Fjöldi íbúða sem er til sölu rýkur upp – hafa ekki verið verið fleiri frá því í fyrravor

Nú eru rúm­lega eitt þús­und íbúðir til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þær hafa ekki verið svo margar síðan vorið 2021 og eru nú 132 pró­sent fleiri en í febr­úar síð­ast­liðnum. Skýr merki eru til staðar um að aðgerðir til að kæla mark­að­inn séu að virka.

Alls eru 1.013 íbúðir til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nú, og þeim hefur fjölgað um 313 á einum mán­uði, eða um 45 pró­sent. Þetta er í fyrsta sinn síðan vorið 2021 sem fleiri en eitt þús­und íbúðir eru til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem birt var á vef Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) í dag.

Miklar sveiflur hafa verið á fram­boði íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu und­an­farin ár. Þannig var fram­boðið umtals­vert í maí 2020, þegar um 2.200 íbúðir voru aug­lýstar til sölu. Í febr­úar 2022, náði fram­boðið hins vegar sögu­legu lág­marki þegar ein­ungis 437 íbúðir voru aug­lýstar til sölu.

Í umfjöllun HMS kemur fram að fram­boðs­aukn­ingin virð­ist einkum vera til komin vegna eldri íbúða en fram­boð á nýjum íbúðum hefur vaxið hægar. „Nú eru 151 ný íbúð til sölu en fjöldi þeirra fór minnst í 57 íbúðir. Aukið fram­boð er því ekki hægt að skýra með auknu fram­boði nýrra íbúða heldur er lík­leg­asta skýr­ingin sú að hægt hafi á sölu vegna minnk­andi eft­ir­spurnar. Um helm­ingur íbúða til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er á aug­lýstur á 75 m.kr. eða meira.“

Hærri vextir og takmarkanir á útlánum

Staðan sem komin er upp er afleið­ing af þeim aðgerðum sem Seðla­banki Íslands hefur gripið til til að kæla mark­að­inn. Þar ber fyrst að nefna að bank­inn hefur hækkað stýri­vexti úr 0,75 í 5,75 pró­sent frá því í maí í fyrra, með til­heyr­andi áhrifum á greiðslu­byrði íbúða­lána heim­ila.

Í frétt RÚV frá því um liðna helgi kom fram að greiðslu­byrði af óverð­tryggðum lánum hafi í mörgum til­vikum auk­ist um ríf­lega hund­rað þús­und krónur á mán­uði, en slíkt teg­und lána naut gríð­ar­legra vin­sælda á þeim tíma sem vextir voru lágir. Búast má við því að greiðslu­byrðin muni hækka enn meira.

Auk þess hefur bank­inn hert lána­skil­yrði til að tak­marka enn frekar aðgengi ýmissa hópa að láns­fjár­mögnun til íbúð­ar­kaupa. Þetta er gert til að takast á við verð­bólgu, sem mælist nú 9,7 pró­sent og lækk­aði lít­il­lega milli mán­aða, en helsti drif­kraftur hennar eru gríð­ar­legar hækk­anir á hús­næð­is­verði. Segja má að Seðla­bank­inn hafi sjálfur leikið lyk­il­hlut­verk í því að skapa þær aðstæður sem hann er nú að leysa með því að lækka vexti niður í 0,75 pró­sent á sínum tíma, sem voru lægstu vextir í Íslands­sög­unni, og með því að auka útlána­getu við­skipta­banka um mörg hund­ruð millj­arða króna með því að afnema tíma­bundið svo­kall­aðan sveiflu­jöfn­un­ar­auka sem leggst ofan á eigið fé þeirra.

Hægir á hækkun íbúðaverðs

Í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu HMS kom fram að heim­ili með hámarks­greiðslu­getu upp á 200 þús­und krónur á mán­uði gátu í apríl tekið 47 millj­óna króna verð­tryggt lán en geta nú mest fengið 35 millj­ónir króna að láni.

Ef þau vildu taka óverð­tryggt lán þá gátu þau tekið 72 millj­ónir króna í apríl en vegna nýrra krafna og hærri vaxta gætu þau nú mest tekið 42 millj­ónir króna. „Því má ætla að margir verði afhuga íbúð­ar­kaupum á næst­unni. Ef stýri­vextir halda áfram að hækka mun hámarks­láns­fjár­hæð sem heim­ilin geta tekið minnka enn frekar,“ sagði í skýrsl­unn­i.

Skýr merki hafa verið um að íbúða­mark­aður hafi verið að kólna á síð­ustu vikum vegna þess­ara aðgerða. Þannig hækk­aði íbúða­verð um 1,1 pró­sent í júlí, sem er mun minni hækkun en mælst hafði í lengri tíma.

Íbúða­verð á svæð­inu hefur hækkað um 15,5 pró­sent síð­ustu sex mán­uði og 25,5 pró­sent síð­asta árið. Ef horft er aftur til upp­hafs kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, sem hófst af alvöru hér­lendis í mars 2020, þá hefur íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 48 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár