Alma: Það verður að leysa þessa deilu

Land­læknir lýsir yfir áhyggjum sínum af stöðu kjara­samn­inga hjúkr­un­ar­fræð­inga og biðlar til samn­inga­nefnda rík­is­ins og Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga að setj­ast að samn­inga­borð­inu.

Alma Möller, landlæknir.
Alma Möller, land­læknir. Mynd: Lögreglan

„Við höfum alltaf sagt að það mik­il­væg­asta til að takast á við þennan far­aldur er mann­skapur og skortur á heil­brigð­is­starfs­fólki er alþjóð­legur. Það er áætlað að það vanti 18 millj­ónir heil­brigð­is­starfs­manna fram til árs­ins 2030 til að upp­fylla grunn­heil­brigð­is­þjón­ustu – og þar af er helm­ing­ur­inn hjúkr­un­ar­fræð­ingar.“

Þetta sagði Alma Möller land­læknir á blaða­manna­fundi í dag. Hún benti á að ef eitt­hvað gott ætti að koma út úr þessum far­aldri þá væri það ekki síst að meta mik­il­vægi heil­brigð­is­starfs­manna.

[adspot]

„Ég vil sem land­læknir lýsa áhyggjum mínum af stöðu kjara­samn­inga hjúkr­un­ar­fræð­inga og vil biðla til samn­inga­nefndar rík­is­ins og samn­inga­nefndar Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga að setj­ast nú að samn­inga­borð­inu. Ég veit að þau eru búin að vera þar mikið en það verður að leysa þessa deilu. Ég biðla því til rík­is­sátta­semj­ara einnig,“ sagði hún.

Hún sagði enn fremur að þessi óvissa sem ríkir vegna samn­ings­leysis væri eitt­hvað „sem við gætum verið án“. Því það hefði auð­vitað áhrif á mönnun næstu vikna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár