Fimmtungur Íslendinga býr við leka- og rakavandamál

Hlutfall þeirra sem telja sig búa við leka- og/eða raka­vanda­mál hér á landi er þrefalt hærra hér en í Noregi.

Leka- og raka­vanda­mál eru mun algeng­ari hér á landi en í öðrum löndum innan Evr­ópu­sam­bands­ins. Hlutfall þeirra sem telja sig búa við slíkan vanda hér á landi er 19 pró­sent sem er þrefalt hærra hlut­fall en í Noregi. Þetta kemur fram í skýrslu Íslands­banka um íbúða­mark­að­inn.

Plássleysi ekki mikið vandamál

Mikil umræða hefur verið um heilsu­spill­andi áhrif raka­skemmda hér á landi á síð­ustu árum. Í nýrri skýrslu Íslands­banka kemur fram að hlut­fall þeirra sem búa við leka- og/eða raka­vanda­mál hér á landi er ansi hátt eða alls um fimmt­ungur lands­manna. Það er rúm­lega þrisvar sinnum fleiri en í Noregi en að með­al­tali telja 13 pró­sent íbúa sig búa við þennan vanda innan Evr­ópu­sam­bands­ins.

Erfitt er að segja til um orsakir þessa en sam­kvæmt Íslands­banka hlýtur athyglin að bein­ast meðal ann­ars að veðr­áttu, við­haldi og gæðum hús­bygg­inga hér á landi almennt.

Aftur á móti virð­ist pláss­leysi ekki vera umfangs­mikið vanda­mál hér­lendis í alþjóð­legu sam­hengi, sam­kvæmt skýrslu Íslands­banka. Alls telja um 7 pró­sent Íslend­inga sig búa við pláss­leysi.

Það er svipað hlut­fall og í Noregi og Finn­landi en nokkuð lægra en í Danmörku þar sem 9 pró­sent telja sig búa við pláss­leysi og um helm­ingi lægra en í Svíþjóð. Þá nemur hlut­fallið að með­al­tali 15 pró­sentum hjá aðild­ar­ríkjum ESB .

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár