Fylgi Framsóknarflokks ekki minna á árinu

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur mest fylgis sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá. Allir flokkar tapa fylgi eða standa í stað utan Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna.

Sigurður Ingi Jóhannsson tók við sem forsætisráðherra af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni 7. apríl.
Sigurður Ingi Jóhanns­son tók við sem for­sæt­is­ráð­herra af Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni 7. apríl. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ný kosn­inga­spá sýnir að fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins heldur áfram að minnka og mælist nú 8,5 pró­sent á lands­vísu. Fylgi flokks­ins hefur ekki verið minna í kosn­inga­spánni á þessu ári en til sam­an­burðar má benda á að flokk­ur­inn hlaut 24,4 pró­sent atkvæða í alþing­is­kosn­ing­unum í apríl 2013. Hæst mæld­ist Framsókn með 12,3 pró­sent fylgi 1. apríl en eins og Kjarninn hefur greint frá fór fylgi stjórn­mála­flokka á flug eftir að hul­unni var svipt af Panama­skjöl­unum í byrjun apríl.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi hljóta mest fylgi allra fram­boða ef kosið yrði nú, sam­kvæmt kosn­inga­spánni, eða 29,4 pró­sent atkvæða. Það er, ólíkt sam­starfs­flokknum í rík­is­stjórn, það mesta sem sjálf­stæð­is­menn hafa mælst með á þessu ári. Flokk­ur­inn hlaut 26,7 pró­sent atkvæða í alþing­is­kosn­ing­unum 2013.

[adspot]

Píratar höfðu stöðugt mælst stærsta fram­boðið fyrstu þrjá mán­uði árs­ins en eru nú næst stærstir á eftir Sjálf­stæð­is­flokknum. Fylgi við Pírata hóf að hrapa eftir að ráðu­neyti Sigurðar Inga Jóhanns­sonar tók við 7. apríl; hefur farið úr 36,7 pró­sentum í 28,3 pró­sent í nýj­ustu kosn­inga­spánni sem gerð var í gær, 26. maí.

Vinstri græn hafa einnig vaxið mikið í kjöl­far afhjúp­unar Panama­skjal­anna. Sá flokkur er, ásamt Sjálf­stæð­is­flokki, sá eini sem vex í nýj­ustu kosn­inga­spánni. Vinstri græn mæl­ast nú með 17,6 pró­sent fylgi. Það er átta pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn mæld­ist með um miðjan mars þegar það var 9,5 pró­sent.

Gengi Sam­fylk­ing­ar­innar er ekki gott sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni. Flokk­ur­inn mælist nú með 7,9 pró­sent fylgi. Engar stórar sveiflur er að finna ef rýnt er í nið­ur­stöður kosn­inga­spár­innar frá ára­mótum. Þann 20. jan­úar var Sam­fylk­ingin á pari með Fram­sókn­ar­flokknum og Vinstri grænum með 10,4 pró­sent fylgi. Síðan hefur fylgið minnkað nær stöðug í þau tólf skipti sem kosn­inga­spáin hefur verið gerð á þessu ári.

Í ljósi slaks fylgis Sam­fylk­ing­ar­innar í skoð­ana­könn­unum var ákveðið að flýta lands­fundi flokks­ins til 4. júní næst­kom­andi og kjósa þar nýja for­ystu. Árni Páll Árnason, sitj­andi for­maður flokks­ins, ætlar ekki að gefa kost á sér áfram. Fjórir hafa gefið kost á sér í það emb­ætti. Árni Páll tók við for­mennsku árið 2013 af Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og leiddi flokk­inn í síð­ustu kosn­ingum. Þær reynd­ust slæm útreið fyrir flokk­inn sem hlaut aðeins 12,9 pró­sent atkvæða miðað við 29,8 pró­sent í kosn­ing­unum 2009 og setu í rík­is­stjórn í heilt kjör­tíma­bil.

Önnur fram­boð mundu fá minna en fjögur pró­sent atkvæða sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá. Dregið hefur saman með Bjartri fram­tíð og Viðreisn sem mæl­ast nú með svipað mikið fylgi. Björt fram­tíð myndi fá 3,7 pró­sent atkvæða og Viðreisn 3,2 pró­sent. Dögun mælist með tæpt eitt pró­sent fylgi og Alþýðu­fylk­ingin með hálft pró­sent. Ætla má að um fimm pró­sent atkvæða á lands­vísu þurfi til að ná kjöri á Alþingi.

Kosn­­inga­­spá Kjarn­ans og Bald­­urs Héð­ins­­sonar er gerð fyrir Alþing­is­­kosn­­ingar sem boð­aðar hafa verið í haust. Baldur hefur útbúið spálíkan sem vigtar kann­­anir sem gerðar eru á fylgi stjórn­­­mála­­flokka eftir áreið­an­­leika. Sama líkan var notað fyrir sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­arnar árið 2014 fyrir fylgi fram­­boða í Reykja­vík og nið­­ur­­staðan birt á vef Kjarn­ans og á vefn­um kosn­­inga­­spá.­is. Í nýj­ustu kosn­­inga­­spánni eru nýj­­ustu kann­an­­irnar vegn­­ar:

  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 23. til 24. maí (vægi 24,3%)
  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 17. maí (vægi 20,9%)
  • Skoð­ana­kann­­anir Frétta­­blaðs­ins 9. maí (vægi 14,7%) og 2. til 3. maí (vægi 11,2%)
  • Þjóð­­ar­púls Gallup 14. til 28. apríl (vægi 16,8%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 22. til 26. apr­íl (vægi 12,1%)

Hvað er Kosningaspáin?

Kosn­inga­spálíkan Baldurs Héð­ins­sonar miðar að því að setja upp­lýs­ing­arnar sem skoð­ana­kann­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­inga. Kjarninn birti Kosn­inga­spá Baldurs fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar og reynd­ist sú til­raun vel. Á vefnum kosn­inga­spá.is má lesa nið­ur­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­vik kann­ana miðað við kosn­inga­úr­slitin.

Áreið­an­leiki könn­un­ar­að­ila er reikn­aður út frá sögu­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­inga­úr­slitum. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningaspá

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár