Ísland undirlagt hræðsluáróðri
Þó að Þór­hildur Sunna sé aðeins 39 ára býr hún yfir marg­slung­inni reynslu af mik­il­vægum mann­rétt­inda­málum, bæði hér á landi og erlendis. Mynd: Golli

Ísland undirlagt hræðsluáróðri

„Tján­ing­ar­frelsið er svo mik­il­vægt fyrir lýð­ræð­is­legt sam­fé­lag,” segir Þór­hildur Sunna Ævar­dóttir, fram­kvæmda­stjóri alþjóð­legu mann­rétt­inda­sam­tak­anna Courage International. Sem fyrrum þing­maður og sér­hæfð í mann­rétt­indum hefur hún í ófáum málum barist gegn þögg­un­ar­til­burðum valds­ins gagn­vart þeim sem fletta ofan af mis­notkun þess.

Samtökin Courage International berj­ast fyrir vernd blaða­manna, fjöl­miðla­frelsi og tján­ing­ar­frelsi; frjálsu flæði upp­lýs­inga og frið­helgi einka­lífs­ins. Síðan árið 2014 hafa þau helgað sig því að vernda upp­ljóstr­ara og blaða­menn sem sitja undir árásum, þó aðal­lega í Banda­ríkj­unum. Veiga­mestu verk­efni sam­tak­anna hafa verið stuðn­ingur við Edward Snowden og bar­átta fyrir frelsi Julian Assange, stofn­anda þeirra.

Fyrsta verk­efni Courage hér­lendis var þátt­taka í und­ir­bún­ingi fyrir fund­inn Þjóð gegn þjóð­ar­morði sem hald­inn var í öllum lands­hlutum síð­ast­lið­inn sept­em­ber. „Þjóð­ar­morð Ísra­els­ríkis á palest­ínsku þjóð­inni sem nú stendur yfir hefur kostað fleiri blaða­menn lífið en öll stríð frá upp­hafi fyrri heim­styrj­aldar sam­an­lagt og erindi Courage því brýnt í þessu sam­hengi,“ skrif­aði Þór­hildur Sunna á Facebook af því til­efni.

Nú hafa þau stofnað til frjálsra félaga­sam­taka í Brussel undir alþjóð­legum hatti Courage International AISBL sem starfa munu í „stöðugt flókn­ara alþjóð­aum­hverfi“ – líkt og segir á heima­síðu þeirra. Því …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Viðbjóðurinn í mannréttindamálum á sér engin takmörk, sama hvað GÁ segir, þar með talinn hernaðarglæpir Ísraels og USA.
    0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Hér er glænýtt og afar nærtækt dæmi um hræðsluáróður sem auk þess inniheldur hatursorðræðu, upplýsingaóreiðu og tilhæfulausar nafnlausar ásakanir í garð fjölda fólks:
    https://www.dv.is/eyjan/2026/08/01/kolbrun-bergthorsdottir-hlaupid-i-fang-trumps
    -3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár