„Að hindra útbreiðslu COVID-19 er vísindalegt viðfangsefni – ekki pólitískt“

Þing­maður Pírata segir að þegar kemur að því flókna, vanda­sama og vís­inda­lega við­fangs­efni að sporna við útbreiðslu kór­ónu­veirunnar skuli ekki rugla saman til­finn­inga­þrungnum áhyggjum stjórn­mála­manna við sér­fræði­þekk­ingu á við­fangs­efn­inu.

Helgi Hrafn Gunnarsson
Helgi Hrafn Gunn­ars­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag það vera ekk­ert mál fyrir hvaða póli­tíkus sem er að berja sér á brjóst og heimta að „meira sé gert“ til að hindra útbreiðslu COVID-19 veirunnar.

„En að hindra útbreiðslu COVID-19 veirunnar er vís­inda­legt við­fangs­efni, ekki póli­tískt. Stjórn­mála­menn vinna við að gaspra, en fyrst eiga þeir að hlusta,“ skrifar hann.

Kjarninn greindi frá því í morgun að sótt­varn­alæknir hefði lagt til við heil­brigð­is­ráð­herra að ­sam­komu­bann yrði sett á frá mið­nætti 15. mars sem gilti í fjórar vik­ur. Við­burðir þar sem fleiri en hund­rað manns koma saman verða óheim­ilir sam­kvæmt til­lög­unni. Það mun eiga við stóra vinnu­staði, íþrótta­við­burði, versl­anir og kvik­mynda­hús svo dæmi séu tek­in. Ekki verður þó lög­gæsla við stór­mark­aði til að gæta þess að innan við hund­rað fari þangað inn í einu heldur er almenn­ingur hvattur til að fram­fylgja tak­mörk­un­un­um.

Ekki rugla saman tilfinningaþrungnum áhyggjum stjórnmálamanna við sérfræðiþekkingu

Helgi Hrafn segir að ákvarð­anir um hverju skuli loka eða hvernig sam­komu­bönnum skuli háttað eigi ekki heima í ein­hverri kosn­inga­lof­orða­sam­keppni um hver vilji „gera meira“ – því allir vilji gera það sem best er að gera. Það sé eng­inn á mála hjá þess­ari veiru. Hann segir að við séum öll á móti henni.

„Við höfum nóg að ríf­ast um þegar kemur að efna­hags­legu við­brögð­unum og þar er nóg af póli­tík – og einnig gríð­ar­lega margir og stórir óvissu­þættir. En þegar kemur að því flókna, vanda­sama, erf­iða en umfram allt vís­inda­lega við­fangs­efni að sporna við útbreiðslu veirunnar, ekki rugla saman til­finn­inga­þrungnum áhyggjum stjórn­mála­manna við sér­fræði­þekk­ingu á við­fangs­efn­inu,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár