Eins og apar í búri

Í byrjun júlí árið 2012 keypti sjóð­ur­inn ,,Frista­den Christiania“ flestar bygg­ingar ásamt stærstum hluta svæð­is­ins sem gengur undir nafn­inu Krist­janía af danska rík­inu. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá þeim tíma.

Íbúar Krist­janíu í Kaup­manna­höfn eru þreyttir á þeim gíf­ur­lega fjölda ferða­fólks sem leggur leið sína á svæðið. Þeir vilja leita leiða til að tak­marka fjöld­ann, þeim líði eins og sýn­ing­ar­gripum ,,við erum eins og apar í búri“ sagði einn íbú­anna.

Í byrjun júlí árið 2012 keypti sjóð­ur­inn ,,Frista­den Christiania“ flestar bygg­ingar ásamt stærstum hluta svæð­is­ins sem gengur undir nafn­inu Krist­janía af danska rík­inu. Þegar frá þessum kaupum var gengið voru 41 ár síðan hópur ungs fólks lagði undir sig þetta svæði, og nefndi Krist­janíu. Krist­jan­í­u­svæðið er sam­tals um 34 hekt­arar á stærð, þar voru, og eru, margar bygg­ingar sem á sínum tíma til­heyrðu danska flot­anum en ekki voru lengur í notkun og stóðu auðar. Á þessum tíma var mik­ill skortur á hús­næði í Kaup­manna­höfn og margir til­búnir að setj­ast að í þessu ,,frí­ríki“ eins og íbú­arnir kusu að kalla það. Að lang stærstum hluta var það ungt fólk sem sá þarna leið til að kom­ast yfir hús­næði og margir þeirra sem sett­ust að í Krist­janíu í upp­hafi búa þar enn og eru nú, eins og gefur að skilja, orðnir nokkuð við aldur.

Öðruvísi

Frá upp­hafi var margt í Krist­janíu með öðrum hætti en ann­ars staðar í Kaup­manna­höfn og reyndar þótt víðar væri leitað, lífstakt­ur­inn var annar. Á árunum um og eftir 1970 var hassneysla orðin all útbreidd og Krist­janía varð fljót­lega eins konar ,,versl­un­ar­mið­stöð“ með þessa ólög­legu neyslu­vöru. Lög­reglan skipti sér lítið af söl­unni og túristar og heima­menn vissu að í ,,frí­rík­inu“ væri hægur vandi að verða sér úti um ,,grasið“. Þessi við­skipti voru frá upp­hafi að mestu tak­mörkuð við til­tekna götu ,,Pusher Street“.

Alla tíð umdeild

Krist­janía hefur alla tíð verið umdeild. Mörgum hefur þótt yfir­völd sýna ,,frí­rík­inu“ og íbúum þess lang­lund­ar­geð, umborið margt sem ekki yrði liðið ann­ars staðar. Aðrir hafa bent á að Krist­janía sé dæmi um fjöl­breyti­leika lífs­flór­unnar og nauð­syn þess að í jurta­garði til­ver­unnar geti allur gróður þrif­ist. Íbúarnir í Krist­janíu eru um eitt þús­und tals­ins, það er nokkurn veg­inn sami fjöldi og var í upp­hafi.

Ýmsir stjórn­mála­menn hafa alla tíð haft horn í síðu Krist­janitt­anna og sumir hafa talað um að ,,upp­ræta þetta hass­bæli“ sem engin lög virð­ist gilda um. Þeir hafa þó verið fleiri sem líta á Krist­janíu sem kyn­legan kvist, ef svo mætti að orði kom­ast, og sömu­leiðis bent á að þar búi ýmsir sem myndu falla illa inn í hið ,,venju­lega“ borg­ar­um­hverfi. Með kaup­samn­ingnum frá 1. júlí 2012 litu bæði borg­ar­yf­ir­völd Kaup­manna­hafnar og ríkið, sem var eig­andi lands­ins, svo á að þessum deilum um til­veru Krist­janíu væri lokið. Svæðið og allt yfir­bragð þess yrði með svip­uðum hætti og það hefur verið frá 1971 en á móti skuld­bundu Krist­janitt­arnir sig til að hlíta ýmsum almennum reglum, svosem um íbúa­skrá­setn­ingu, bygg­inga­reglu­gerðum o.s.frv. Nýr reið­hjóla­stígur var fyrir nokkru lagður þvert yfir hluta Krist­jan­í­u­svæð­is­ins, lagn­ing hans teng­ist nýrri hjóla- og göngu­brú frá Nýhöfn­inni yfir á Krist­jáns­höfn og Amager. Krist­janitt­arnir voru mjög and­snúnir lagn­ingu þessa stígs en borg­ar­yf­ir­völd sátu fast við sinn keip. Stíg­ur­inn er mikil sam­göngu­bót og um hann fara þús­undir á degi hverjum.

Ferðamennirnir og athyglin

Krist­janía hefur um langt ára­bil verið meðal þeirra staða sem flestir ferða­menn leggja leið sína til, þegar þeir koma til Kaup­manna­hafnar. Ferða­mönnum í dönsku höf­uð­borg­inni hefur fjölgað mikið á allra síð­ustu árum og Krist­janía hefur ekki farið var­hluta af þess­ari aukn­ingu. Fáar hefð­bundnar versl­anir eru á Krist­jan­í­u­svæð­inu og ekki margir veit­inga­staðir og kaffi­hús. Hass­salan er enn til staðar í Pusher Street, þrátt fyrir að oft hafi verið reynt að upp­ræta hana, en sú sala er að mestu bundin við ,,fastakúnna“ en ekki ferða­menn. Tekjur af ferða­mönnum eru því tak­mark­aðar, þeir rölta um svæðið, virða fyrir sér mann­lífið og fara svo. Ekki eru til áreið­an­legar tölur um fjölda þeirra sem árlega koma á Krist­jan­í­u­svæðið, síð­asta skipu­lagða taln­ing fór fram árið 2011, þá voru gest­irnir um 600 þús­und og þeim hefur fjölgað mikið síðan.

Eins og apar í búri

Þótt íbúar Krist­janíu séu vanir mik­illi umferð gang­andi fólks á svæð­inu er nú svo komið að þeim blöskrar. Stórum skemmti­ferða­skipum sem koma til Kaup­manna­hafnar hefur fjölgað mikið og far­þeg­arnir fara í stórum hópum um borg­ina og meðal við­komu­stað­anna er Krist­janía. Nokkuð hefur borið á því að ferða­menn telji Krist­janíu vera eins konar deild í Þjóð­minja­safn­inu og leyfi­legt sé að fara inn á heim­ili fólks á svæð­inu. Johannes Brand, sem býr í Krist­janíu sagði í við­tali við eitt dönsku blað­anna að hann hefði skroppið út í garð til að hengja upp þvott, úti­dyrnar hefðu staðið opnar. Þegar hann kom til baka var ókunn­ugt par að lit­ast um í stof­unni ,,fólkið hélt að þetta væri allt í lagi, og spurði hvort þetta hús væri ekki hluti af safn­inu“ sagði Johannes Brand. ,,Manni líður dálítið eins og apa í búri“.

Hvað er til ráða?

Talsmenn íbúa Krist­janíu eiga nú í við­ræðum við borg­ar­yf­ir­völd í Kaup­manna­höfn og stjórn­endur fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu um leiðir til úrbóta. Engar ákvarð­anir liggja fyrir en margar hug­myndir hafa komið fram. Ein þeirra er sú að Krist­janitt­arnir sjálfir sjái í auknum mæli um leið­sögn hópa á svæð­inu. Einn tals­manna íbú­anna sagði í við­tali við dag­blaðið Information að Krist­janía yrði að sjálf­sögðu öllum opin, eins og verið hefði, það væri grund­vall­ar­at­riði. ,,Allt annað er spurn­ing um skipu­lag. Við viljum gjarna tak­marka ferða­manna­fjöld­ann, það er hæg­ara sagt en gert, en við getum kannski stjórnað þessu betur“ sagði þessi tals­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár