Vill opinbera rannsókn á máli Rúmenanna

Formaður Flokks fólks­ins segir að íslensk stjórn­völd viti ekki hvort „þau séu að koma eða fara“.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, hefur óskað eftir opin­berri rann­sókn á máli Rúm­en­anna sem hingað komu til lands þann 5. júní síð­ast­lið­inn en tveir reynd­ust sýktir af COVID-19 sjúk­dómnum. Þetta kom fram í máli hennar á Alþingi í dag en hún beindi óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn til Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra.

„Stjórn­völd tala um að nú sé verið að opna landa­mærin en ef það er verið að opna þau núna þá hljóta þau – eðli máls­ins sam­kvæmt – að hafa verið lokuð áður, eða hvað? Á það bara að vera mis­skiln­ingur að halda að landið hafi verið lokað nema fyrir þá sem hingað komu brýnna erinda vegna vinnu?“ spurði Inga.

Hún sagði að á Íslandi væru stjórn­völd sem hvorki vissu hvort þau væru að koma eða fara. „Þau mæta sjálfum sér í dyr­unum; segja að nú sé verið að opna landa­mærin en þau voru jú alveg lokuð, eða hvað?“

Vill fá að vita hvað hafi misfarist í þessu tiltekna máli

Inga sagð­ist velta því fyrir sér í ljósi þessa hvernig í raun­inni væri verið að telja Íslend­ingum trú um hvernig stæði á því að hópur kór­ónu­veiru­sýktra „rúm­enskra glæpa­manna“ hefði sloppið inn í landið, „þar sem hann lék lausum hala dögum saman“.

Vísar þing­mað­ur­inn í tvo rúm­enska menn sem reynd­ust sýktir við kom­una til lands­ins og þurfi hópur lög­reglu­manna að fara í sótt­kví í fram­hald­inu.

„Við vitum ekk­ert hvert þessir ein­stak­lingar hafa farið. Hverjir þeir hafa hitt. Við vitum ekk­ert um það hvort þeir hafi verið að smita fólk hér í marga daga. Hvaða upp­lýs­ingar gaf þetta fólk til dæmis við kom­una til lands­ins? Þurfti það ekki að gefa neinar upp­lýs­ingar? Rúmenía er til dæmis ekki í Schengen, hvers vegna virk­aði það ekki sem maður myndi ætla að væri eft­ir­lits­kerfi Schengen? Var engin landamæra­lög­regla til að skoða papp­íra þessa fólks eða hvaða papp­írum þurfti það til dæmis að fram­vísa? Engum? Eða vega­bréfum – vott­orðum um að þau væru komin hingað til að starfa?

Virðu­legi for­seti, ég vil að opin­ber rann­sókn fari fram á þessu máli og að það verði krufið til mergjar hvað hafi eig­in­lega gerst og hvað hafi mis­farist í þessu til­tekna máli. Trú­verð­ug­leiki okkar nú, þegar við erum að reyna að feta veg­inn að eðli­legu ástandi, er í húfi,“ sagði Inga. Hún spurði því dóms­mála­ráð­herra hvort hún vissi hvað hefði farið úrskeiðis og hvers vegna og hvort hún hygð­ist beita sér fyrir því að þetta mál yrði rann­sakað í kjöl­inn.

Smitrakning fer nú fram

Áslaug Arna svar­aði og sagði að þetta væri ekki jafn óskýrt og Inga vildi vera að láta. „Landið var ekki lokað en við erum auð­vitað að opna það með meiri hætti með því að bjóða upp á skimun. Það er varla hægt að halda því fram að landið sé mjög opið ef skil­yrðið er að fara í fjórtán daga sótt­kví við kom­una. Það er alla­vega ekki opið fyrir ferða­menn sem vilja ferð­ast hingað til lands í styttra mæli en tvær vikur.“

Hún sagði að nú væri verið að opna landið með meiri hætti af því að „við erum bæði að bjóða Íslend­ingum og öðrum sem hingað koma upp á skimun og þeir geta þá komið hingað með frjáls­ara lagi en var“.

Varðandi mál Rúm­en­anna þá sagði hún að rétt væri að Rúmenía væri ekki í Schengen en að þessir menn hefðu heldur ekki komið þaðan heldur frá Schengen-svæð­inu. „Auðvitað er athugað eins og hjá öðrum að það er beint til þeirra að fara í sótt­kví og það er skylda á því og það var það sem þeir brutu. Það voru þær reglur sem voru brotnar. Auðvitað fer nú bara fram smitrakn­ing á þessu ein­staka máli, svo það sé kannað hvort aðrir þurfi að fara í sótt­kví vegna þeirra,“ sagði hún.

Rakningarteymið mun hringja í alla aðila

„En af því að í dag hófst þessi skimun þá er einnig breyt­ing á utan­um­haldi á for­skrán­ing­unni á þeim sem hingað koma til lands og þá er um að ræða upp­lýs­ingar um þá far­þega – þá fara þeir beint í smitrakn­ing­ar­gagna­grunn­inn svo­kall­aðan og þá eru mikið ítar­legri upp­lýs­ingar um þá sem hingað koma. Bæði um þá sem velja að fara í sótt­kví eða þá sem velja það að taka sýni. Þannig að þessi breyt­ing á heim­ildum er einnig skýr­ari nú að frá­vísa þeim sem ætla sér ekki að virða það að fara í sótt­kví,“ sagði dóms­mála­ráð­herr­ann.

Hún sagði enn fremur að lög­reglan myndi hafa eft­ir­lit með því hvort sótt­kví væri fylgt eftir eða ekki. „Einnig mun rakn­ing­arteymið hringja í alla aðila og athuga hvort við­kom­andi fylgi þeim reglum en svo mun tím­inn auð­vitað leiða í ljós hvaða ráð­staf­anir gæti þurft að grípa til. Hérna erum við að fara mik­il­væga leið. Við erum að skrá betur og höfum þá meira utan­um­hald en við gerðum um helg­ina en ég sé ekki að eitt­hvað hafi farið úrskeiðis sér­stak­lega í þessu máli. Það er auð­vitað mjög alvar­legt að fram­línu­starfs­menn okkar, stór hluti lög­regl­unnar á Suð­ur­landi, sé nú í sótt­kví en við því verður brugð­ist og ég hef átt sam­tal við lög­reglu­stjór­ann um það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár