Leigufélög eiga íbúðir upp á 79 milljarða

Virði íbúða stærstu leigu­fé­laga lands­ins nemur um 1,6 pró­sent af heild­ar­virði íbúða, miðað við lok árs í fyrra.

Almenna leigu­fé­lagið, sem á um 1.300 íbúðir og er í eigu sjóða í stýr­ingu hjá Gamma, metur fast­eigna­safn sitt á um 38 millj­arða. Íbúðir Heima­valla eru metnar á um 41 millj­arð en frek­ari kaup á fast­eignum á þessu ári, til við­bótar við þær 2.020 sem þetta stærsta leigu­fé­lag lands­ins á, gætu aukið virði eigna­safns­ins í 50 millj­arða.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Samkvæmt nýbirtum árs­reikn­ingi Almenna leigu­fé­lags­ins voru íbúðir þess metnar á 29,8 millj­arða í árs­lok 2016. Í lok mars sam­þykkti Sam­keppn­is­eft­ir­litið svo kaup félags­ins á BK eignum ehf. og runnu þá 360 fast­eignir í eigna­safnið til við­bótar. „Við höfum engin plön um að stækka félagið enda er það í þægi­legri stærð varð­andi end­ur­fjár­mögnun og skrán­ingu á markað,“ segir María Björk Ein­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Almenna leigu­fé­lags­ins, í við­tali við Frétta­blaðið.

Leigu­fé­lagið Heima­vellir var rekið með ríf­lega tveggja millj­arða hagn­aði í fyrra og átti fast­eignir upp á 40,7 millj­arða, að því er fram kemur í Frétta­blað­inu.

Samkvæmt upp­lýs­ingum blaðs­ins er stefnt að frek­ari stækkun eigna­safns­ins þannig að það muni við lok árs nema nær 50 millj­örðum.

Fast­eigna­mat íbúða lands­ins í fyrra, sam­kvæmt nýbirtum upp­lýs­ingum Þjóð­skrár, var 4.980 millj­ónir króna, eða tæp­lega 5 þús­und millj­arðar króna. Heildar­í­búða­eign leigu­fé­lag­anna tveggja nemur því um 1,6 pró­sent af heild­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár