Engeyingarnir og viðskiptafélagar þeirra töldu „brotið gegn lögvörðum réttindum sínum“
FréttirViðskipti Bjarna Benediktssonar

Eng­ey­ing­arnir og við­skipta­fé­lagar þeirra töldu „brotið gegn lög­vörðum rétt­indum sínum“

Glitnir HoldCo lagði fram vara­kröfu um að stað­fest yrði lög­bann sem tæki einkum til upp­lýs­inga um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar, fjöl­skyldu hans og við­skipta­fé­laga. „Áttu ekk­ert erindi við almenn­ing,“ sagði bróðir þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra í yfir­lýs­ingu sem Glitnir HoldCo lagði fram.
The Guardian: 175 þúsund manns lásu fréttina um Bjarna Benediktsson og Sjóð 9
FréttirViðskipti Bjarna Benediktssonar

The Guardian: 175 þús­und manns lásu frétt­ina um Bjarna Bene­dikts­son og Sjóð 9

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur synjað lög­banns­kröfu Glitnis HoldCo gagn­vart Stund­inni og Reykja­vik Media. Í yfir­lýs­ingu frá The Guardian rekur blaða­mað­ur­inn Jon Henley ástæður þess að ákveðið var að birta frétt­ina um sölu Bjarna Bene­dikts­sonar á eignum sínum í Sjóði 9 í aðdrag­anda banka­hruns­ins 2008 og und­ir­strikar frétta­gildi máls­ins.
Ísland undirlagt hræðsluáróðri
Viðtal

Ísland und­ir­lagt hræðslu­á­róðri

„Tján­ing­ar­frelsið er svo mik­il­vægt fyrir lýð­ræð­is­legt sam­fé­lag,” segir Þór­hildur Sunna Ævar­dóttir, fram­kvæmda­stjóri alþjóð­legu mann­rétt­inda­sam­tak­anna Courage International. Sem fyrrum þing­maður og sér­hæfð í mann­rétt­indum hefur hún í ófáum málum barist gegn þögg­un­ar­til­burðum valds­ins gagn­vart þeim sem fletta ofan af mis­notkun þess.
Umdeild gjaldskylda við Reykjanesvita: „Þetta er bara slóði“
UmhverfiðFerðamannalandið Ísland

Umdeild gjald­skylda við Reykja­nes­vita: „Þetta er bara slóði“

Samkvæmt lóða­leigu­samn­ingi hefur fyr­ir­tækið Reykja­nes Aurora heim­ild til að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í 500 metra rad­íus við Reykja­nes­vita þrátt fyrir að leigja aðeins hluta af því landi. Eig­and­inn segir að reynt hafi verið á gjald­heimt­una fyrir dómi og hún úrskurðuð honum í vil. „Þetta er búið að vera vand­ræða­mál,“ segir Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar.

Mest lesið undanfarið ár