Hvert fyrirtæki má að hámarki taka við 100 milljónum í „ferðagjöf“ frá ríkinu

Allir sjálf­ráða Íslend­ingar munu fá fimm þús­und króna gjöf til að eyða inn­an­lands í sumar. Gjöfin verður afhent í gegnum smá­forrit og hægt verður að fram­selja hana til ann­arra.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Stafræn ávísun upp á fimm þús­und krónur, sem allir sjálf­ráða lands­menn munu fá senda, verður fram­selj­an­leg til ann­arra en einn ein­stak­lingur mun ein­ungis mega geta greitt fyrir með 15 slíkum ávís­unum, eða fyrir 75 þús­und krónur. Ávís­an­irnar, eða ferða­gjaf­irnar eins og þær eru kall­aðir í frum­varpi sem Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, hefur lagt fram frum­varp á Alþingi, gilda út þetta ár.

Hvert og eitt fyr­ir­tæki mun að hámarki tekið við 100 millj­ónum króna í formi ferða­gjafa og fyr­ir­tæki sem metið var í rekstr­ar­erf­ið­leikum 31. des­em­ber 2019 getur að hámarki tekið við sam­an­lagt 25 millj­ónum króna.

Útfærð í formi smáforrits

Um er að ræða aðgerð sem kynnt var 21. mars síð­ast­lið­inn, þegar rík­is­stjórnin opin­ber­aði fyrsta aðgerð­ar­pakk­ann sinn. Í henni felst að senda á öllum ein­stak­lingum 18 ára og eldri með íslenska kenni­tölu star­fræna fimm þús­und króna gjöf útgefna af stjórn­völdum.

Frum­varp­inu var hins vegar fyrst dreift á Alþingi á föstu­dag, rúmum tveimur mán­uðum eftir að málið var kynnt.

[adspot]Í því kemur fram að lands­menn muni geta notað ferða­gjöf­ina hjá öllum fyr­ir­tækjum sem eru með gilt leyfi hjá Ferða­mála­stofu, sem eru með gilt leyfi til að reka veit­inga­staði, gisti­staði eða stunda skemmt­ana­hald og hjá þeim fyr­ir­tækjum sem eru með gilt starfs­leyfi frá heil­brigð­is­nefnd. Auk þess má nýta hana hjá öku­tækja­leigum, söfnum og fyr­ir­tækjum sem bjóða sýn­ingu „gegn end­ur­gjaldi þar sem áhersla er á íslenska menn­ingu, sögu eða nátt­úru.“

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að ferða­gjöfin sé „ útfærð í formi smá­forrits í far­síma sem verður hægt að nota á ein­faldan hátt til greiðslu. Einnig verður boðið upp á notkun greiðslukóða gegnum inter­netið. Miðstöð verk­efn­is­ins verður vef­svæðið Ferdalag.is sem hýsir jafn­framt hvatn­ing­ar­á­tak um ferða­lög innan lands sem Ferða­mála­stofa ann­ast.[...]Smá­forritið býður upp á ein­falda lausn við milli­færslu ferða­gjafar, gef­anda og mót­tak­anda að kostn­að­ar­lausu.“

Áætlaður kostn­aður rík­is­sjóðs vegna ferða­gjaf­ar­innar er 1,5 millj­arðar króna.

Vill skala hugmyndina upp

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, sagði í nýlegu við­tali við Kjarnann að ein leið til að örva eft­ir­spurn eftir ferða­þjón­ustu í sumar væri að skala upp hug­mynd­ina um ferða­gjöf­ina og eyða hærri fjár­hæð en 1,5 millj­arði króna í hana.

„Tækni­lausnin liggur fyr­ir, útfærslan er ein­föld. Það væri hægt að skala þetta upp og búa til veru­lega eft­ir­spurn eftir ferða­þjón­ust­unni á Íslandi og flétta það síðan saman við opnun landamæra sem verður þó háð því hvernig öðrum löndum tekst að eiga við plág­una.“

Hægt er að lesa við­talið við Sig­urð Inga í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár