Ráðuneytið segir nei við frekari ívilnunum vegna tengiltvinnbíla

Þrenn hags­muna­sam­tök vildu að íviln­anir til að gera tengilt­vinn­bíla ódýr­ari yrðu fram­lengdar. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið metur kostn­að­inn vegna þessa á um 20 millj­arða króna og segir íviln­an­irnar ekki kostn­að­ar­skil­virkar.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið telur ekki rétt að fall­ast á til­lögur Bíl­greina­sam­bands­ins, Samtaka ferða­þjón­ust­unnar (SAF) og Samtaka versl­unar og þjón­ustu (SVÞ) um að fram­lengja ákveðnar skattaí­viln­anir vegna tengilt­vinn­bíla. Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna áfram­hald­andi íviln­ana, sem eru ekki taldar kostn­að­ar­skil­virkar, sé gróf­lega áætl­aður um 20 millj­arðar króna. Þeim fjár­munum sé betur varið í aðrar stuðn­ings­að­gerðir við orku­skipti í vega­sam­göngum.

Þetta kemur fram í minn­is­blaði sem ráðu­neytið hefur sent Alþingi með sam­an­tekt um umsagnir sem bár­ust um band­orm vegna fjár­laga­frum­varps árs­ins 2022 og við­brögð þess við þeim.

Í band­orm­inum – frum­varpi til breyt­inga á ýmsum lögum vegna fjár­laga­frum­varps næsta árs – er lagt til að gistin­átta­skattur, sér­­stakt gjald sem leggst ofan á hverja selda ein­ingu næt­­ur­g­ist­ing­­ar, verði ekki inn­­heimtur fyrr en árið 2024.

Hags­muna­sam­tökin þrjú sendu inn sam­eig­in­lega umsögn við band­orm­inn, en þar kom fram að virð­is­auka­skatt­sí­vilnun vegna tengilt­vinn­bíla, sem ganga bæði fyrir raf­magni og jarð­efna­elds­neyti, myndi helm­ing­ast um kom­andi ára­mót, úr 960 í 480 þús­und krónur. Þá munu íviln­an­irnar senni­lega falla niður snemma á næsta ári þegar við­miði um 15 þús­und slíkar bif­reiðar hér­lendis verður náð, en fjöld­inn var kom­inn upp í 13.226 þann 7. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Til sam­an­burðar var fjöldi raf­magns­bíla á sama tíma um tíu þús­und.

[adspot]Samtökin gerðu athuga­semdir við þetta á þeim grunni að breyt­ingin myndi orsaka hlið­stæða hækkun á útsölu­verði tengit­vinn­bíla sem myndi draga úr líkum á að ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki, þar með taldar bíla­leigur, kaupi tengilt­vinn­bif­reiðar.

Á meðal félaga í Bíl­greina­sam­band­inu eru bíla­um­boð, á meðal félaga í SAF eru bíla­leigu­fyr­ir­tæki og á meðal félaga í SVÞ eru stærstu olíu­fé­lög á Íslandi, sem byggja stærstan hluta veltu sinnar á sölu á jarð­efna­elds­neyti.

Hlutfallið hæst í Garðabæ og á Seltjarnarnesi

Virð­is­auka­skattur hefur verið felldur nið­ur, upp að vissu marki, vegna inn­flutn­ings á raf­magns-, vetn­is- og tengilt­vinn­bílum frá því um mitt ár 2012. Frá upp­hafi nema þessar íviln­anir 21,1 millj­arði króna. Af þeirri upp­hæð hafa 11,4 millj­arðar króna fallið til vegna tengilt­vinn­bíla, þar af 3,5 millj­arðar króna í ár.

Tillögur hafa verið lagðar fram á Alþingi um að afnema skatt­afslátt vegna tengilt­vinn­bíla, en breyt­ingum hefur tví­vegis áður verið frestað. Í des­em­ber 2019 ákvað efna­hags- og við­skipta­nefnd að taka undir sjón­ar­mið bíla­inn­flytj­enda og Grænnar orku og fresta nið­ur­fell­ingu afslátt­ar­ins. Þá var ákveðið að fresta því að íviln­anir vegna tengilt­vinn­bíla yrðu felldar niður við lok árs 2020, og þess í stað yrðu þær lækk­aðar í áður­nefndum skrefum.

Í minn­is­blaði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að raf­magns- og tengilt­vinn­bílum hafi fjölgað mikið á skömmum tíma, og að það sé merki um að orku­skipti í sam­göngum séu komin á fullt skrið. Hlut­deild þeirra jókst úr 22 pró­sent allra bíla árið 2019 í 46 pró­sent í fyrra og 56 pró­sent það sem af er þessu ári. „Í fólks­bíla­flota lands­manna eru raf­magns- og tengilt­vinn­bílar nú tíu pró­sent, þar af sex pró­sent tengilt­vinn­bílar og fjögur pró­sent raf­magns­bílar. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í heild er hlut­fallið ell­efu pró­sent og á lands­byggð­inni er það fimm pró­sent. Þegar ein­stök sveit­ar­fé­lög eru skoðuð má sjá að hæsta hlut­fall raf­magns- og tengilt­vinn­bíla er í Garðabæ og á Sel­tjarn­ar­nesi eða um 16 pró­sent.“

Tengiltvinnbílarnir helsta hindrun Norðmanna

Ísland hefur sett sér mark­mið um að ná kolefn­is­hlut­leysi og full­komnum orku­skiptum eigi síðar en árið 2040. Gangi það eftir mun Ísland vænt­an­lega verða fyrst allra ríkja óháð jarð­efna­elds­neyti.

Í minn­is­blað­inu segir að til að ná settum mark­miðum þurfi aðgerðir stjórn­valda að vera mark­vissar. „Sé litið til Noregs þar sem hrað­ast hefur gengið að ná upp hlut­deild raf­bíla bein­ast VSK-íviln­anir ein­göngu að hrein­orku­bílum. Í norska fjár­laga­frum­varp­inu 2022 eru lagðar til fjöl­þættar breyt­ingar til að ljúka orku­skipt­unum og auka tekjur rík­is­ins af öku­tækjum á ný. Þar er m.a. lagt til að öllum stuðn­ingi við tengilt­vinn­bíla, sem fel­ast m.a. í lægri bif­reiða­gjöldum, verði hætt og stefnt að því að allir nýskráðir bílar verði hrein­orku­bílar árið 2025. Ein helsta hindr­unin fyrir því að Noregur nái mark­miðum sínum um að allar nýjar fólks­bif­reiðar og léttar sendi­bif­reiðar verði hrein­orku­bif­reiðar árið 2025 er fjöldi tengilt­vinn­bíla sem hefur auk­ist þar í landi síð­ustu ár. Vegna þessa er það mark­mið norskra stjórn­valda að draga til muna úr skatta­legum hvötum fyrir tengilt­vinn­bif­reiðar, segir fiár­mála­ráð­herra Noregs í októ­ber 2021.“

Með því að ívilna ein­ungis hreinum raf­magns­bílum verði þeir mun hag­kvæm­ari kostur fyrir þá sem vilja fara í orku­skipti.

„Óskilvirk aðgerð sem orki tvímælis“

Árið 2020 ákvað Alþingi, eftir til­lögu efna­hags- og við­skipta­nefndar þar um, að ganga enn lengra við að hvetja bíla­leigur til orku­skipta. Var það gert með því að tryggja leig­unum rétt til afsláttar af vöru­gjöldum sem lögð eru á bif­reiðar við inn­flutn­ing gegn skuld­bind­ingu um að hlutur raf­magns-, vetnis- og tengilt­vinn­bif­reiða nemi 15 pró­sent af heild­ar­inn­kaupum þeirra árið 2021 og 25 pró­sent 2022.

Þetta var gert á þeim grund­velli að bíla­leigur kaupi inn stóran hluta allar nýskráðra bif­reiða hér­lendis, selji þær svo á almennum mark­aði eftir til­tekin tíma og hafi því veru­leg áhrif á þróun og sam­setn­ingu bíla­flot­ans á Íslandi.

[adspot]Í minn­is­blaði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins segir að það sé mat þess að vöru­gjaldsí­viln­unin, sem hafi það mark­mið að draga úr losun koltví­sýr­ings, sé „óskil­virk aðgerð sem orki tví­mælis“. Frá árs­byrjun til byrjun nóv­em­ber 2021 nam afslátt­ur­inn alls 839 millj­ónum króna. Hann geri hins vegar jarð­efna­elds­neyt­is­bíla ódýr­ari og vinni því að hluta gegn raf­væð­ingu bíla­l­eigna. „Bíla­leigur í heild hafa nú þegar náð 27 pró­sent hlut­deild vist­vænna bíla í nýskrán­ingum það sem af er þessu ári, en hverri og einni nægir 15 pró­sent hlut­deild árið 2021 og 25 pró­sent hlut­deild árið 2022 til að fá veru­legan skatt­afslátt af jarð­efna­elds­neyt­is­bílum sínum. Hjá bíla­leigum sem hafa náð til­skil­inni hlut­deild skapar kerfið hvata til að kaupa jarð­efn­iselds­neyt­is­bíla sem síðan fara í end­ur­sölu að 1-2 árum liðnum. [...] Tengilt­vinn­bif­reið sem bíla­leiga flytur inn mun aug­ljós­lega keyra mikið á bens­íni/dísil og lítil ástæða er til að styðja sér­stak­lega við að bíla­leigur kaupi inn tengilt­vinn­bif­reiðar.“

Tekjutap ígildi fórnaðra möguleika

Á grund­velli alls fram­an­greinds, og þess gíf­ur­lega kostn­aðar sem til­lögur hags­muna­sam­tak­anna þriggja um áfram­hald­andi íviln­anir fyrir tengilt­vinn­bíla á greiðslu virð­is­auka­skatts myndu hafa í för með sér fyrir rík­is­sjóð, sem ráðu­neytið áætlar gróf­lega að séu um 20 millj­arðar króna, er það nið­ur­staða þess að ekki sé rétt að fram­lengja íviln­an­irnar.

Að mati ráðu­neyt­is­ins yrði aðgerðin ein­fald­lega ekki kostn­að­ar­skil­virk aðgerð í loft­lags­málum enda séu íviln­anir fyrir tengilt­vinn­bíla „dýr aðgerð í krónum talin í sam­an­burði við aðrar stuðn­ings­að­gerðir við orku­skipti í vega­sam­göngum.“ Tekjutap rík­is­ins vegna íviln­ana sé ígildi fórnaðra mögu­leika á að veita fram­lög til ann­arra aðgerða að sama mark­miði, svo sem hleðslu­inn­viða, raf­væð­ingar hafna eða ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár