Vill framlengja skattfrjálsa heimild fyrir þá sem nota séreign til að borga niður húsnæði

Frá miðju ári 2014 hefur tæp­lega þriðj­ungur íslensks vinnu­mark­aðar fengið yfir 21 millj­arð króna í skatt­afslátt til að borga niður hús­næð­is­lánin sín. Nú á að fram­lengja það úrræði. Reykja­vík vill að ríkið bæti borg­inni tekju­tap sem úrræðið veldur henni.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Golli

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur kynnt drög að frum­varpi sem hefur þann til­gang að fram­lengja heim­ild til að nýta sér­eign­ar­sparnað skatt­frjálst til að greiða niður hús­næð­is­lán um tvö ár. Heim­ildin var fyrst kynnt til leiks sem hluti af Leið­rétt­ing­unni svoköll­uðu og tók gildi sum­arið 2014. Þá átti hún að gilda í þrjú ár. Síðan þá hefur hún verið fram­lengd tví­vegis til tveggja ára í senn og nú stendur til að fram­lengja hana til loka júní­mán­aðar 2023.

Alls hafa um 59 þús­und manns nýtt sér úrræðið frá því að það var kynnt til leiks til að greiða alls 81,5 millj­arða króna inn á hús­næð­is­lán sin. Til við­bótar hafa nálægt fjögur þús­und ein­stak­lingar nýtt sam­bæri­legt úrræði, „Fyrstu fast­eign“, sem er ætlað fyrir þá sem eru að kaupa hús­næði í fyrsta sinn, en sá hópur hefur greitt um 10,5 millj­arða króna inn á hús­næð­is­lán frá árinu 2017.

Sam­an­lagt hafa því 62.952 ein­stak­lingar, um 30 pró­sent allra sem eru á vinnu­mark­aði á Íslandi, nýtt sér þetta skatt­frjálsa úrræði. Frá því að fyrsta úrræðið var kynnt til leiks hefur þessi hópur, tæpur þriðj­ungur vinnu­mark­aðar og 17 pró­sent þjóð­ar­innar, fengið 21,1 millj­arð króna í skatt­afslátt sem öðrum hefur ekki staðið til boða. Sá afsláttur hefur orðið til þess að lækka tekjur rík­is­sjóðs og sveit­ar­fé­laga.

Í mati á áhrifum frum­varps­ins sem nú liggur fyrir kemur fram að það megi ætla að sam­an­lagt tekju­tap ríkis og sveit­ar­fé­laga, vegna skatt­tekna sem þau gefa eftir, verði á bil­inu sex til átta millj­arðar króna á tíma­bil­inu sem fram­leng­ingin nær til.

Reykjavíkurborg vill fá tekjutap bætt

Á meðal þeirra sem skil­uðu umsögn um frum­varpið í sam­ráðs­gátt stjórn­valda var Reykja­vík­ur­borg, langstærsta sveit­ar­fé­lag lands­ins og það stjórn­vald utan rík­is­sjóðs sem verður fyrir mestu tekju­tapi vegna skatta­af­slátt­ar­ins.

Í umsögn borg­ar­innar segir að ríkið hafi velt umtals­verður hluta af kostn­að­inum vegna úrræð­is­ins yfir á sveit­ar­fé­lög og að Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga áætli tekju­tap þeirra vegna þessa á um tvo millj­arða króna á ári. Þar af er tekju­tap Reykja­vík­ur­borgar 650 til 700 millj­ónir króna á ári og sam­an­lagt útsvars­tekju­tap borg­ar­innar frá 2014 til 30. júní næst­kom­andi allt að fimm millj­arðar króna. Á móti þessu tekju­tapi hafi höf­uð­borgin fengi ein­skipt­is­fram­lag upp á 244 millj­ónir króna úr Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga á árinu 2017.

[adspot]Í umsögn borg­ar­innar er bent á að hún standi fyrir umfangs­miklum og kostn­að­ar­sömum hús­næð­is­stuðn­ingi við þá sem minna mega sín, til dæmis vegna lágra launa, þungrar fram­færslu­byrðar eða félags­lega aðstæðna. Á árinu 2020 hafi þessi stuðn­ingur numið 1,2 millj­örðum króna.

Reykja­vík­ur­borg gerir í umsögn sinni kröfu um að sveit­ar­fé­lögum verði bætt það útsvars­tekju­tap sem hlýst af ákvörðun Alþingis um skatt­frjálsa ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar. „Þetta er ekki lög­bundið verk­efni sveit­ar­fé­laga eins og sér­stakur hús­næð­is­stuðn­ingur og flest sveit­ar­fé­lög glíma við erf­iðan halla­rekstur um þessar mundir vegna heims­far­ald­urs Covid-19,“ segir í umsögn­inni.

Þeir sem þurfa að láta enda ná saman greiða skatt

Þetta er ekki eina nýt­ingin á sér­eign­ar­sparn­aði sem stjórn­völd hafa heim­ilað. Í fyrsta efna­hag­s­pakka rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur, sem kynntur var 21. mars 2020, var ein af aðgerð­unum sem kynnt var til leiks sú að lands­mönnum gert kleift að taka út sér­eigna­sparnað til að takast á við skamm­tíma­fjár­hags­vanda. Þeir sem nýttu sér þetta úrræði þurftu þó að greiða skatt af sparn­að­inum þegar hann var tek­inn út. Því var líka um tekju­skap­andi aðgerð að ræða fyrir rík­is­sjóð.

[links]Upp­haf­lega reikn­aði rík­is­stjórnin með því að teknir yrðu út um tíu millj­arðar króna af þessum sparn­aði, sem var upp­haf­lega hugs­aður til að auka ráð­stöf­un­arfé fólks þegar það fer á eft­ir­laun. Eft­ir­spurnin eftir nýt­ingu á úrræð­inu reynd­ist hins vegar miklu meiri en búist var við og nú áætlað stjórn­völd að útgreiðslur verði 28,6 millj­arðar króna fram í mars á næsta ári, þegar heim­ild til útgreiðslu lýkur. Það þýðir að lands­menn tóku út tæp­lega þrisvar sinnum meira af sparn­aði sínum til að takast á við efna­hags­legar afleið­ingar COVID-19 en upp­haf­lega var reiknað með.

Þann 14. apríl síð­ast­lið­inn var búið að greiða þorra þeirrar upp­hæðar út, eða alls 26,9 millj­arða króna. Ætla má að skatt­greiðslur til ríkis og sveit­ar­fé­laga vegna þessa hafi verið um 9,5 millj­arðar króna. Þegar upp verður staðið munu skatt­greiðsl­urnar fara yfir tíu millj­arða króna.

Ekki hefur verið birt neitt nið­ur­brot á þeim hópi sem hefur nýtt sér þetta úrræði en ætla má að þar sé, að minnsta kosti að hluta, um að ræða fólk sem hefur átt í greiðslu­erf­ið­leikum vegna efna­hags­legra áhrifa COVID-19. Þeir sem fóru úr vel laun­uðum störfum á atvinnu­leys­is­bætur eru lík­legri til að til­heyra þessum hópi en aðrir, þar sem tekju­hærri hafa almennt verið lík­legri til að spara sér­eign en tekju­lægri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár