Fjöldi þeirra sem nýta hlutabótaleiðina hefur næstum helmingast

Atvinnu­leysi dróst mikið saman í síð­asta mán­uði, sér­stak­lega vegna þess að fjöldi þeirra sem voru á hinni svoköll­uðu hluta­bóta­leið dróst veru­lega saman. Þeim sem fengu greitt vegna úrræð­is­ins fækk­aði um 16.424 í maí.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, lagði fram frumvarpið um hlutabótaleiðina á sínum tíma.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, lagði fram frum­varpið um hluta­bóta­leið­ina á sínum tíma. Mynd: Bára Huld Beck

Í apr­íl­mán­uði fengu alls 33.637 manns greiddar hluta­bætur vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls úr atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði. Í lok maí­mán­aðar voru alls 17.213 manns í minnk­uðu starfs­hlut­falli. Það þýður að þeim launa­mönnum sem settir höfðu verið á hluta­bóta­leið­ina hafði fækkað næstum helm­ing frá því sem mest var.

Þetta má lesa úr nýrri mán­aða­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar um stöð­una á vinnu­mark­aði sem birt var i dag. Þar segir að fólk hafi verið að skrá sig úr hluta­bóta­leið­inni jafnt og þétt yfir maí­mánuð, heldur fleiri þó framan af mán­uð­inum. Meðal bóta­hlut­fall fólks á hluta­bóta­leið­inni var um 60 pró­sent í maí.

Atvinnu­leysi vegna þeirra sem skráðir voru í minnkað starfs­hlut­fall í maí reikn­að­ist 5,6 pró­sent í maí og hafði lækkað um nærri helm­ing frá því í apríl. Í skýrsl­unni segir að hæst hafi hlut­fall atvinnu­leysis sem teng­ist minnk­uðu starfs­hlut­falli verið á Suð­ur­nesjum, eða 7,4 pró­sent. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mæld­ist það 5,7 pró­sent. Vinnu­mála­stofnun gerir ráð fyrir að atvinnu­leysi vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls lækki í um 3,5-4,0 pró­sent í júní og komi þá til við­bótar almennu atvinnu­leysi nálægt 7,3 pró­sent.

Alls mæld­ist heild­ar­at­vinnu­leysi í maí þrettán pró­sent, en hafði verið 17,8 pró­sent í apríl.

Leiðin framlengd með breytingum

Stjórn­völd ákváðu að fram­lengja hluta­bóta­leið­ina út ágúst næst­kom­andi, en þó með breyttu sniði. Þær breyt­ingar sem gerðar voru fela meðal ann­ars í sér að í júlí og ágúst verða hámarks­greiðslur úr opin­berum sjóðum 50 pró­sent af greiddum launum í stað 75 pró­sent. Auk þess mega þau fyr­ir­tæki sem nýta sér leið­ina ekki ætla að greiða arð, kaupa eigin bréf, greiða óum­samda bónusa eða borga helstu stjórn­endum yfir þrjár millj­ónir á mán­uði í tvö ár.

[adspot]Áætlanir stjórn­valda gera nú ráð fyrir að leiðin muni kosta 34 millj­arða króna.

Sama dag og fram­leng­ing hluta­bóta­leið­ar­innar var sam­þykkt á Alþingi í lok maí var sam­þykkt frum­varp um að veita fyr­ir­tækjum sem orðið hafa fyrir umfangs­miklu tekju­tapi, eða 75 pró­sent, styrki til að eyða ráðn­ing­ar­sam­böndum við starfs­fólk sitt. Tilkynnt var um að frum­varpið yrði lagt fram í lok apríl, sem leiddi til þess að mörg fyr­ir­tæki sem höfðu verið með fólk á hluta­bóta­leið­inni sögðu því upp fyrir þau mán­að­ar­mót.

Úrræðið gerir ráð fyrir því að rík­is­sjóður greiði fyr­ir­tækjum sem upp­fylla sett skil­yrði alls 27 millj­arða króna í styrki til að hjálpa þeim að segja upp fólki. Yfir­lýst mark­mið er að draga úr fjölda­gjald­þrotum og tryggja rétt­indi launa­fólks. Hlið­ar­á­hrif eru að eign hlut­hafa er var­in.

Fyrirtækjunum fækkaði um yfir tvö þúsund

Í skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar segir að 42 pró­sent þeirra sem voru í hluta­bóta­leið­inni í lok maí hafi verið starf­andi í flug­starf­semi, gisti- og veit­inga­rekstri og öðrum ferða­þjón­ustu­tengdum greinum og hafði hlut­fallið hækkað úr um 37 pró­sent í lok apríl. Stofn­unin segir að það sýni alvar­lega stöðu þeirrar atvinnu­greinar.

[links]Hlutfall þeirra fyr­ir­tækja sem starfa í menn­ingar- og félags­starf­semi auk opin­bers rekstrar og per­sónu­legrar þjón­ustu sem nýttu sér úrræðið lækk­aði úr ell­efu í átta pró­sent í maí.

Alls nýttu 6.320 fyr­ir­tæki sér hluta­bóta­leið­ina í apríl en fjöldi þeirra var kom­inn niður í um 4.200 í lok maí. Það þýðir að um 2.120 fyr­ir­tæki hættu að nýta sér leið­ina í maí, eða þriðj­ungur. 

Mikil umræða var enda um leið­ina í þeim mán­uði og sér­stak­lega um notkun fyr­ir­tækja bjuggu að öfl­ugum rekstri og traustum efna­hag, og höfðu ekki orðið fyrir veru­legum skakka­föll­um vegna COVID-19, á úrræð­inu.

Í skýrslu sem Rík­is­end­ur­skoðun tók saman að eigin frum­kvæði, og birti í lok síð­asta mán­aðar, kom fram að hluta­bóta­leiðin hafi verið mis­notuð á marg­hátt­aðan máta. Of margir sem áttu ekki í bráðum rekstr­ar­vanda hafi nýtt sér hana til að sækja fjár­muni í rík­is­sjóð og mis­brestur hafi verið á eft­ir­liti með ráð­stöfun rík­is­fjár vegna leið­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár