Faraldurinn til kominn vegna okkar „hættulega sambands við náttúruna“

Okkar eigin skað­lega hegðun gagn­vart nátt­úr­unni hefur sett heilsu okkar í hættu. Þetta segja sér­fræð­ingar Sam­ein­uðu þjóð­anna, Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar og Alþjóð­lega nátt­úru­vernd­ar­sjóðs­ins.

Skógareyðing, með eldum eða höggi, er meðal þess sem er að raska jafnvægi mannsins í náttúrunni.
Skóg­areyð­ing, með eldum eða höggi, er meðal þess sem er að raska jafn­vægi manns­ins í nátt­úr­unni. Mynd: EPA

Eyði­legg­ing hins nátt­úru­lega heims er orsök þess að heims­far­aldr­arar á borð við þann sem heims­byggðin glímir nú við geisa. Jarð­ar­búar hafa hunsað þessa stað­reynd í ára­tugi.

Um þetta eru Sam­ein­uðu þjóð­irnar, Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin og Alþjóð­legi nátt­úru­vernd­ar­sjóð­ur­inn, WWF, sam­mála. Sér­fræð­ingar þeirra birtu í síð­ustu viku sam­eig­in­lega grein þar sem farið er yfir áhyggjur þeirra.

Ólögleg og ósjálf­bær við­skipti með villt dýr sem og skóg­areyð­ing og almenn hnignun vist­kerfa eru þau helstu öfl sem auka hætt­una á því að sjúk­dómar fari úr dýrum í menn að mati þess­ara þriggja stofn­ana og sam­taka. Þau segja kór­ónu­veiruna aðvörun sem beri að nýta til að bæta fyrir rof sem orðið hefur milli manns­ins og nátt­úr­unnar. Í kjöl­far COVID-19 þurfi að fara grænar og heil­brigðar leiðir að bata – sér­stak­lega með því að breyta skað­legum land­bún­aði og snúa frá ósjálf­bæru matar­æði.

Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri grein sér­fræð­inga stofn­an­anna og sam­tak­anna sem birt var í breska dag­blað­inu The Guardian í síð­ustu viku.

Í nýrri skýrslu Alþjóð­lega nátt­úru­vernd­ar­sjóðs­ins kemur fram að hættan á nýjum smit­sjúk­dómi sem ber­ist frá dýrum í menn sé meiri nú en nokkru sinni. Slíkt ógnar heil­brigði fólks og öryggi sem og hag­kerfum eins og reynslan af COVID-19 hefur þegar sýnt.

Sér­fræð­ingar sam­tak­anna segja í skýrsl­unni að auk eyði­legg­ingar hins nátt­úru­lega heims eigi stór­tækur land­bún­aður og fram­leiðsla dýra til mann­eldis stóran þátt. Þá hvetja sam­tökin stjórn­völd landa jarðar til að byggja upp sjálf­bærar keðjur í mat­væla­fram­leiðslu, allt frá frum­fram­leiðslu á disk neyt­enda.

[links]Nokkrir af fremstu sér­fræð­ingum heims í líf­fræði­legum fjöl­breyti­leika hafa varað við hinu sama. Þeir segja að breyta verði út af braut eyði­legg­ingar þegar í stað – ann­ars sé voð­inn vís. Nú í júní sendi umhverf­is­mála­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem er hag­fræð­ingur, út neyð­ar­kall og benti á nútíma efna­hags­starf­semi tæki ekki til­lit til þess að auður mann­fólks byggir á heil­brigði nátt­úr­unnar.

„Við höfum séð marga sjúk­dóma koma fram á sjón­ar­sviðið síð­ustu ár, svo sem zika, AIDS, SARS og ebólu og þeir hafa allir átt upp­tök sín í dýrum sem eru undir gríð­ar­legu, umhverf­is­legu álagi,“ skrifa Elizabeth Maruma Mrema, sem fer fyrir líf­fræði­legum fjöl­breyti­leika hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum, Maria Neira, for­stöðu­maður umhverfis- og heil­brigð­is­mála hjá WHO og Marco Lamb­ert­ini, fram­kvæmda­stjóri WWF International. Þau segja að kór­ónu­veiran sé til merkis um „okkar hættu­lega og óstöðuga sam­band sem við eigum við nátt­úr­una“ og að far­ald­ur­inn sýni hvernig okkar eigin skað­lega hegðun gagn­vart nátt­úr­unni setur heilsu okkar í hættu.

Benda þau svo á að því miður sé það svo að þó að far­ald­ur­inn hafi gefið okkur enn eina ástæð­una til að vernda nátt­úr­una sé hið gagn­stæða þegar farið að eiga sér stað. „Frá Mekong-fljóti til Amazon og Madaga­skar hafa borist ógn­vekj­andi fréttir af auknum veiði­þjófn­aði, ólög­legu skóg­ar­höggi og skóg­ar­eldum á sama tíma og mörg lönd eru að slaka á umhverfis­kröfum og skera niður fjár­veit­ingar til nátt­úru­verndar. Þetta er allt að ger­ast á tímum þegar við þurfum mest á [nátt­úru­vernd] að halda.“

Benda þau einnig á að þegar hafi verið sýnt fram á að skamm­tíma­hugsun í sparn­að­ar­skyni, með eft­ir­gjöf í umhverfis-, heil­brigðis- og vel­ferð­ar­málum, sé blekk­ing­ar­leikur. „Reikn­ing­inn þarf að borga marg­falt til baka síðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár