð­ast­liðin tvö ár er ógn við heilsu og umhverfi fólks að mati Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO).

Notaðar bólu­efna­sprautur, sýna­töku­bún­aður og umbúðir af bólu­efnum hafa hlað­ist upp og myndað tug­þús­undir tonna rusla­fjöll af sótt­næmum úrgangi. Fyr­ir­tæki sem sjá um förgun slíks úrgangs eiga í vand­ræðum með að sinna förgun sökum magns, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar.

Þar kemur meðal ann­ars fram að stór hluti af 87 þús­und tonnum af hlífð­ar­fatn­aði sem úthlutað var í gegnum Sam­ein­uðu þjóð­irnar frá mars 2020 og fram í nóv­em­ber á síð­asta ári endar sem úrgangur. Auk þess er metið að 2.600 tonn af plast­úr­gangi mynd­ist við 140 milljón sýna­töku­sett og að af átta millj­örðum bólu­efna­skammta sem dreift hefur verið á heims­vísu mynd­ast 144 þús­und tonn af úrgangi í formi lyfjaglasa úr gleri, not­uðum sprautum og örygg­is­kössum.

Þó svo að Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin telji það ekki nauð­syn­legt að nota hanska við bólu­setn­ingar kemur fram í skýrsl­unni að það tíðk­ist víða, til að mynda í Bret­landi þar sem áætlað er að hver heil­brigð­is­starfs­maður noti að með­al­tali 50 pör af hönskum á viku sem enda í almennu rusli.

„Það skiptir höf­uð­máli að útvega heil­brigð­is­starfs­fólki við­eig­andi hlífð­ar­búnað. En það skiptir líka máli að tryggja að bún­að­ur­inn sé not­aður með öruggum hætti án þess að stofna umhverf­inu í hættu,“ segir Michael Ryan, stjórn­andi neyð­ar­að­gerða hjá Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni.

Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, for­stjóri Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar, segir skýrsl­una áminn­ingu um að þrátt fyrir að heims­far­ald­ur­inn sé ein mesta heilsu­far­sógn síð­ustu hund­rað ára teng­ist hann mörgum öðrum áskor­unum sem ríki heims­ins standa frammi fyrir.

Eins og staðan er í dag eru 30 pró­sent heil­brigð­is­stofn­ana ekki í stakk búnar til að með­höndla úrgang. Hvað þá þann við­bót­ar­úr­gang sem mynd­ast hefur vegna heims­far­ald­urs­ins. Heil­brigð­is­starfs­fólk getu því verið ber­skjaldað fyrir nála­stungum, bruna­sárum og örverum sem geta valdið sjúk­dómum. Þá geta rusla­haugar þar sem úrgangur er brenndur og eft­ir­liti er ábóta­vant ollið loft- og vatns­mengun í nán­asta umhverfi.

Í skýrsl­unni eru ýmsar lausnir lagðar fram, til að mynda umhverf­is­vænni pakkn­ingar og flutn­ings­leiðir fyrir lækn­inga­vörur sem not­aðar eru í bar­átt­unni við COVID-19 og að not­ast sé við hlífð­ar­fatnað úr end­urunnum efnum. Þá er mælt með að sorp­brennslu á sótt­næmum úrgangi verði hætt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár