Bjarni kallaði niðurstöður Gylfa Zoega um fjármögnun Landspítala „hátimbraðar“

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra sagði í pall­borðsum­ræðum á vegum ASÍ í dag að hann teldi nið­ur­stöður hag­fræði­pró­fess­ors um fjár­mögnun Land­spít­ala vera „mjög hátimbraðar“ eins og hann horfði á það.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra telur að nið­ur­stöður Gylfa Zoega hag­fræði­pró­fess­ors um fjár­mögnun heil­brigð­is­kerf­is­ins, sem settar voru fram í nýlegri grein í Vís­bend­ingu, séu „hátimbraðar“ eins og hann horfi á það.

Bjarni var spurður út í nið­ur­stöður Gylfa í pall­borðsum­ræðum á meðal full­trúa stjórn­mála­flokk­anna sem Alþýðu­sam­band Íslands stóð fyrir í dag. Gylfi komst að þeirri nið­ur­stöðu í grein sinni að færa mætti rök fyrir því að Land­spít­al­ann skorti fjár­magn, þrátt fyrir að fjár­fram­lög til hans hefðu hækkað tölu­vert á síð­ustu árum.[links]

Hag­fræði­pró­fess­or­inn sagði að ef til­lit væri tekið til launa­hækk­ana þá hefðu fjár­fram­lög hins opin­bera til Land­spít­al­ans ekki auk­ist jafn mikið og þörfin fyrir sjúkra­hús­þjón­ustu á síð­ustu árum og benti á að í umræðum um fjár­mögnun þjóð­ar­sjúkra­húss­ins, sem staðið hafa yfir und­an­farnar viku, mætti því segja að bæði stjórn­mála­menn og stjórn­endur spít­al­ans hefðu nokkuð til síns máls.

Bjarni sagði að nið­ur­stöður Gylfa hefðu „miðað við ákveðnar gefnar for­sendur um vænta þjón­ustu­þörf spít­al­ans fram á við reiknað og svo fram­vegis“ og bætti því við að um væri að ræða „mjög hátimbraðar nið­ur­stöður eins og ég horfi á það.“

Bjarni vék síðan tal­inu að öðru en nið­ur­stöðum hag­fræð­ings­ins og sagði að stað­reyndin væri sú að Íslend­ingar hefðu aldrei sett meira af því sem rík­is­sjóður hefði úr að spila í heil­brigð­is­mál. „Við höfum aldrei sett jafn hátt hlut­fall af tekj­unum í þennan mála­flokk,“ sagði Bjarni og skaut Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ingar því þá inn í umræð­una að þjóð­ar­fram­leiðslan hefði lækkað veru­lega.

Sagði Sjálfstæðisflokkinn ekki kalla eftir stórauknum einkarekstri

Bjarni sagði heil­brigð­is­málin þó áskorun og að allar þjóðir stæðu frammi fyrir gríð­ar­legri áskorun á sviði heil­brigð­is­mála um þessar mundir. „Við erum líka að eld­ast sem þjóð, ef að fólki finnst heil­brigð­is­kerfið dýrt í dag þá er ég með skila­boð, þetta verður dýr­ara í fram­tíð­inni,“ sagði Bjarni.

[adspot]

Fjár­mála­ráð­herra sagði að af þessum sökum ættum við allt undir því að vera með skil­virkt kerfi og sagði flösku­háls­ana allt of marga í kerf­inu í dag. „Ég verð bara að við­ur­kenna það,“ sagði Bjarni og bætti við að það virt­ist vanta betri heild­ar­stýr­ingu í heil­brigð­is­kerfið.

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Kristján Krist­jáns­son, sem stýrði pall­borðsum­ræðum ASÍ, spurði Bjarna að því hvort vilji Sjálf­stæð­is­flokks­ins stæði til þess að einka­rekstur í kerf­inu yrði meiri en hann er í dag. Bjarni sagði svo ekki vera, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri ekki að kalla eftir því að það yrði stór­auk­inn einka­rekstur í kerf­inu.

Hann sagði þó að það væri baga­legt að hafa lausa samn­inga við sér­fræð­inga í einka­rekstri og við þá ætti að semja og gera um leið „hámarks­kröfur“ um að ríkið væri að fá topp­þjón­ustu fyrir féð sem varið væri í kaup á þjón­ustu einka­að­ila. Hið sama ætti einnig að gilda um þá þjón­ustu sem veitt væri af hinu opin­bera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár