Gullöld á pönnukökueyjunni

Eftir mörg erf­ið­leikaár, og fólks­flótta, sjá íbúar dönsku eyj­unnar Lálands nú fram á betri tíð með þús­undum nýrra starfa. Ástæðan er Femern teng­ingin svo­nefnda milli Dan­merkur og Þýska­lands.

Svona á gangnamunnurinn að líta út frá Rødby
Svona á gangna­munn­ur­inn að líta út frá Rødby Mynd: Femern AS

Láland er fjórða stærsta eyja Dan­merkur og iðu­lega kölluð pönnu­köku­eyjan. Ástæðan er ein­föld: eyjan er mar­flöt, hæsti punktur er ein­ungis 25 metrum yfir sjáv­ar­máli. Íbúar eru 41 þús­und og hefur fækkað jafnt og þétt um langt ára­bil. Ástæðan er fyrst og fremst skortur á atvinnu, en atvinnu­leysi er hvergi meira í land­inu. Ungt fólk hefur ekki séð neina fram­tíð­ar­mögu­leika og leitað á brott. Það hefur sem sé ekki blásið byr­lega á Lálandi. En nú er breyt­ing í vændum.

Ekki ný hugmynd

Sú hug­mynd að tengja saman Danmörku og Þýska­land yfir Fem­ernsund er ekki ný af nál­inni. Árið 1863 fékk Friðrik VII kóngur í hendur upp­drátt. Það var bygg­inga­meist­ari hirð­ar­innar, G.V.A. Krühnke, sem sýndi kóng­inum upp­drátt­inn og útskýrði hug­mynd­ina. Hún var sú að leggja járn­braut stystu leið frá Kaup­manna­höfn til Ham­borgar. Yfir Fem­ernsundið yrði lagður eins konar flóð­garður,eða brú. Þremur árum síðar fékk bygg­inga­meist­ar­inn sam­þykki kon­ungs, og fjár­veit­ingu, til að leggja járn­braut­ar­teina og gera höfn við Rødby á Lálandi. Sú fram­kvæmd gekk vel en lengra náði málið ekki.

Árið 1920 náð­ist sam­komu­lag milli stjórn­enda þýsku og dönsku járn­braut­anna um að tengja saman löndin tvö og leggja ein­hvers­konar brú yfir Fem­ernsundið. Enn liðu árin og það var ekki fyrr en 1955 að samn­ingur um fastar ferðir lestar­ferja var sam­þykktur. Brú­ar­hug­myndin hafði þá verið lögð á hill­una. Enn liðu átta ár og fastar ferðir yfir Fem­ernsund, með járn­brauta­teng­ingum beggja vegna, hófust árið 1963. Þá var öld liðin frá því að bygg­inga­meist­ar­inn Krühnke sýndi Friðriki VII teikn­ingar sínar.

Brúarhugmyndin lifnar við en breytist í göng

Árið 1985 var aftur farið að ræða hug­myndir um teng­ingu yfir Fem­ernsund. Fátt gerð­ist þó fyrr en árið 2008 að ráð­herrar sam­göngu­mála í Þýska­landi og Danmörku und­ir­rit­uðu sam­komu­lag um gerð teng­ingar yfir sundið, þjóð­þing beggja landa stað­festu sam­komu­lagið. Svo þurfti að reikna og teikna. Tvö ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki voru fengin til verks­ins. Þau skil­uðu skýrslum sínum árið 2011.

Bæði fyr­ir­tækin mæltu með að í stað brúar, milli Rødby og Putt­gar­den, yrðu lögð göng undir Fem­ernsundið. Rökin fyrir þessu voru einkum tvenn: göng yrðu óháð veðri en mjög vinda­samt er á þessum slóðum og því fyr­ir­séð að brú yrði lokuð marg­sinnis á hverju ári. Hitt atriðið sem réði til­lögum ráð­gjaf­anna var að tækni við lagn­ingu ganga hefur fleygt mjög fram, í stað þess að bora eru göng undir sjó eins konar risarör, sam­settar steyptar ein­ingar, sem liggja á botn­inum. Þótt „rörið“ sé dýr­ara en brú er mun­ur­inn langtum minni en ef boruð væru göng. Samtals yrðu rör­bút­arnir, sem hver um sig vegur 73.500 tonn, 89 tals­ins, hver þeirra um það bil 200 metra langur, 40 metra breiður og 9 metra hár. Danskir fjöl­miðlar hafa greint frá því að til greina komi að hver rör­bútur yrði mun styttri en 89 metrar en þá yrðu þeir að sama skapi fleiri. Tvær akreinar verða í hvora átt, fyrir bíla, og tvö­faldir lestar­teinar.

Margs konar tafir

Bæði ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækin töldu, árið 2011, að hægt yrði að opna göngin árið 2020, miðað við að fram­kvæmdir hæfust strax. Þeim yfir­s­ást hins vegar nokkrir veiga­miklir þættir: Margs­konar flókin samn­inga­gerð, kæru­mál og fjár­mögnun. Kæru­málin, sem urðu sam­tals 30 þús­und tók langan tíma að leiða til lykta. Umhverfis- og útboðs­mál voru þar fyr­ir­ferð­ar­mikil og komu sum þeirra til kasta Evr­ópu­dóm­stóls­ins. Í mars í fyrra (2020) hafði flestum hindr­unum verið rutt úr vegi og í byrjun nóv­em­ber kom hið end­an­lega græna ljós á fram­kvæmd­ina. Og verkið er þegar hafið, bæði Þýska­lands- og Dan­merk­ur­megin.

Fjármagnað með gjaldi notenda

Samið var um að Þjóð­verjar borgi allt sín megin við Fem­ernsundið en Danir allt sín megin, svo og göngin sjálf. Kostn­aður Dana er áætl­aður um 60 millj­arðar danskra króna (1238 millj­arða íslenska). Þar við bæt­ist kostn­að­ur­inn sem fellur á Þjóð­verja. Áætlaður heild­ar­kostn­aður við þessa fram­kvæmd er áætl­aður um 100 millj­arðar danskra króna (2060 millj­arðar íslenskir). Þegar þessi fyr­ir­hug­aða stór­fram­kvæmd var kynnt sagði danski sam­göngu­ráð­herr­ann að þetta yrði kostn­að­ar­samasta verk­efni sem Danir hefðu nokkru sinni ráð­ist í. Innheimt verður veg­gjald, sem Danir fá allar tekjur af. Upphæð þess hefur ekki verið ákveðin en áætl­anir gera ráð fyrir að fullt gjald fyrir fólks­bíl verði um það bil 500 krónur danskar (rúmar 10 þús­und íslenskar) fyrir hverja ferð. Gert er ráð fyrir að göngin verði greidd upp á 36 árum, en það veltur á umferð­inni, sem ómögu­legt er að spá um. Femern a/s, félagið sem ann­ast þessa miklu fram­kvæmd er í eigu danska rík­is­ins.

Göngin eiga að end­ast í að minnsta kosti 120 ár. Áætlanir gera ráð fyrir að hægt verði að fara um göngin árið 2029. Þá verður vega­lengdin milli Kaup­manna­hafnar og Ham­borgar 370 kíló­metrar, svipað og frá Reykja­vík til Akur­eyrar.

Mikil lyftistöng

Reiknað er með að störf við göngin og allt sem þeim til­heyrir, Dan­merk­ur­megin, verði á bygg­ing­ar­tím­anum um það bil 6 þús­und. Þetta er mikil lyfti­stöng fyrir íbúa Lálands, en eins og nefnt var framar í þessum pistli eru íbúar þar 41 þús­und. Borg­ar­stjór­inn á Lálandi, Holger Schou Rasmus­sen sagði í við­tali við danska útvarpið, DR, að nú taki við nokk­urs konar gullöld á eyj­unni næsta ára­tug eða svo. Hann sagði að meðal verk­efna sem við blasi sé að sjá til þess að hægt verði að hýsa allan þann mann­fjölda sem brátt mun streyma til Lálands. Borg­ar­stjór­inn sagði að eftir að fram­kvæmdum lýkur megi búast við að starfs­fólk við göngin og ýmis konar þjón­ustu tengdri þeim skipti hund­ruðum. „Við viljum gera allt sem við getum til þess að þetta fólk setj­ist hér að. Nú erum við að skipu­leggja og und­ir­búa bygg­inga­lóðir og úthluta, slíkt hefur ekki gerst hér í rúm 15 ár. Nánast dag­lega fáum við fyr­ir­spurnir frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum sem vilja setja upp gáma hús og gáma­hótel. Slíkum fyr­ir­spurnum svörum við neit­andi.

Við viljum ekki að hér verði reistur ein­hvers­konar gáma­bær þar sem tjaldað er til einnar nætur og breyt­ist svo í drauga­borg þegar fram­kvæmdum við Femern lýkur“. 

Vegna fram­kvæmd­anna er verið að setja upp full­komna steypu­stöð, borg­ar­stjór­inn sagði hana dæmi um fyr­ir­tæki sem æski­legt væri að halda í eftir að ganga­gerð­inni lýkur, og reyndar væri unnið að því. Borg­ar­stjór­inn benti á að meðal Þjóð­verja sé löng hefð fyrir því að ferð­ast til Dan­merkur og verja þar sum­ar­leyf­inu. Þjóð­verja­straum­ur­inn hefur fram til þessa einkum verið til Jótlands „Það er mik­il­vægt að við hugsum til fram­tíðar, við þurfum að hugsa fyrir og skipu­leggja afþr­ey­ingu fyrir sum­ar­dval­ar­gesti“. Ætlunin er að útbúa, í tengslum við ganga­gerð­ina bað­strönd, jafn­vel fleiri en eina, og alvöru skemmti­garð sagði borg­ar­stjór­inn. „Svo þurfum við nátt­úr­lega veit­inga­staði, bensín- og hleðslu­stöðvar og fleira og fleira. En, þótt við sjáum fram á hálf­gerða gullöld næstu árin þurfum við að gæta þess að ekki renni á okkur gullæði. Slíkt endar sjaldn­ast vel“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár