Ágúst Ólafur verður ekki í framboði fyrir Samfylkinguna í næstu kosningum

Annar odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­víkur verður ekki á lista hennar í kom­andi þing­kosn­ingum. Hann bauðst til að taka annað sætið á lista en meiri­hluti upp­still­ing­ar­nefndar hafn­aði því.

Ágúst Ólafur Ágústsson.
Ágúst Ólafur Ágústs­son. Mynd: Bára Huld Beck

Ágúst Ólafur Ágústs­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík suður, mun ekki vera á fram­boðs­lista flokks­ins í kom­andi kosn­ingum. Frá þessu greinir hann í stöðu­upp­færslu á Facebook.

Þar segir Ágúst Ólafur að honum þyki dap­ur­legt fyrir sig að upp­still­ing­ar­nefnd flokks­ins hafi ekki talið rétt að hann yrði í lík­legu þing­sæti fyrir næstu kosn­ingar. Þó gagn­rýna megi ýmis­legt varð­andi aðferð­ina sem beitt hafi verið við upp­still­ingu virði hann rétt nefnd­ar­innar til að taka sína ákvörðun.

Ágúst Ólafur seg­ist hafa boðið upp­still­ing­ar­nefnd flokks­ins sátta­til­lögu sem fælist í því að hann færi úr odd­vita­sæt­inu í kjör­dæm­inu í nafni nýlið­unar og tæki annað sætið á lista. „Þeirri til­lögu var hafnað af meiri­hluta upp­still­ing­ar­nefndar. Þessi nið­ur­staða er mér vissu­lega von­brigði en ég horfi stoltur til baka yfir feril minn í stjórn­málum og er ég mjög þakk­látur fyrir að hafa fengið tæki­færi til að vinna að betra sam­fé­lagi.“

Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því að Ágústi Ólafi hafi verið boðið þriðja sætið á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður en að hann hafi hafnað því boði.

[adspot]Loka­frá­gangur á því hverjir muni sitja í þremur efstu sætum á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur stendur nú yfir og verður greint frá nið­ur­stöð­unum á allra næstu dögum.

Flokk­ur­inn lét fram­kvæma skoð­ana­könnun á meðal félags­manna í Sam­fylk­ing­unni í Reykja­vík í aðdrag­anda upp­still­ing­ar­innar í síð­asta mán­uði. Samkvæmt nið­ur­stöðu hennar lentu Helga Vala Helga­dóttir þing­mað­ur, Kristrún Frosta­dótt­ir, aðal­hag­fræð­ingur Kviku banka, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir þing­mað­ur, Jóhann Páll Jóhanns­son, fyrr­ver­andi blaða­maður og núver­andi starfs­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og Ragna Sig­urð­ar­dótt­ir, for­seti ungra jafn­að­ar­manna, í fimm efstu sæt­unum.

Búast má við því að þrjú eða fjögur þeirra hið minnsta verði í efstu sæt­unum hjá Sam­fylk­ing­unni í Reykja­vík. Ekki liggur fyrir hvort Rósa Björk ætli að taka slag­inn þar eða bjóða sig fram til að leiða flokk­inn í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, þar sem hún var odd­viti Vinstri grænna í kosn­ing­unum 2017.

Skoð­ana­könn­unin var ekki bind­andi heldur var henni ætlað að upp­still­ing­ar­nefnd flokks­ins, sem í sitja 17 manns, sýn á vilja flokks­manna í höf­uð­borg­inni þegar hún raðar á lista fyrir næstu kosn­ing­ar. Nefndin er þó ekki bundin af nið­ur­stöð­unni.

Í nýlegri umfjöllun Kjarn­ans, sem byggði á nið­ur­stöðu tveggja kann­ana MMR sem gerðar voru um mán­aða­mótin októ­ber/nóv­em­ber, mæld­ist fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 18,4 pró­sent. Fylgi á þeim slóðum myndi skila flokknum 4-5 þing­sætum í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveim­ur. Ef hann vinnur kosn­inga­sigur í borg­inni gætu þau orðið sex. Lík­leg upp­skera í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, miðað við stöðu mála í könn­unum um þessar mund­ir, yrðu tvö þing­sæti.

Í sömu umfjöllun kom fram að Sam­fylk­ingin væri á miklu skriði hjá yngstu kjós­end­unum og kon­um. Í könnun sem MMR birti dag­inn fyrir kosn­­ing­­arnar 2016 mæld­ist Sam­­fylk­ingin með eitt pró­­sent fylgi í ald­­ur­s­hópnum 18 til 29 ára. Í haust var Sam­­fylk­ingin með 19,3 pró­­sent fylgi hjá þeim ald­urs­flokki. Þá kom fram í umfjöll­un­inni að Sam­fylk­ingin nyti stuðn­ings 21,4 pró­sent kvenna en ein­ungis 11,9 pró­sent karla.

Fyrir liggur að Logi Ein­ars­son, for­maður flokks­ins, muni leiða í Norð­aust­ur­kjör­dæmi en óljóst er hvernig málum verður háttað í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, þar sem þing­mað­ur­inn Guð­jón Brjáns­son leiddi síð­ast, og í Suð­ur­kjör­dæmi, þar sem Oddný Harð­ar­dóttir er sitj­andi odd­viti. Heim­ildir Kjarn­ans herma að vilji sé hjá mörgum áhrifa­mönnum innan flokks að gera breyt­ingar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og sækja fastar fylgi í þétt­býl­ari sveit­ar­fé­lög innan þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár