Vegabréfabiðlisti

Þegar útlit er fyrir að kór­ónu­plág­unni linni hugsa margir Danir sér til hreyf­ings. Þá er jafn­gott að það allra nauð­syn­leg­asta sem hafa skal með í ferða­lagið, vega­bréfið, gleym­ist ekki heima og sé í gildi. Löng bið er hins vegar eftir nýju vega­bréfi.

Danir ferð­ast mikið. Út um allar trissur. Þótt hin svo­nefndu sól­ar­lönd, Spánn og Ítalía séu ofar­lega á vin­sælda­list­anum eru fjar­læg­ari lönd t.d Tæland mjög vin­sælir áfanga­staðir í sum­ar­frí­inu, og reyndar líka á vet­urna. Ferða­vanir Danir vita nákvæm­lega hverju þarf að pakka í tösk­una, eða tösk­urnar, áður en lagt er í hann. Þótt eitt­hvað, til dæmis tann­burst­inn, gleym­ist heima gerir það ekki svo mikið til, slík hjálp­ar­tæki fást nán­ast á hverju götu­horni hvar sem er í heim­inum. En allra nauð­syn­leg­asti „fylgi­hlutur“ hvers ferða­manns er ill­fá­an­legur ann­ars staðar en í heima­landi og því er jafn­gott að þessi hlutur gleym­ist ekki þegar lagt er af stað. Þetta er vita­skuld vega­bréfið.

180 þúsund vegabréf á hverju ári

Gild­is­tími danskra vega­bréfa er tíu ár, sé við­kom­andi 18 ára eða eldri, hjá börnum upp að tveggja ára aldri er gild­is­tími vega­bréfs tvö ár en hjá tveggja til 17 ára er gild­is­tím­inn fimm ár. Í Danmörku er það Borg­ara­þjón­ustan (Borgerservice) sem sér um útgáfu vega­bréfa og í hverjum ein­asta mán­uði árs­ins eru að jafn­aði gefin út 15 þús­und ný vega­bréf, sem sé 180 þús­und á hverju ári. Stærsti hlut­inn er eðli­leg end­ur­nýjun en á síð­ustu árum hafa æ fleiri dönsk vega­bréf horfið með ein­hverjum hætti. Dag­blaðið Berl­ingske greindi fyrir skömmu frá því að árlega týn­ist, eða hverfi, um það bil 30 þús­und vega­bréf. Sá sem sækir um vega­bréf mætir á skrif­stofu Borg­ara­þjón­ust­unnar, fram­vísar gamla vega­bréf­inu (ef það er til staðar) fær tekna af sér mynd, borgar til­tekið gjald og fær svo vega­bréfið sent í pósti.

Vilja breyta fyrirkomulaginu

Þingmenn Danska þjóð­ar­flokks­ins hafa bent á að það sé ótækt að fjöl­mörg vega­bréf rati aldrei til rétts við­tak­anda, þau „gufi upp“ á leið­inni. Þing­menn­irnir vilja að fyr­ir­komu­lag­inu verði breytt þannig að hver ein­stak­lingur þurfi að mæta á skrif­stofu Borg­ara­þjón­ust­unnar til að sækja vega­bréfið. Þetta var rætt í þing­inu, Fol­ket­inget fyrir nokkru, en engar breyt­ingar voru gerðar á lög­unum. Þetta var reyndar ekki í fyrsta skipti sem þing­menn Danska þjóð­ar­flokks­ins tóku þetta mál upp, það gerðu þeir líka árið 2018 en eins og nú var ekki vilji til breyt­inga. Í umræðum á þing­inu kom fram að dönsk vega­bréf væru eft­ir­sótt „versl­un­ar­vara“ og að þeim séu nægir kaup­endur. Engar reglur eru um það í Danmörku hve mörg vega­bréf ein­stak­lingur getur fengið útgefin. Sá sem kemur með vega­bréf til end­ur­nýj­unar borgar 890 krónur (17.500 íslenskar) en upp­hæðin tvö­fald­ast mæti við­kom­andi ekki með það gamla. Engin tak­mörk eru á því hve mörg vega­bréf ein­stak­lingur getur fengið útgefin. Til sam­an­burðar má nefna að í Svíþjóð getur ein­stak­lingur ekki fengið útgefin fleiri en þrjú vega­bréf á hverju fimm ára tíma­bili.

Mikil eftirspurn og lengri bið

Vegna kór­ónu­veirunnar hafa Danir lítt ferð­ast til ann­arra landa. Þeir hafa því ekki þurft að nota vega­bréfin sem hafa legið ónotuð í kommóðu­skúff­unni. En þegar hillir undir að hægt verði að ferð­ast á ný eru vega­bréfin dregin fram og þá upp­götva margir að þetta nauð­syn­lega ferða­gagn er ekki lengur í gildi. Þá er ekki annað að gera en að drífa sig á skrif­stofu Borg­ara­þjón­ust­unnar og sækja um nýtt.

Undir venju­legum kring­um­stæðum ætti nýja vega­bréfið að ber­ast umsækj­and­anum eftir 10 - 15 daga. En nú eru kring­um­stæð­urnar ekki venju­legar, umsókn­irnar eru miklu fleiri en vant er. Það þýðir að bið­tím­inn eftir nýja vega­bréf­inu er miklu lengri en venju­lega, sums staðar meira en mán­uður. Víða hefur Borg­ara­þjón­ustan brugðið á það ráð að lengja dag­legan afgreiðslu­tíma og hafa opið á laug­ar­dögum. En það er ekki nóg að afgreiða umsókn­irnar, vega­bréfin sjálf þurfa líka að vera til staðar. Fyr­ir­tækið sem fram­leiðir vega­bréfin hefur ekki undan og það lengir bið­tím­ann.

Hvetur til biðlundar

Borg­ara­þjón­ustan hefur beint þeim til­mælum til þeirra sem ekki hyggj­ast ferð­ast til ann­arra landa á næst­unni, en eru með útrunnin vega­bréf, að sýna bið­lund þangað til ástandið lag­ist. Hægt er að sækja um svo­kallað neyð­ar­vega­bréf, en mörg lönd, t.d. Banda­ríkin, taka þau ekki gild. Borg­ara­þjón­ustan hefur líka bent á að séu minna en þrír mán­uðir síðan gild­is­tími vega­bréfs rann út er hægt að fá fram­leng­ingu, um þrjá mán­uði. Allmörg lönd taka hins vegar slíka fram­leng­ingu ekki gilda.

Fingrafararuglingurinn

Raunir dönsku vega­bréfa­út­gáf­unnar ein­skorð­ast ekki við umsókna­flóð í kjöl­far kór­ónafar­ald­urs­ins. Fyrir nokkru tóku gildi reglur um fingraför í dönskum vega­bréfum. Með sér­stakri tækni er hægt að lesa fingraför beggja vísi­fingra á vega­bréfs­hafans og þegar fingraförin eru skoðuð kemur fram hvort þeirra til­heyrir vinstri vísi­fingri og hvort þeirra þeim hægri. Ekki tókst betur til en svo að á nokkrum stöðum sem gefa út vega­bréf varð rugl­ingur, fingrafarið af hægri vísi­fingri er þar sem það vinstra á að vera, og öfugt. Þegar þetta upp­götv­að­ist var búið að senda út 208 þús­und vega­bréf þar sem fingraför­unum hafði verið ruglað. Þeim sem fengu þessi „rugl­uðu“ vega­bréf hefur verið boðið að koma og fá ný, og „órugluð“ vega­bréf. Ætlunin var að þess­ari útskipt­ingu yrði lokið um síð­ustu mán­aða­mót en enn sem komið er hafa aðeins um 80 þús­und fengið nýju vega­bréfin, þar sem vinstri er vinstri og hægri er hægri. Þessi upp­á­koma hefur ekki orðið til að auð­velda Borg­ara­þjón­ust­unni lífið. Í til­kynn­ingu frá dönsku lög­regl­unni, Rig­spolitiet, kemur fram að ólík­legt sé að fólk lendi í vand­ræðum vegna „vísi­fingrarugl­ings­ins“. Í til­kynn­ing­unni kemur líka fram að enn sem komið er séu fá lönd sem noti fingrafaraskanna við komu ferða­manna til lands­ins en þeim muni örugg­lega fjölga á næstu árum. Þess vegna mælist lög­reglan til þess að þeir sem séu með „rugl­uðu“ vega­bréfin láti end­ur­nýja þau áður en langt um líður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár